Jólastjarnan - 01.12.1922, Side 22

Jólastjarnan - 01.12.1922, Side 22
20 „Hjálpi oss öllum“, sagði þá einn af leitarmönn- unum. „Jeg held að skaparinn ætli að láta okkur bera hjer beinin“. III. „þetta eru döpur jól“, andvarpaði einnig kon- an hans Kola-Lenz, í litla húsinu í skóginum. Hún gekk út að glugganum og hraðaði sjer fram að dyrunum í hvert skifti, þegar eitthvert hljóð heyrðist fyrir utan; en enginn kom. „Hann pabbi kemur líklega of seint til Jesúbamsins", sagði Magdalena. Móðirin hristi höfuðið. „Til Jesúbamsins kemur hann ekki of seint, en jeg hefi aldrei þráð hann eins og nú. það hefir verið yfir mjer einhver óhugur í allan dag. Farðu að hátta þig, Magdalena“. það var klappað á rúðuna. „Gott kvöld“, var sagt fyrir utan. En það var ekki hann. Skógarhöggsmaður einn, sem einhverra hluta vegna var orðinn seinn í því, slangraði þama fram hjá og sendi tóninn inn um gluggann. „þið þarna, hú. Hvað hefir hann gjört?“ „Hver?“ „Hann“. „Hvað, hvað ertu að segja? Hvað meinar þú?“ kallaði konan hrædd, og hraðaði sjer út að glugg- anum. „Veistu hvar hann er?“ ,,Ó, jeg hefi nú sjeð til þeirra. Hatturinn slútti reyndar í meira lagi niður á ennið, en jeg þekti hann nú samt, og ekki mun hann hafa haft laus- ar hendurnar“.

x

Jólastjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólastjarnan
https://timarit.is/publication/1336

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.