Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 50
50 PRESSAN 17. maí 2019
Á
mánudaginn voru 300 lík-
amsvefir úr fórnarlömbum
nasista jarðsettir í Berlín.
Það voru borgaryfirvöld
sem stóðu fyrir þessu til að heiðra
minningu hinna látnu. Vefirnir
voru úr fólki sem nasistar tóku af
lífi vegna pólitískra skoðana þess.
Líkamsvefirnir fundust í dánar-
búi Hermanns Stieve, læknis og
prófessors við Charité-háskóla-
sjúkrahúsið. Hann lést 1952 en
ættingjar hans uppgötvuðu þetta
vefjasafn fyrir þremur árum.
184 lík
Stieve starfaði með nasistum til að
fá lík hjá þeim til rannsókna. Hann
fékk 184 lík frá þeim, aðallega
kvenmannslík, lík fólks sem var
tekið af lífi vegna pólitískra skoð-
ana. Líkamsvefirnir voru geymdir
í litlum svörtum kössum á heimili
Stieve og voru sumir þeirra merkt-
ir með nafni. Þegar líkamsvef-
irnir fundust voru þeir afhentir
Charité-háskólasjúkrahúsinu. Það
fól síðan minningarmiðstöð þýsku
andspyrnuhreyfingarinnar að
rannsaka sögu þeirra.
Rannsóknin leiddi í ljós að lík
fólksins höfðu verið sótt af bílstjóra
sem fór með þau til Stieve, stund-
um bara örfáum mínútum eftir að
fólkið var tekið af lífi í Plötzensee-
fangelsinu. Stieve krufði síðan
líkin og hlutaði í sundur áður en
hann brenndi þau og lét hverfa
sporlaust. Tæplega 3.000 manns
voru tekin af lífi í Plötzensee á
valdatíma Hitlers. Fólkið var háls-
höggvið eða hengt.
Hélt nákvæma skrá
Þrátt fyrir að Stieve hafi losað sig
við líkin á leynilegan hátt leyndi
hann ekki starfsemi sinni, því
hann hélt nákvæma skrá yfir þau
og hvað hann gerði við þau. Aðal-
áherslu lagði hann á að rannsaka
æxlunarfæri fólks. Niðurstöður
rannsókna hans voru meðal þeirra
fyrstu sem bentu til að stress, af
völdum þess að hljóta dauðadóm,
gæti truflað tíðahring kvenna.
Sum af fórnarlömbunum voru
vel þekkt í Þýskalandi, þar á meðal
13 konur úr andspyrnuhreyfingu
kommúnista.
Ákveðið var að jarðsetja líkams-
vefina því fórnarlömbin voru
aldrei jarðsett, og því fengu ætt-
ingjar þeirra aldrei neina vitneskju
um hinsta hvíldarstað þeirra.
Stieve hafði aðgang að líkum
karlmanna, sem voru teknir af lífi,
áður en nasistar komust til valda
því konur voru ekki teknar af lífi
fyrr en Hitler komst til valda. Hann
var því byrjaður á verkefni sínu
löngu áður en nasistar komust
til valda en vílaði ekki fyrir sér
að starfa náið með þeim til að
fá nægilega mörg lík til að geta
stundað rannsóknir sínar. Hann
var ekki sóttur til saka fyrir stríðs-
glæpadómstóli að stríðinu loknu
því hann var ekki félagi í nasista-
flokknum. nVilko.is • Sími 452 4272 • Húnabraut 33 • 540 Blönduósi
Netverslun með
stærri einingar
Borgaryfirvöld í Berlín
heiðra fórnarlömb nasista
n Jarðsetja líkamsvefi líflátins fólks n Fundust í dánarbúi prófessors
„Sum af
fórnar
lömbunum voru
vel þekkt í Þýska
landi, þar á með
al 13 konur úr
andspyrnuhreyf
ingu kommúnista.
Hermann Stieve Þýskur
líffærafræðingur.
Plötzensee-fangelsið Þar sem Stieve fékk líkin.
Mildred Fish Harnack Eitt af
fórnarlömbunum.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is