Jólastjarnan - 01.12.1922, Page 39

Jólastjarnan - 01.12.1922, Page 39
37 mamma, „jeg er ekki veikur, ofurlítið þreyttur kannske •— það er alt og sumt“. ,Blessað barnið! J>ú leggur of mikið að þjer. Ó, að jeg skuli vera svona ónýt“, sagði frú Lind. „Nei, mamma, segðu þetta ekki, drektu heldur mjólk- ina og borðaðu brauðið". „það er hart að vera fátækur", hjelt frú Lind áfram, „og þó er það ekki verst af öllu“. „Jeg veit hvað verst er af öllu“, sagði Elsa litla. „Kenslukonan okkar sagði í dag, að það væri betra að vera ráðvandur og fátækur heldur en ríkur og óráð- vandur“. „Já, það er alveg satt, Elsa mín“, sagði mamma henn- ar og strauk brúnu, hroknu hárlokkana hennar. „Mundu altaf eftir því, að Guð elskar fátæklinginn ekki síst, já, öllu fremur, en ráðvandur verður hann að vera og góður. — En heyrðu mig, Frans minn! það gengur eitt- hvað að þjer, þú ert svo fölur". „þjer sýnist það bara, mamma“, sagði Frans. „Komdu, Elsa, nú skulum við láta mömmu vera í friði. Far þú að sofa, en jeg stekk eftir skamtinum, svo sefurðu vært í nótt, elsku mamma, og verður hressari á morgun". „þakka þjer fyrir, góði drengurinn hennar mömmu“, sagði móðir hans og klappaði á hendina hans. „Hvernig ætli færi, ef þú værir ekki, sem altaf ert svo góður og nærgætinn? — Hvað sagði verkstjórinn annars? Var hann reiður?“ „Jeg hefi ekkert talað við hann i dag“, svaraði Frans þungt hugsandi. „Ekki talað neitt við hann! Nú, en þú fjekst þó pen- ingana hjá honum“. „Já, já, mamma", sagði Frans og lirökk við; — „já,

x

Jólastjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólastjarnan
https://timarit.is/publication/1336

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.