Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 6
6 17. maí 2019FRÉTTIR
P
jetur og Mayeth Gud-
mundsson hafa verið gift
í tæp ellefu ár og mestan
hluta hjónabandsins hafa
þau búið erlendis. Saman eiga þau
tíu ára gamla dóttur. Pjetur er ís-
lenskur ríkisborgari en Mayeth frá
Filippseyjum. Fjölskyldan hefur
búið saman í Kópavoginum síð-
an í fyrra en þann 6. maí ákváðu
starfsmenn Útlendingastofnunar
að synja henni um dvalarleyfi og
vísa úr landi vegna þess að ekki var
hægt að sýna fram á nægar tekjur
heimilisins. Ekki er hægt að vísa
Pjetri og dótturinni, Aimee Ás-
laugu, úr landi en Mayeth var gert
að yfirgefa landið innan 15 daga,
ellegar verði það gert með valdi.
Hamingjusamlega gift
„Við kynntumst fyrir tólf eða
þrettán árum. Þá bjó ég í Noregi
og starfaði sem sjómaður. Síðasta
sumar fannst okkur vera rétti tím-
inn fyrir okkur að búa öll saman
hérna á Íslandi og þær komu í júní
eða júlí,“ segir Pjetur í samtali við
DV.
Seinna um sumarið, þann 27.
ágúst, lagði Mayeth inn umsókn
um dvalarleyfi til Útlendingastofn-
unar, sem maki Íslendings. Pjetur
segir að öllum nauðsynlegum
pappírum hafi verið skilað inn,
þar á meðal staðgreiðsluyfirliti
yfir tekjur ársins. Um haustið hóf
dóttirin skólagöngu í Kópavogi.
„Hún vildi auðvitað geta
fengið sér vinnu og að við gæt-
um lifað eðlilegu heimilishaldi
eins og flestir aðrir. En hún fær
ekki kennitölu nema hún sé kom-
in með dvalarleyfi. Við erum ham-
ingjusamlega gift. Við byggðum
heimili á Filippseyjum en við vilj-
um búa hérna og að dóttir okk-
ar fái tækifæri til að læra íslensku
og kynnast rótum sínum hérna. Ég
þekki fólk sem hefur gengið í hent-
ugleikahjónaband. En við erum
ekki að því. Núna er henni gert
að yfirgefa landið, annars verður
hún þvinguð burt. Þá má hún ekki
koma aftur í minnst tvö ár.“
Bréfið sent á íslensku
Pjetur starfaði í yfir þrjá áratugi á
sjónum en fyrir fjórum árum varð
hann öryrki, um það leyti sem
hann sjálfur flutti til Íslands. Hann
fékk heilahimnubólgu og síðan
sýkingu sem krafðist þess að skera
varð upp í heila og fjarlægja æða-
gúlp. Hefur hann reglulega feng-
ið mikil höfuðverkjaköst síðan.
Hann fær þó aðeins hálfar bætur
frá Tryggingastofnun, rúmlega 157
þúsund krónur á mánuði. Mayeth
og dóttirin hafa allan hjóna-
bandstímann búið á Filippseyjum
og Pjetur reglulega flogið þangað.
„Þeir segja að þetta sé ekki nóg
fyrir okkur til að framfleyta okkur,
en ég hef nú geta lifað af þessu.
Við erum í ódýru húsnæði og við
græjum okkur. Það er líka nýfall-
inn dómur erlendis sem mun hafa
áhrif hér um bætur fólks á milli
landa og ég á að fá 100 prósent
bætur á næsta ári, segja þeir hjá
Tryggingastofnun. Verður þá öll-
um greitt samtímis og afturvirkt.
Konan mín vill líka vinna og vill
hafa möguleikann til að ferðast á
milli Íslands og Filippseyja. Við
eigum gott heimili þar líka.“
Pjetur segir að formsfram-
kvæmd Útlendingastofnunar hafi
verið með nokkrum ólíkindum.
Fyrir það fyrsta þá hafi úrskurður-
inn tekið átta mánuði og fjölskyld-
an lifað í óvissu allan þann tíma.
Þá hafi Mayeth sent inn umsókn-
ina á ensku, þar sem hún talar ekki
íslensku, en ákvörðunin var send
til hennar á íslensku. Þar sem Pjet-
ur hafi ekki formlega verið skráður
sem umboðsmaður þá hafi hann
ekki mátt sjá neina pappíra, en
vitaskuld lásu þau bréfið saman.
„Þær voru báðar grátandi þegar
komið var með bréfið í ábyrgðar-
pósti klukkan tíu í gærkvöldi, og
gátu ekkert sofið um nóttina. Ég og
dóttir okkar erum náin en hún er
meira háð móður sinni. Þessi úr-
skurður þýðir að hún mun í reynd
þurfa að hætta í skólanum hérna
og fara með.“
Heimilt að víkja frá skilyrðum
vegna veikinda og sanngirnisraka
DV sendi fyrirspurn til Útlendinga-
stofnunar með nægum fyrirvara
og enn hafa ekki borist svör, önnur
en þau að vísað var í upplýsingar
um framfærslu. Þórhildur Ósk
Hagalín upplýsingafulltrúi sagði
að trygg framfærsla væri eitt af
grunnskilyrðunum fyrir veitingu
dvalarleyfis, samkvæmt lögum um
útlendinga.
„Útlendingastofnun miðar lág-
marksframfærslu við grunnfjár-
hæð fjárhagsaðstoðar Reykja-
víkurborgar. Upphæðir miðast
við tekjur fyrir skatt. Einstakling-
ur 189.875 kr. á mánuði. Hjón
284.813 kr. á mánuði. Athugið að
um sambúðarmaka gildir fram-
færsluviðmið fyrir einstakling.
Viðbótarframfærsla vegna fjöl-
skyldumeðlims 18 og eldri, 94.938
kr. á mánuði. Samkvæmt. 57. grein
laga um útlendinga er heimilt að
víkja frá skilyrði um trygga fram-
færslu hafi framfærsla verið ótrygg
um skamma hríð vegna atvinnu-
leysis, slyss eða veikinda eða
vegna sambærilegra ástæðna og
eins ef ríkar sanngirnisástæður
mæla með því.“
Mál Pjeturs og Mayeth er ekki
það fyrsta sinnar tegundar sem
kemur upp á Íslandi. Árið 2010
var fjallað um sambærilegt mál í
DV. Átti þá að sundra fjölskyldu
á Bolungarvík í sundur vegna
ónógra launa en eiginkonan í því
tilviki, Thais de Freitas, var frá
Brasilíu. Eiginmaðurinn, Valur
Magnússon, gat ekki sýnt fram á
nægar tekjur en hann vann í fiski
og lítill afli hafði veiðst á miðunum
þetta árið. Áttu þau saman tvö ung
börn á þeim tíma. Eftir umfjöll-
unina fór svo að fjölskyldan mátti
búa saman hér á landi. n
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
HJALLABRÚN 25, 810 HVERAGERÐI
37.600.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Byggingarlóð
160 M2
6
SÖLKUGATA 20, 270 MOSFELLSBÆR
69.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Raðhús
210 M2
5
BORGARHOLTSBRAUT 15, 200 KÓPAVOGUR
74.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Einbýli
155 M2
4
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT
„Þessi úrskurður þýð-
ir að hún mun í reynd
þurfa að hætta í skólanum
hérna og fara með
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Útlendingastofnun sundrar fjölskyldu
M
Y
N
D
: H
A
N
N
A
/D
V
n Hamingjusamlega gift í meira en áratug n Eiga tíu ára gamla dóttur
n Geta ekki sýnt fram á nægar tekjur
Búa í Kópavogi Mayeth, Aimee
Áslaug og Pjetur Gudmundsson.