Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Qupperneq 42
42 FÓKUS - VIÐTAL 17. maí 2019 breskum skóla, á þeim tíma var ég með breskan kærasta, og þetta hékk saman, að ég gæti búið hjá honum af því skólinn var dýr. Svo lauk því sambandi og draumnum um skólann líka. Þannig að örlög- in hafa valdið því að ég er eins og ég er hér í dag.“ Skemmtileg störf komu í veg fyrir útskrift Sambandsslitin við þann breska voru ákveðinn vendipunktur og langt var í að Margrét myndi klára BA-námið í enskunni. „Ég var búin að hjakka í náminu í þrjú ár og frekar langt í að ég myndi klára. Ég var að blogga á þessum tíma og maður hjá Iceland Express hafði samband við mig, sagði að ég væri skemmtilegur penni og bauð mér vinnu við að skrifa fyrir fyrirtækið. Ég var líka að vinna í Þjóðleikhús- inu við að selja kaffi í hléum, spila sem plötusnúður og kenna dans í Kramhúsinu. Þannig að það var rosalega lítill tími fyrir námið því öll störfin mín voru svo skemmti- leg!“ segir Margrét. Drottning kynnist kabarettsenunni Í sömu viku og sá breski hvarf úr lífi Margrétar kom happdrættis- vinningur frá Háskóla Íslands í hendur hennar. „Ein milljón var mikill peningur fyrir 23 ára konu. Ég sá fyrir mér að ég þyrfti ekki að vinna um sumarið eins og alltaf þannig að ég fór að skoða hvort ég gæti verið í New York, en ég hafði heimsótt borgina einu sinni áður og fannst hún geggjuð.“ Svo heppilega vildi til að Mar- grét hafði flutt karókíhóp frá borginni inn nokkrum mánuð- um áður og átti því fjölda vina í New York og einn þeirra var að fara í Evrópureisu og leigði Mar- gréti herbergið sitt í þrjá mánuði. Margrét fór á uppistandssýningar og karókí, fór í masterclass-tíma í magadansi og kynntist fjölda kabarettlistafólks. Þeirra á með- al var Reggie Watts, sem starfar í dag sem hljómsveitarstjóri í þátt- um James Corden, The Late Late Show. „Þetta tímabil var fullkomið, dollarinn var 80 krónur og ég lifði eins og drottning og var að fíla mig í tætlur. Watts spurði hvort ég væri eitthvað að sýna úti og þegar ég sagðist ekki vera með leyfi til þess, þá sagði hann að það væri alveg horft fram hjá því í þessum bransa, ef það væri í stuttan tíma og ég væri með flugmiða heim,“ segir Margrét sem var ráðin í tvær vikur á Box, stórum, þekktum og vinsæl- um kabarettstað. „Þar kynntist ég heimi sem ég vissi ekki að væri til, dragheiminum, fullorðinssirkus og fleira. Þarna kynntist ég fólki sem varð nokkrum árum seinna risastór nöfn, eins og Lady Gaga sem ég hoppaði upp úr köku með. Eitt kvöldið var ég látin leysa af, sett í pínubrækur og brjóstadúska og ég blés flórsykri yfir mini Mari- lyn Manson og ég hugsaði að þetta væri það skemmtilegasta sem ég hefði gert. Ég sá að það er hægt að eiga stórkostlegt líf með því að skemmta í 20 mínútur á kvöldi. Þetta breytti gjörsamlega lífi mínu.“ Sirkussenan á Íslandi verður að veruleika Í lok sumarsins langaði Margréti ekki heim, var miður sín að vera að yfirgefa klúbba- og kabarettsen- una og var grátandi í kveðjupartí- inu sínu. Vinir hennar stöppuðu í hana stálinu og sögðu hana vera að hugsa þetta rangt. „Þú ert með tækifærið sem við vildum óska að við hefðum. New York verður alltaf hérna fyrir þig. Þú ferð heim til Íslands og býrð til þína rödd þar, sögðu þau við mig og eftir að ég fór heim höfðu þau reglulega sam- band og spurðu hvort ég væri byrj- uð,“ segir Margrét, sem gerði ekk- ert fyrr en hún sá auglýsingu um ókeypis sirkustíma á sunnudögum í Kramhúsinu. „Þetta er fólkið,“ hugsaði ég og úr þessum hópi varð Sirkus Ís- lands til, sem Lee Nelson stofnaði. Ég vann með þeim í tíu ár og við bjuggum líka til fullorðinssirkus- inn Skinnsemi, sem ég er ofboðs- lega stolt af að hafa komið að,“ segir Margrét, sem þó hætti til að sinna öðru. „Það var ekki endi- lega takmarkið að vinna við þetta, heldur að búa til platform og gera eitthvað meira fyrir skemmtanalíf- ið en fara bara á barinn og detta í það. Þótt ég hafi hætt, þá er mikið samstarf á milli okkar og við erum að lána skemmtikrafta hingað og þangað og öll að vinna saman að því að þessi sena sé til staðar.“ Aðspurð hvort að ekki sé kom- inn tími til að kabarettsenan eignist sinn fasta stað, sitt eigið hús, segir Margrét að það væri draumurinn. „Við erum að vinna í því á fimm ára planinu. Reykjavík kabarett er í samstarfi við Slipp- er Room í New York, sem tek- ur svona 200 manns þegar þétt er setið. Hann er með áhorfenda- palla á tveimur hæðum og þar er pláss fyrir loftfimleika og af því að lofthæðin er mikil þá er hægt að vera með eld, það er dansgólf og það eru ljós og reykvélar og frábær kokteilalisti, sem er mjög mikilvægt. James, sem hannaði staðinn, langar að koma hingað og hanna stað hér, þetta eru allt miklir draumar en það hefur svo oft gerst í mínu lífi að ég hef átt drauma og svo rætast þeir, þannig að ég hef fulla trú á að þetta muni gerast,“ segir Margrét. „Ég var að koma heim úr Evrópuferðalagi þar sem ég kom fram í flottum leikhúsum, en upp- áhaldssýningarnar voru eins og í Eistlandi þar sem voru 50 manns í salnum og það var bara pakkað. Og í Berlín þar sem var reykt inni og sviðið var ógeðslega klístrað og það voru bara 40 manns í stöpp- uðum áhorfendasalnum og það var frábært. Fjaðravængirnir mín- ir lykta eins og Kaffibarinn árið 1999 og það er bara æðislegt,“ segir Margrét. „Þannig að þetta má ekki vera of flott og það er bara áskorun fyrir alla og ég fæ svo mikla fróun úr því að segja, „það er uppselt“.“ Áreitni jakkalakka í dauðateygjum Margrét hefur áður tjáð sig í viðtöl- um um kynferðislega áreitni sem hún hefur orðið fyrir í starfi sínu, en hún segir hana hafa minnkað eftir að hún byrjaði að tjá sig um hana opinberlega. „Það er hins vegar ekki út af mannvirðingu við mig heldur af því að þeir vilja ekki setja fyrirtæki sitt í vonda stöðu. Eftir að áreitnin varð mikil, þá tek ég með fylgdarmann með mér, rukka meira fyrir og greiði honum síðan laun.“ Áreitnin var ekki mest á þeim tímum sem mætti halda, á sýn- ingum að kvöldi til þegar vín var haft um hönd. „Í burlesque er þetta mjög skýrt: hér er ég, hér er sviðið, hér eru áhorfendur og svo eru það fleiri konur sem mæta á sýningar en karlar. Áreitnin var mest og oftast þegar ég var með fyrirlestra eða að stjórna ráðstefn- um að degi til eða að vinna sem plötusnúður. Samkvæmt minni upplifun tengt störfum sem áður voru karlastörf, en ungar, sterkar og klárar konur eru að koma inn í. Þessir menn eru ekki steríótýpan af dónaköllum sem einhverjir hafa kannski. Nei, þetta eru menntaðir jakkalakkar sem eru hræddir um stöður sínar og áreitnin er svona síðustu dauðateygjur þeirra til að toga mig niður og sýna að þeir hafi yfir höndina.“ Úr skriftu á skjá allra landsmanna Á sirkustímanum hafði Margrét einnig tíma fyrir allt þetta RÚV- stúss eins og hún orðar það sjálf. „Ég frétti að það væri laust starf og sótti um, en besti vinur minn, Atli Viðar, var að vinna sem skrifta í sunnudagsþáttum Evu Maríu og var að hætta. Ég starfaði sem skrifta í hálft ár og ef einhver er að lesa þetta sem vill byrja í fjölmiðlum þá er skrifta besta leiðin inn, sérstaklega ef þú vilt verða dagskrárgerðarmann- eskja í sjónvarpi. Þú lærir allt: hvernig hugmyndirnar verða til, hvernig þú átt að framkvæma þær, við hvern þú átt að tala innan- húss, lærir alla tækniterminólóg- íu, kynnist öllu staffinu af því þú ert bara í blóðrásinni. Síðan bað Sigmar í Kast- ljósinu mig um að leysa Ragnhildi Steinunni af, en hún var að fara í fæðingarorlof. Honum fannst við Heiða skemmtilegar og með góða efnisnálgun. Síðan, þegar Ragn- hildur Steinunn kom aftur, kom í ljós að starfið á Rás 2 beið ekki eftir mér og ég fékk smá panikkkast, en Sigmar stóð við bakið á mér sem endranær, hann er klettur þessi maður, og ég fékk að vera áfram og var í Kastljósinu árin 2010–2016. Það var ótrúlega gaman að vera í Kastljósinu, en það eyði- lagði mig þó fyrir lífstíð, ég held að ég geti aldrei aftur verið í 9–5 vinnu eins og þú þekkir eflaust,“ og blaðamaður kinkar kolli og skilur fullkomlega hvað Margrét á við. „Maður þrífst á því að enginn dagur er eins, alltaf að tala við nýtt og nýtt fólk og maður sýgur í sig gleðina og dugnaðinn í fólk- inu sem maður er að tala við,“ seg- ir Margrét og nefnir að á þessum árum var Kastljósið, sem dæmi, að opinbera barnaníðinga, með sam- starf við Wikileaks og fleira. „Þó að ég væri mest að tala við einhverja hunda með sólgleraugu og popp- hljómsveitir þá fann ég að mað- ur var hluti af mikilvægu batteríi. Samstarfið var gott, og að kynnast fólki eins og Agli Eðvarðs, og vinna náið með Brynju og Þóru, fólki sem er miklar fyrirmyndir, það er mikilvægt fyrir unga konu og ég hefði aldrei viljað sleppa þessu þótt ég hefði orðið sár þegar ég var látin fara. En ég væri ekki hér í dag ef Kastljósið hefði ekki komið til, bæði að fá vinnuna og að missa hana, af því að ég veit að ég gæti ekki veislustýrt eins mikið og ég geri nema af því fólk man eftir mér sem stelpunni úr sjónvarpinu.“ Miðborgarbarn alið upp í kær- leika og kristilegum gildum Margrét er uppalin á Bergstaða- stræti, býr núna á Óðinsgötu og MATSÖLUSTAÐUR SKEMMTISTAÐUR RÁÐSTEFNUR ÁRSHÁTÍÐIR VEISLUR RÁIN ER ALHLIÐA VEITINGAHÚS Í REYKJANESBÆJARhjarta Gengin 20 vikur Margrét er glæsileg á meðgöngunni. „Lífsgleði gefur svo mikið“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.