Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Við höfum notið velvilja Dana,“ segir Njörður Sigurðsson, sviðs- stjóri upplýsinga- og skjalasviðs Þjóðskjalasafnsins, í samtali við Morgunblaðið um afhendingu danskra stjórnvalda á skjölum sem varða sögu Íslands meðan það var í sambandi við Danmörku. Eins og fram hefur komið í fréttum afhenti Lars Løkke Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, Þjóðskjala- safninu á fullveldisdaginn stafræn afrit af um 22.000 skjölum úr rík- isskjalasafni Danmerkur um sam- skipti Íslands og Danmerkur á fyrri hluta 20. aldar. Tvívegis áður, 1928 og 2003-2004, hafa Danir af- hent safninu mikinn fjölda frum- skjala úr danska ríkisskjalasafninu, þar á meðal manntalið frá 1703 og stjórnarskrána frá 1874. Ónefnd eru þá miðaldahandritin, grund- völlur íslenskrar menningar- arfleifðar, sem Danir afhentu á ár- unum 1971 til 1997, en þau eru varðveitt í Stofnun Árna Magn- ússonar Ekki sjálfsagður hlutur Það er engan veginn sjálfgefið að slík skjalaafhending eigi sér stað. Því hefur Njörður kynnst vel í starfi sínu á vettvangi al- þjóðaskjalaráðsins (International Council on Archives – ICA), en þar er hann formaður sérfræðihóps um sameiginlega skjalaarfleifð (Expert Group on Shared Archival Her- itage). „Verkefni sérfræðihópsins er að skapa vettvang til umræðu og úr- lausn vandamála og ágreinings um skjalasöfn sem tengjast fleiri en einu samfélagi, ríki eða svæði þar sem eignarhald og aðgangur er óviss eða í ágreiningi. Slíkt ástand hefur í gegnum tíðina skapast af stríðsástandi, hersetu, sjálfstæði og stofnun nýrra ríkja eða öðrum atburðum í sögunni,“ segir Njörð- ur. Sérfræðihópurinn vinnur nú að gerð könnunar á heimsvísu um skjalakröfur sem send hefur verið til allra þjóðskjalasafna heimsins. „Við munum því innan tíðar fá nýj- ustu upplýsingar um hvernig þessi mál standa og hvar helstu vanda- málin liggja,“ segir Njörður en bendir á að hann hafi fengið tölvu- pósta frá þjóðskjalasöfnum sem hafa sagst ekki vilja gefa op- inberlega upp hvaða kröfur þau hafa um skjöl í öðrum löndum því málið sé pólitískt viðkvæmt. Njörður segir að margar fyrr- verandi nýlendur heimsins hafi gert kröfur um skjalaskil eða að fá aðgengi að heimildum um sína eig- in sögu sem varðveitt er í skjölum í löndum fyrrverandi nýlenduvelda. Mörgum ágreiningsmálum hafi verið lokið með milliríkjasamn- ingum á meðan önnur eru enn óleyst. Í hópnum sem Njörður stýrir eru sérfræðingar úr skjalasöfnum og háskólum frá Bretlandi, Banda- ríkjunum, Hollandi, Kenía, Tríni- dad og Tóbagó, Króatíu og Sádi- Arabíu. Hópurinn hefur starfað frá árinu 2016 og vinnur þegar að nokkrum verkefnum, m.a. að könn- un á heimsvísu um kröfur ríkja og hópa á skjöl sem hafa verið flutt í burtu. Hópurinn hefur m.a. það verkefni að útbúa leiðbeiningar, fyrirmyndir að samningum og stuðla að opinni umræðu um skjalakröfur þjóða. Njörður hefur flutt erindi víða um heim um verk- efni sérfræðihópsins, m.a. í Mexíkó, Möltu og síðast á ráð- stefnu ICA í Kamerún. Afritun ekki alltaf lausn „Í sumum tilfellum væri hægt að ljúka málum með því að afrita skjöl og frumritin yrðu í öðru hvoru landinu,“ segir Njörður. En það er ekki alltaf nægilegt til að leysa málin. „Við Íslendingar get- um t.d. velt fyrir okkur hvort við hefðum sætt okkur við að fá afrit af manntalinu 1703 eða afrit af handritunum en báðir þessir skjalaflokkar eru nú á lista UNESCO yfir minni heimsins. Í sumum tilfellum eru það frum- skjölin sem sóst er eftir vegna þess að þau hafa gífurlega þýðingu fyrir sögu þjóða eða hópa og í mörgum tilfellum má segja að skjölin endurspegli sjálfsmynd þjóða. Stundum hefur verið sagt að sjálfstæðisbaráttu Íslendinga hafi lokið með því að handritamálið var í höfn. Kannski má heimfæra þetta á fyrrverandi nýlendur, s.s. í Afr- íku, sem enn berjast við að fá til sín skjöl sem eru í Bretlandi, Frakklandi, Belgíu og fleiri fyrr- verandi nýlenduveldum. Að hafa frumritin skiptir því stundum öllu máli þó að afrit geti leyst sum mál. Þannig að verkefni sérfræðihópsins geta verið mjög flókin og koma inn á sagnfræði, skjalfræði og pólitík.“ Ýmis óleyst deilumál Deilur um skjalaskil hafa einna oftast snúið að skjölum sem eru varðveitt í fyrrverandi nýlendu- veldum og varða sögu og sjálfs- mynd fyrrverandi nýlendna. En sumt varðar atburði sem eru nær okkur í tíma. Þannig voru írösk stjórnarskjöl flutt til Bandaríkj- anna eftir Íraksstríðið og skjöl voru flutt frá Eystrasaltsríkjunum til Rússlands við fall Sovétríkj- anna. Njörður segir að aðeins hafi náðst lausn á hluta þeirra deilna sem verið hafa um skjalaskil. Sem dæmi um nýlega samninga á þessu sviði nefnir Njörður afhendingu á skjölum um Surínam frá Hollandi og afhendingu á skjölum japanskra fyrirtækja úr síðari heimsstyrjöld- inni frá Ástralíu, hvort tveggja á síðasta ári. Njörður bendir á að skjöl segi sögu þjóða, samfélaga og hópa. Það sjónarmið sé ríkjandi að allir eigi rétt á aðgangi að gögnum er varða uppruna þeirra og menn- ingu. „Þjóðir og hópar vilja varð- veita sína sögu og ákveða hvernig aðgengi að henni er stýrt,“ segir hann. Inn í þetta blandast líka pólitík og oft heitar tilfinningar. Að stórum hluta dönsk skjöl Njörður segir margt áhugavert við afhendingu Dana á skjölum til Íslands. Hann segir að „danska sendingin“ svokallaða 1928 hafi í raun að stórum hluta verið dönsk skjöl þótt þau vörðuðu íslensk mál. „Þau voru hluti af skjalasöfnum danska stjórnkerfisins, s.s. rentu- kammers, kansellís og hæstaréttar Danmerkur. Það var því sérstakt að Danir skyldu fallast á að af- henda skjöl innan úr skjalasöfn- unum sínum til Íslands. Þessi skjöl höfðu mikla þýðingu fyrir Íslend- inga og eru í raun grundvallar- heimildir um sögu Íslands á fyrri öldum en í sendingunni var m.a. manntalið 1703,“ segir Njörður. En skjöl fóru líka frá þjóðskjala- safninu hér heima og til Danmerk- ur – og svo aftur heim. Þannig er mál með vexti að skjalasafn Ís- lensku stjórnardeildarinnar í Kaupmannahöfn hafði verið afhent til Íslands við stofnun Stjórn- arráðsins 1904 svo að hin nýja ís- lenska stjórnarskrifstofa hefði til- tæk skjöl er vörðuðu stjórn landsins síðustu áratugi. En þegar samið var um „dönsku sendinguna“ var ákveðið að frumkvæði Íslend- inga að þessi skjöl yrðu afhent aft- ur til Danmerkur, alls 79 bindi af tillögubókum, bréfabókum og skrám frá árunum 1848-1904. Þar á meðal var frumrit fyrstu stjórn- arskrár Íslands frá 1874. Löngu seinna komu þessi skjöl aftur hing- að heim og þá fyrir frumkvæði Ólafs heitins Ásgeirssonar þjóð- skjalavarðar. Samningur um þetta var undirritaður 9. apríl 2003. Sama dag fór fram formleg af- hending á skjölunum í Safnahúsinu við Hverfisgötu, hinum gömlu höf- uðstöðvum Þjóðskjalasafnsins. Þar afhenti Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, Davíð Oddssyni, forsætisráðherra Ís- lands, tillögubók Íslensku stjórn- ardeildarinnar 1874-1875 með frumriti stjórnarskrárinnar 1874. Hinar 78 bækurnar voru komnar til Íslands 22. janúar 2004. Frumskjöl þjóðum mikilsverð  Danir hafa sýnt Íslendingum einstakan velvilja með afhendingu frumskjala er varða sögu Íslands  Víða um heim deilt um skjalaskil  Íslendingur stýrir sérfræðihópi alþjóðaskjalaráðsins um málið Morgunblaðið/Eggert Skjalasöfn Njörður Sigurðsson, skjalavörður í Þjóðskjalasafni Íslands, er formaður sérfræðingahóps alþjóða- skjalaráðsins um sameiginlega skjalaarfleifð þjóða. Víða um heim er deilt um hvar varðveita skuli skjöl þjóða. Alþjóðastarf Njörður (fyrir miðju) stýrði málstofu um sameiginlega skjala- arfleifð í Kamerún í lok nóv. Með honum eru fulltrúar úr sérfræðihópnum. Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla /solohusgogn Ásgeir Einarsson hönnuður Sindrastólsins (1927 – 2001) SINDRASTÓLLINN Sindrastóll 185.000,- Sindraskammel 55.000,-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.