Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 49
UMRÆÐAN 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Sófasett
Borðstofuborð
Stólar
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
Kommóður/hillur
o.m.fl.
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL VIKTOR
Hvíldarstóll
BELLUS VISBY
Hornsófi
KRAGELUND OTTO
KRAGELUND K371
Kragelund stólar
K 406
Ami
Grace
Manning
Highrock
Kelsey
Frá stofnun lýð-
veldisins 1944 hafa
ráðamenn beitt krón-
unni sem gjaldmiðli
fyrir landsmenn. Með
tímanum kom í ljós að
hagkerfi okkar væri
allt of lítið og þar með
allt of óstöðugt fyrir
traustan og öruggan
eigin gjaldmiðil.
Krónan mun hafa fall-
ið 40 sinnum frá 1950.
Við hvert gengisfall hafa miklir
fjármunir færst milli manna. Hef-
ur eigna- og skuldastaða margra
oft breyst mikið – líka vegna
þeirra okurvaxta sem ónýtri krónu
fylgja – án þess að þeir sem geng-
isfellingin bitnaði á hefðu neitt um
málið að segja eða fengju rönd við
reist.
Verst var þetta í hruninu 2008
þegar skuldir margra tvöfölduðust
og margir misstu aleiguna. Hrunið
lagði í raun líf margs góðs Íslend-
ingsins í rúst og hafa sumir ekki
beðið þess bætur enn. Óforskamm-
aðir bankastjórar halda t.a.m.
hundruðum fórnarlamba hrunsins
enn í gíslingu á svörtum lista.
Í tengslum við hrunið blöskrar
undirrituðum margt, bæði það sem
gerðist þá en ekki síður sú afstaða
þeirra ráðamanna sem halda því
fram að krónan sé eini rétti og
besti gjaldmiðillinn fyrir lands-
menn.
Bjarni Benediktsson hefur ítrek-
að haldið því fram að krónan hafi
komið okkur út úr hruninu þó að
allir menn sem málið skoða í al-
vöru og af fagmennsku hljóti að
sjá og skilja að það
var einmitt krónan
sem kom okkur í
hrunið.
Sumir myndu kalla
þetta að hafa enda-
skipti á sannleikanum.
Allar þær smáþjóðir
í Evrópu sem voru í
ESB og nutu styrks
evrunnar komust frá
bankakreppunni án
verulegra áfalla – með
skrámur – meðan
margir eða flestir Ís-
lendingar urðu fyrir alvarlegum
áföllum, sem kalla verður bein-
brot.
Lúxemborg, Írland, Eistland,
Lettland, Litháen, Malta, Slóvenía
og Kýpur eru dæmi um smærri
lönd sem sluppu frá kreppunni
„með skrekkinn“ og náðu sér fljótt
á strik aftur, þökk sé ESB, evr-
unni og Evrópska seðlabankanum.
Maðurinn sem keikur hefur ver-
ið að mæla með krónunni sagði
þetta í viðtali við Fréttablaðið
2011: „Ég neita því hins vegar
ekki að það er mjög erfitt að halda
myntinni stöðugri, jafn lítil og hún
er og viðkvæm fyrir ytri áhrifum.
Það má orða það svo að sveiflurnar
séu eins og fórnarkostnaður þess
að hafa smáa mynt …“
Fórnarkostnaður: hverju er ver-
ið að fórna, fyrir hvern og á kostn-
að hvers!? Það væri fróðlegt að fá
skýringu á því.
Ef Íslendingar ættu engan val-
kost í gjaldmiðlamálum mætti
skilja krónusinna en svo er ekki.
Íslendingar hafa átt aðgang að öfl-
ugasta og traustasta gjaldmiðli
heims, evrunni, um árabil.
Tólf evrópsk ríki gengu t.a.m. í
ESB á árunum 2004 til 2007. Er
ekki ósennilegt að Ísland hefði líka
getað tryggt sér aðild að ESB á
þessu tímaskeiði en afturhaldsöfl
landsins komu í veg fyrir það. Því
fór sem fór 2008.
Það er loks ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur sem áttar sig á
bráðri krónuhættunni, enda helj-
arstökk hrunsins rétt afstaðið, og
sækir um aðild að ESB 2009.
Því miður náðu svo þröngsýnis-
og íhaldsöflin aftur völdum í kosn-
ingunum 2013 og tilkynnti Gunnar
Bragi Sveinsson, sem var
utanríkisráðherra stjórnar Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar,
ESB í mars 2015 að Íslandi drægi
umsóknina til baka.
Þessir tveir menn, ásamt með
Bjarna Benediktssyni, ákváðu með
þessari tilkynningu að halda sér í
krónufarinu, þó að það hafi nánast
valdið þjóðargjaldþroti og leitt
ómælt böl yfir landsmenn nokkr-
um árum áður.
Ég spyr mig nú: hvar var dóm-
greind, framtíðarsýn og skilningur
þessara manna á hagsmunum Ís-
lendinga og þeirri alþjóðavæðingu,
sem löngu var byrjuð og ekki verð-
ur stöðvuð, þar sem menn þurfa að
skipa sér í flokk með frændþjóðum
sínum og sínum nánustu vina- og
samstarfsþjóðum – og hvar var
ábyrgðin gagnvart landsmönnum?
Það liggur fyrir að gífurlegar
eignatilfærslur hafa átt sér stað í
þessu landi, langt umfram það sem
gerist í öðrum siðmenntuðum lönd-
um, á sama hátt og það liggur fyr-
ir að krónan er höfuðorsök þessara
tilfærslna.
Hér má velta upp þeirri spurn-
ingu hvort gjörðir þessara manna
og annarra þeirra sem halda krón-
unni með öllum ráðum að lands-
mönnum samræmist stjórnarskrá
lýðveldisins?
72. gr. hljóðar nefnilega svo:
„Eignarrétturinn er friðhelgur.
Engan má skylda til að láta af
hendi eign sína nema almennings-
þörf krefji. Þarf til þess lagafyr-
irmæli og komi fullt verð fyrir.“
Hefur einhver þolandi geng-
isfellinga „fengið fullt verð fyrir“?
Ég held ekki. Þessa spurningu
þyrfti að kanna frekar. Eins
ábyrgð þeirra manna sem með öll-
um ráðum – líka blekkingum og
rangfærslun – hafa haldið krón-
unni að landsmönnum og nánast
neytt henni upp á þá í leit sinni að
völdum og stjórnunartækjum.
Síðasta óþurftarverk þessara
óábyrgu öfga- og íhaldsafla er nú
að reyna að gera EES-samning-
inn, sem gerði okkur kleift að rífa
okkur upp úr hruninu jafn fljótt og
vel og verða mátti með frjálsum og
tollalausum aðgangi að stærsta og
öflugasta markaði heims,
tortryggilegan.
Í umræðunni um þriðja orku-
pakkann skirrast þessir menn ekki
heldur við að hafa endaskipti á
sannleikanum.
Það er mál til komið að almenn-
ingur – kjósendur – refsi þessum
popúlistum og ábyrgðarlausu
blekkingaröflum.
Að hafa endaskipti á sannleikanum
Eftir Ole Anton
Bieltvedt »… allir menn, sem
málið skoða í alvöru
og af fagmennsku, hljóta
að sjá og skilja að það
var einmitt krónan sem
kom okkur í hrunið.
Ole Anton Bieltvedt
Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu-
maður og stjórnmálarýnir.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.