Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Qupperneq 10
FRÉTTIR10 21. ágúst 2019 L ögreglumenn í dreifbýli þurfa oft á tíðum að takast á við miklar áskoranir, enda al- gengt að þeir séu einir á vakt og hafi umsjón með stóru svæði. Sumir kalla aðstæðurnar mann- skemmandi. Oft er langt í næstu lögregluaðstoð eða aðra við- bragðsaðila þar sem um getur ver- ið að ræða aðstoð frá nærliggjandi bæjarfélagi. Lögreglumenn sem starfa í litl- um bæjarfélögum þurfa oft að hafa afskipti af fólki sem þeir síð- an hitta í sundlauginni eða mat- vörubúðinni. Þeir verða oft þekkt- ir í samfélaginu og finnst þeir vera undir smásjá almennings, sem getur valdið félagslegri einangrun. Þess eru dæmi að lögreglumenn forðist að fara út á skemmtanalífið vegna áreitis. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum lokaverkefn- is Rebekku Rúnar Sævarsdóttur og Sifjar Þórisdóttur til BA-gráðu í lögreglu og löggæslufræði. Í tengslum við rannsóknina ræddu þær við sex lögreglumenn á fer- tugs-, fimmtugs- og sextugsaldri sem allir eiga það sameiginlegt að hafa reynslu af löggæslustörf- um í dreifbýli. Lögreglumennirnir voru sammála um að það væri oft á tíðum meira krefjandi að starfa í dreifbýli en þéttbýli og ástæður þess væru fjölþættar. Allir í hópnum hafa mikla reynslu af því að vera einir á vakt og voru sammála um að ákveðin áhætta fylgi því þegar lögreglu- maður þarf að sinna krefjandi og jafnvel hættulegum verkefnum einn og óstuddur. Þeir voru einnig allir sammála um að þeir þyrftu mikið að treysta á sjálfa sig og eig- in reynslu. Oft er langt í næsta bæjarfélag sem þýðir að ef lög- reglumenn þurfa aðstoð gætu þeir þurft að bíða í allt að 30 mínútur og jafnvel allt upp í eina til tvær klukkustundir. Það gæti jafnvel komið upp sú staða að lögreglu- maður þyrfti að keyra 200 til 350 kílómetra til að sinna útkalli. Einn úr hópnum orðar það þannig: „Þú hefur engan til þess að hringja í nema sjálfan þig.“ Einn úr hópnum nefndi sem dæmi að ef hann væri með hand- tekinn einstakling þyrfti hann, í nánast öllum tilfellum, að fá frek- ari aðstoð frá öðrum lögreglu- mönnum úr nærliggjandi bæj- arfélögum til að sækja þann handtekna. Ástæðan væri sú að hann væri einn á vakt og vildi ekki fara úr bænum þar sem hann væri eini lögreglumaðurinn í bæjarfé- laginu. Annar lögreglumaður nefndi sem dæmi að eitt skipti hefði hann þurft að keyra í 40 mínútur í útkall þar sem tilkynnt var um alvarleg slagsmál og hann einn á vakt. Var hótað limlestingu „Ég veit hvar þú átt heima“ er setn- ing sem margir lögreglumenn kannast við en lögreglumenn þurfa oft að sæta hótunum í starfi sínu og geta lent í því að öryggi þeirra, og jafnvel fjölskyldu þeirra, sé ógnað. Þannig nefndu fjórir úr hópn- um að þeir hefðu lent í því að vera hótað illilega og að fjölskyldu þeirra hefði verið hótað. Einn sagðist hafa lent í því að honum og fjölskyldu hans var hótað lim- lestingum en sá einstaklingur fékk dóm fyrir hótanir gegn fjölskyldu hans. Annar úr hópnum sagðist tvisvar sinnum hafa lent í því að báðir bílarnir hans hefðu verið rispaðir. Þá sögðust þrír af lögreglu- mönnunum einnig hafa orðið virkilega hræddir um eigið ör- yggi í starfi. Þeir greindu frá því að hafa lent í verkefnum þar sem þeir óttuðust um sitt eigið öryggi og voru ekki vissir um hvernig málið myndi leysast. Einn úr hópnum orðaði það þannig: „Þú veist aldrei hvar þú hefur einstaklinginn sem þú ert að díla við.“ „Hvað er ég komin í?“ Fjórir af lögreglumönnunum sögðu að þegar þeir byrjuðu að starfa í dreifbýli hefði þeim verið hent í djúpu laugina. Einn nefndi sem dæmi að á fyrstu vöktunum hans sem lög- reglumaður hefði hann til dæmis þurft í útkall vegna banaslyss. Lögreglumennirnir nefndu einnig að á þeim tíma sem þeir byrjuðu í lögreglunni hafi verið mikið um dansleiki og fólk gerði þá fátt annað en slást. Þegar þeir komu heim eftir fyrstu helgarvakt- irnar hefðu þeir hugsað með sér „hvað er ég komin í?“ Síðan voru sunnudagsvaktirnar notaðar til að sauma „spælana“ aftur á lögreglu- búninginn þar sem þeir voru all- ir sundurtættir og rifnir eftir helg- arvaktirnar. Margir úr hópnum voru sam- mála um að það væri mjög krefjandi að starfa einir og að manneklan innan lögreglunn- ar bitnaði hvað mest á löggæslu í dreifbýli, þótt vissulega væri mannekla alls staðar í lögreglunni á Íslandi. Einn viðmælandinn sagði að fíkniefnamisferli hefði fjölgað mikið í sínu bæjarfélagi og sagði þá: „hvað á einn gamall karl að gera í svona málum?“ Þá kemur einnig fram að lög- reglumenn í dreifbýli þurfi nauðsynlega að búa yfir þeirri hæfni að geta talað við fólk, hugg- að það og fengið það til að gera það sem þeir vilja, til að mynda vegna þess að þeir nota ákveðna sálfræði og eyða umtalsvert meiri tíma í að tala við fólk, enda séu þeir oft- ar en ekki einir á vakt og langt í næstu bjargir. Þá er mikilvægt að þeir þekki fólkið í samfélaginu vel og rækti gott samband við það. Oft þurfa þeir að hafa afskipti af fólki sem þeir annaðhvort þekkja eða eða hitta úti í búð eftir vakt eða í pottinum í sundlauginni. Ekki síst vegna þessa, lögðu þeir sig alla fram við að vera kurteisir og sann- gjarnir í samskiptum, til að fólk færi almennt sátt út frá þeim. Nýta umhverfið og fólkið Fram kemur að lögreglumenn í dreifbýli læri með árunum að nýta sér umhverfið og fólk þegar þeir geta. Sem dæmi má nefna þegar umferðarslys verður og lögreglu- mennirnir sem rætt var við sögðu að við slíkar aðstæður myndu þeir ekki hika við að úthluta gulum vestum, merktum lögreglunni, til almennra borgara og fá þá til að stjórna umferð. Einn úr hópnum segir að þar sem hann vinni nánast alltaf einn þá sé hann búinn að útbúa tösku sem henti honum vel í slysum. Í þessari tösku væri allt sem hann þyrfti til að sinna fyrstu hjálp og stjórna á vettvangi. Í henni voru til dæmis gul vesti, sjúkrakassi, blá blikkandi ljós, sem hann pant- aði sjálfur, til að geta kastað á víð og dreif um vettvanginn til viðvör- unar og margt fleira. Hann sagði þetta bara vera ákveðin bjargráð sem hann hefði lært í gegnum árin að hjálpuðu honum: „því þegar maður er einn getur maður ekki gert allt í einu, og þú þarft þar af leiðandi svolítið að fara þínar eig- in leiðir.“ Þörf á frekari rannsóknum Þær stöllur segjast vona að frek- ari rannsóknir verði gerðar á dreif- býlislöggæslu, enda muni slíkt auka skilning fólks á störfum lög- reglu í dreifbýli og ítreka mikilvægi þeirra. Segja þær að í ljósi þess hversu krefjandi starfið er, þá hefði það verið mjög áhugavert og aðdá- unarvert að sjá hversu vel viðmæl- endur tókust á við hin ýmsu verk- efni, oft og tíðum einir. Í niðurstöðum rannsóknar- innar kemur fram margt sem má betur fara þegar kemur að dreif- býlislöggæslu, en ekkert bendi þó til þess að verið sé að „finna upp hjólið“. „Til að mynda er það nokkuð ljóst að fjölgun lögreglumanna í dreifbýli væri til hins betra, líkt og annars staðar. Einnig þyrfti að leggja meira fé almennt í lög- regluna og þá sérstaklega til þess að draga úr þeirri manneklu sem er til staðar, sem myndi í kjölfar- ið leiða af sér meiri og betri frum- kvæðisvinnu. Þá er það öllum til bóta að átta sig betur á því starfi sem lögreglan gegnir, hvort sem það er á höfuðborgarsvæðinu eða í dreifbýli. Einnig myndi það hjálpa verð- andi dreifbýlislögreglumönnum ef lögð yrði meiri áhersla á dreifbýl- islöggæslu í námi lögreglumanna. En þar sem upplýsingar um dreif- býlislöggæslu eru af skornum skammti er mikilvægt að efla þá þekkingu svo hægt sé að vinna að úrbótum á þeim hindrunum sem afmarkast við dreifbýlislöggæslu. Mörg hver verkefni einskorðast við dreifbýlislöggæslu og eru því óþekkt í þéttbýlislöggæslu.“ n Reykjavik Raincoats LAUGAVEGUR 62, 101 RVK www.reykjavikraincoats.com Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com Ú T S A L A Ú T S A L A Ú T S A L A 10 - 40 % AFSLÁTTUR Í VERSLUN OKKAR „ÞÚ HEFUR ENGAN TIL ÞESS AÐ HRINGJA Í NEMA SJÁLFAN ÞIG“ n Lögreglumenn á landsbyggðinni upplifa álag og einangrun„Hvað á einn gamall karl að gera í svona málum? Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.