Morgunblaðið - 13.12.2018, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
Guðm. Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Samþykkt um örugga, skipulagða og
reglubundna fólksflutninga milli
landa var afgreidd á ríkjaráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um farandmenn
í Marrakesh í Marokkó í byrjun vik-
unnar.
Samkomulagið, sem ekki er laga-
lega bindandi, hefur það að markmiði
að draga úr ólöglegum fólksflutning-
um og auka samvinnu milli landa um
þessi mál.
Áætlað er, að á síðasta ári hafi 258
milljónir manna hafi flust búferlum
milli landa í heiminum. Fulltrúar 165
ríkja sátu ráðstefnuna en nokkur
þeirra, þar á meðal Bandaríkin, Ástr-
alía, Austurríki, Tékkland, Ungverja-
land, Lettland, Pólland og Slóvakía,
standa ekki að samkomulaginu.
Bandaríkin lýstu því yfir í síðustu
viku, að samþykktin væri tilraun
Sameinuðu þjóðanna til að koma á
yfirþjóðlegri stjórnun á kostnað full-
veldisréttar ríkjanna.
Þá lýstu tilvonandi valdamenn
Brasilíu því yfir, að landið muni segja
sig frá samkomulaginu þegar nýkjör-
inn forseti landsins tekur við embætti
í janúar. En Antonio Guterres, fram-
kvæmdastjóri SÞ, lagði á það áherslu
að samkomulagið væri ekki lagalega
bindandi heldur umgjörð um alþjóð-
lega samvinnu og viðbrögð.
„Við megum ekki lúta í lægra haldi
fyrir ótta og ósannindum,“ sagði
hann.
Meðal viðstaddra í Marrakesh voru
Angela Merkel, kanslari Þýskalands,
Alexis Tsipras, forsætisráðherra
Grikklands, Lars Løkke Rasmussen,
forsætisráðherra Dana, og Pedro
Sanchez, forsætisráðherra Spánar.
Merkel sagði á ráðstefnunni, að
með samþykktinni væri reynt að
koma í veg fyrir ólöglega fólksflutn-
inga yfir landamæri. Þá sagði hún að
land hennar hefði, á tímum nasism-
ans, valdið mannkyninu ómældum
sársauka. „Svarið við hreinni þjóðern-
isstefnu var stofnun Sameinuðu þjóð-
anna og skuldbinding um að leita
sameiginlega svara við sameiginleg-
um vandamálum okkar,“ sagði hún.
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðu-
neytisstjóri forsætisráðuneytisins,
var fulltrúi Íslands á ráðstefnunni. Ís-
lenska ríkisstjórnin samþykkti í síð-
ustu viku að Ísland tæki þátt í af-
greiðslu samþykktarinnar í ljósi þess
að efni hennar væri innan þess laga-
ramma og framkvæmdar sem nú þeg-
ar sé í gildi á Íslandi og lokaútgáfa
hennar kalli ekki á lagabreytingar.
Sagði Ragnhildur í ávarpi á ráðstefn-
unni, að íslensk stjórnvöld fögnuðu
sérstakri áherslu í samþykktinni á
mannréttindi, kynjasjónarmið, rétt-
indi barna og aðgerðir gegn mansali
Harðar deilur
Deilur um samkomulagið hafa
blossað upp í nokkrum aðildarríkjum
Evrópusambandsins.
Þannig hætti einn af stuðnings-
flokkum belgísku ríkisstjórnarinnar
stuðningi við stjórnina í mótmæla-
skyni eftir að þing landsins sam-
þykkti að styðja samþykktina. Þá
sagði utanríkisráðherra Slóvakíu af
sér eftir að ríkisstjórn landsins sam-
þykkti að styðja málið.
Ýmis alþjóðasamtök, svo sem
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna,
Amnesty International og Alþjóða
Rauði krossinn hafa fagnað sam-
þykktinni og segja hana vera fyrsta
skrefið í átt til þess að vernda far-
endur.
„Okkur hefur ítrekað verið sagt, að
þessi samþykkt sé ekki lagalega bind-
andi og hafi ekki áhrif á fullveldis-
ákvarðanir ríkja í málefnum innflytj-
enda,“ sagði Francesco Rocca,
framkvæmdastjóri Alþjóða Rauða
krossins, á blaðamannafundi í Mar-
okkó. „En ef okkur er alvara með að
vilja leysa þetta vandamál þá verður
samkomulagið að minnsta kosti að
vera siðferðilega bindandi.“
258 milljónir farandmanna í heiminum árið 2017, samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna
Helstu fólksflutningaleiðir
Áfangastaðir flestra
farandmanna
Uppruni alþjóð-
legra farandmanna 2017
Heildarfjöldi alþjóðlega
farandmanna eftir svæðum
80 milljónir
78
Asía
Evrópa
58
25
10
8
Norður-Ameríka
Suður- og
Mið-Ameríka
Eyjaálfa
Afríka
Indland
Mexíkó
Rússland
Kína
Bangladesh
Sýrland
Pakistan
Úkraína
Filippseyjar
Bretland
Afganistan
Pólland
Indónesía
Þýskaland
Kasakstan
Svæði Palestínumanna
Rúmenía
Tyrkland
Egyptaland
Ítalía
Bandaríkin
16,6 milljónir
13 12,2
12,2
11,7
8,8
8,3
7,9
7,9
7
5,9
5,9
5,2
5
4,9
4
3,6
3,6
3,4
3,2
3,1
10,6
10
7,5
6,9
6
5,9
5,7
4,9
4,8
4,7
4,2
4,2
4,1
3,8
3,4
3,6
3,4
3
49,8 milljónir
Sádí-Arabía
Þýskaland
Rússland
Bretland
Furstadæmin
Frakkland
Kanada
Ástralía
Spánn
Ítalía
Indland
Úkraína
Tyrkland
Suður-Afríka
Kasakstan
Taíland
Pakistan
Jórdanía
Kúveit
Frá Rómönsku
Ameríku og
Karíbahafslönd-
um til Norður-
Ameríku
26 milljónir
Milli ríkja
í Afríku
19 milljónir
Frá Afríku
til Evrópu
9 milljónir
Frá Asíu
til
Evrópu
20 milljónir
Milli ríkja í
Evrópu
41 milljón
Frá Asíu
til
Norður-
Ameríku
17 milljónir
Frá Evrópu
til Norður
Ameríku
8 milljónir
Milli ríkja
í Asíu
63 milljónirFrá Evróputil
Asíu
7 milljónir
Asía
Afríka
Evrópa
Rómanska
Ameríka og
Karíbahafsríki
Norður-
Ameríka
Alþjóðlegir flutningar farandmanna
Heimild: UNHCR
Umdeilt samkomu-
lag um farandmenn
Siðferðilega bindandi, segir Alþjóða Rauði krossinn
KRINGLUNNI · SMÁRALIND
uti l i f. is
Hreyfanlegar
jólagjafir
Nike Polo bolur*
Til í fleiri litum
Verð 7.490 kr.
Nike toppur*
Verð 5.990 kr.
Nike hettupeysa*
Verð 15.490 kr.
Nike Polo bolur*
Góður í golfið
Verð 7.490 kr.
Nike þunn peysa*
Verð 5.490 kr.
Nike hettupeysa*
Til í fleiri litum
Verð 12.490 kr.
Nike álbrúsar*
Verð frá 6.990 kr.
Nuddbolti*
Verð 5.990 kr.
*Á meðan birgðir endast
Erlent