Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 48

Morgunblaðið - 13.12.2018, Síða 48
48 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is Gullsmiðir Sérfræðingar í trúlofunar & giftingarhringum Skoðaðu úrvalið á www.acredo.is A-1488-34 Demantshringur miðjusteinn 0,40 ct 187.479,- A-1313-1 Hringapar með demöntum 183.115,- A-1489-17 Demantshringur miðjusteinn 0,30 ct 153.849,- A-1597-1 Hringapar með demöntum 247.616,- A-1601-2 Hringapar /demöntum, miðjust. 0,30 ct 335.321,- A-1684-2 Hringapar með demöntum 215.479,- A-1695-4 Hringapar með demöntum 180.326,- A-1754 Hringapar með demöntum 361.943,- A-1774-1 Demantshringur miðjusteinn 0,40 ct 301.069,- A-1790-1 Demantshringur miðjusteinn 0,15 ct 231.739,- A-2026-6 Hringapar með demöntum 337.584,- A-2057-1 Demantshringur miðjusteinn 0,20 ct 133.449,- A-2074-2 1Hringapar með demöntum 226.452,- A-3003-1 Hringapar með demöntum 346.594,- - A-2084-13 Demantshringur miðjusteinn 0,25 ct 129.349,- A-3021-1 Hringapar með demöntum 327.426,- A-6006-1 Hringapar með demöntum 321.776,- S-1086-1 Hringapar með demöntum 111.107,- Stéttarfélag póst- manna, Póstmanna- félag Íslands, verður 100 ára á næsta ári. Í enn lengri tíma hafa póstmenn þjónað landsmönnum af ein- urð og fórnfýsi. Í dag eru póstmenn staddir á sérkennilegum stað. Margir ráðamenn landsins leggja sig fram um að tala niður póstinn og samkeppnisaðilar Íslandspósts leggja sig fram um að tala niður þjónustuna og matreiða samsær- iskenningar. Auðvitað hefur þessi umræða áhrif á póstmenn og það er ekki uppörvandi þegar ráðamenn tala með þeim hætti sem sést hefur að undanförnu. Oftar en ekki virðist sú umræða mótast af lítilli þekk- ingu á póstþjónustu heimsins og skuldbindingum sem þjóðríkið hef- ur undirgengist. Póstmenn eru láglaunastétt, helmingur þeirra er með laun um 350-380 þúsund. Stéttin hefur gengið í gegnum sára- ukafulla hagræðingu undanfarin misseri og starfsöryggið er lítið. Það er slæmt og ekki bætir úr það niður- rifstal sem dynur á póstmönnum frá ráða- og hagsmunagæslu- mönnum. Póstþjónusta heimsins er bundin í lög og reglur, líka á Íslandi þó stundum sé umræðan með þeim hætti að svo sé ekki. Fyrirtækið Íslandspóstur, áður helmingur af Póst- og símamálastofnun varð OHF 1997. Síðan þá hefur fyr- irtækinu ætlað að vera sjálfbjarga. Það er erfitt þegar greiða þarf með pakkasendingum og bréfa- magn hefur hrunið um helming. Þrátt fyrir að næstum öll lönd Evrópu leggi póstfyrirtækjum til fjármagn fyrir dreifingu á óarð- bærum svæðum hefur Ísland ekki stigið það skref. T.d. greiðir Nor- egur póstinum þar í landi millj- arða fyrir veitta þjónustu í dreif- býli. En enn og aftur þarf þá að minna ráðamenn þessa lands á hverjar skuldbindingar þjóðrík- isins eru samkvæmt alþjóðasamn- ingum. Alþjóða póstsambandið og ESB – EES setja reglur sem ber að fara eftir. Samkvæmt þeim reglum ber ríkið ábyrgð á grunn- póstþjónustu á Íslandi. Íslands- póstur og félagsmenn Póstmanna- félags Íslands eru í reynd verktakar hjá ríkinu. Fyrir þá verktöku hefur ríkið ekkert greitt og Íslandpósti gert að greiða alþjónustuna með sjálfs- aflafé. Flest ríki Evrópu hafa löngu snúið af þeirri braut og þar greiða sjóðir þjóðríkjanna fyrir al- þjónustuna samkvæmt reglum sem settar eru. Fréttir í fjölmiðlum hafa dregið fram þá staðreynd að alþjóðasamningar gera það að verkum að innibyggt tap Íslands- pósts á ári er um hálfur milljarður vegna Kínapakka. Vertakinn Íslandspóstur ohf. að fullu í eigu ríkisins á að fá greitt fyrir veitta þjónustu við þjóðríkið þrátt fyrir að svo sé. Þaðan hefur ekki komið króna. En alþingismenn sem talað hafa niður fyrirtækið hafa því miður lít- ið haft fyrir að kynna sér málin. Það er hreinlega óþægilegt að lesa skilningsleysi á eðli póstþjónust- unnar og hvernig hún þjónar. Hremmingar Íslandspóst bitna síðan á félagsmönnum Póstmanna- félags Íslands, það er erfitt að sækja kjarabætur til fyrirtækis sem berst í bökkum, sérstaklega þegar það fær ekki greitt fyrir lögbundna þjónustu. Burðargjöld standa ekki undir alþjónustunni og munu ekki gera það í framtíðinni. Þessum málum verður að koma í lag, það er lögbundið hlutverk Al- þingis að tryggja póstþjónustu á landsvísu á sambærilegum kjörum. Endurtek, Íslandspóstur er verk- taki og á að fá greitt fyrir þjón- ustuna á eðlilega hátt. Það væri lítill snjómokstur ef verktakar þyrftu sjálfir að greiða fyrir verkið. Það er góðlátleg ábending for- manns Póstmannafélags Íslands til alþingismanna, að þeir kynni sér lög og reglur um póstþjónustu samkvæmt alþjóða skuldbind- ingum. Þá kannski kemst umræðan á rétt ról og gripið verður til úrræða sem virka, það er tímasóun að tala vitleysu út í loftið í stað þess að koma að málum með festu og ein- urð. Íslendingar þurfa faglega og góða póstþjónustu og því er kom- inn tími athafna og lausna og sleppa niðurrifstali og sleggjudóm- um. Pósturinn – sorglegt skilningsleysi ráðamanna Eftir Jón Inga Cæsarsson » Alþjóðapóstsam- bandið og ESB – EES – setja reglur sem ber að fara eftir. Sam- kvæmt þeim reglum ber ríkið ábyrgð á grunn- póstþjónustu á Íslandi. Jón Ingi Cæsarsson Höfundur er formaður Póstmanna- félags Íslands. jonc@simnet.is Það er alkunna að á síðustu fimmtíu árum hefur fataiðnaður og skógerð verið að færast frá gömlu iðn- aðarlöndunum í Norður- og Mið-- Evrópu, fyrst til S-Evrópu en síðan til Asíu, fyrst Kína svo Bangladess, Indlands eða Kambódíu. Þetta geta allir staðreynt með að athuga merki- miða á fötunum sem þeir kaupa. Öll þessi útþensla hefur verið gerð til að halda framleiðslukostnaði í lág- marki, en nú bendir margt til að hugarfarsbreyting sé að verða bæði hjá neytendum, dreifingaraðilum og verkalýðssamtökum, sem virðast hafa komist að samkomulagi um að bæta kjör þeirra Asíukvenna sem aðallega sauma flíkurnar okkar. Planið er að stuðla að bættum kjörum kvennanna innanfrá með hjálp verkalýðsfélaga þar sem samið verði á jafnréttisgrundvelli um kjör og aðbúnað. Á móti lofa dreifingar- aðilar að kaupa vöruna þótt hún verði örlítið dýrari og verksmiðju- eigendur lofa að hlaupa ekki í annað ódýrara land með saumavélarnar. Ef þetta gengur eftir geta neyt- endur borið þessar flíkur með betri samvisku. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569- 1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Saumavélar á ferð um heiminn Maskínur Hvar verða fötin þín til? Allt um sjávarútveg
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.