Jólastjarnan - 01.12.1922, Page 18

Jólastjarnan - 01.12.1922, Page 18
16 anum undir fótunum. Greinamar hjengu á trján- um, þunglamalegar og máttvana, undir þungum og kristallsglærum ísklumpum frostþokunnar. Og hann hjelt áfram að reika fram og aftur inn- an um hinn óteljandi trjáafjölda skógarins, og nam við og við staðar við eitthvert nýgræðings- furutrjeð, og athugaði það. „þetta mundi nú einmitt vera hið rjetta“, sagði hann loks við sjálfan sig. En mátti hann það? Hjer var þó stranglega bannað að gjöra hin minstu skóg- arspj öll. En í kvöld hafði Jesúbamið sent hann hingað, bamið, sem hafði látið skóginn vaxa svo fagran og ríkulegan, og hjer hafði faðir hans gróðursett og ræktað margar þúsundir trjáa. Hversvegna gat það þá verið synd að hnupla einu jólatrje handa henni Magdalenu litlu? Hann þreif upp vasahnífinn, — eitt öflugt hnífs- bragð — og angandi og rennilegt jólatrje lá við fætur hans. Alt í einu kvað við reiðióp og tveir menn vopn- aðir veiðibyssum stóðu frammi fyrir honum. það var skógareigandinn sjálfur, von Gallheim, og skógarvörður hans. „Loks höfum við þó hendur í hári þínu, þrem- illinn þinn“, öskraði skógarvörðurinn. „í mörg ár hafa illar hendur verið að verki í skógi vomm. Hjer er þá þjófurinn". „0, o, þið þurfið ekki að kalla mig því nafni“, þrumaði Lorenz. „Jeg er enginn þjófur, herrar mínir. Jeg hefi aldrei á æfi minni hreyft við

x

Jólastjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólastjarnan
https://timarit.is/publication/1336

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.