Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 14
14 FRÉTTIR N etnotkun á Íslandi er ein sú mesta í heiminum, en um 97 prósent Ís- lendinga nota netið einu sinni eða oftar í viku. Til sam- anburðar er meðaltalið 75 pró- sent í Evrópu. Hagnaður svo- nefndra netþrjóta hefur aldrei verið meiri en nú. Á árinu 2018 er áætlað að hagnaður af net- glæpum hafi numið um 190.000 milljörðum króna og er talið að í ár verði netglæpir arðbærari en fíkniefnaframleiðsla, jafn- vel er talið að þeim áfanga hafi þegar verið náð. Morð í formi tölvuglæps Ráðgjafi bandarísku leyniþjón- ustunnar, FBI, Frank W. Abagnale, sem var innblásturinn að kvik- myndinni Catch me if you can, seg- ir að hingað til hafi netglæpir ver- ið framdir í auðgunarskyni, en með nýjustu tækniframförum sé hætt við að það breytist til hins verra. „Hingað til hafa þetta verið auð- gunarbrot með það að markmiði að komast yfir peninga – eða gögn sem eru jafnvirði peninga – en nú gætu tölvuþrjótar þess vegna slökkt á gangráðum,“ sagði Frank í samtali við Cypercrime Magazine. Hann benti á að bílar hefðu í dag gífurlega marga þætti sem stýrast af tölvu og ef hakkari kæmist nægilega nálægt bifreið geti hann læst gluggum, kveikt á loftpúða, slökkt á vélinni og læst einstaklinga inni í bílum. Frank óttast að aðeins sé stutt í að hakkarar geti gert slíkt úr meiri fjar- lægð og það sé aðeins tímaspurs- mál hvenær hryðjuverkamenn fari að beita slíkum brotum með ban- vænum hætti. Lögin þarfnast endurskoðunar Í ljósi þessa þykir mörgum líklega skjóta skökku við að íslensku hegn- ingarlögin hafi ekki verið uppfærð til að endurspegla breyttan raun- veruleika. Daði Gunnarsson, lög- reglufulltrúi hjá netafbrotadeild lögreglunnar, segir nokkuð vanta upp á að lögin geti talist fullnægj- andi. „Lagaumhverfið er ekki nægjanlega mikið sniðið að nú- tímatækni og þarfnast töluverðrar endurskoðunar. Mætti þá nefna að ekki eru til nein ákvæði um auðkennaþjófnað.“ Daði segir að einnig þyrftu lögin að vera skýrari varðandi hvaða refsiákvæði nái til vissra gerða tölvubrota sem og að skerpa mætti á rannsóknarheim- ildum lögreglu varðandi rann- sóknarúrræði lögreglunnar. Þær áskoranir sem netbrotadeildin tekst á við nú um mundir er gífur- legur fjöldi tilkynninga sem þeim berst um tölvubrot, en deildina vantar mannskap til að rannsaka þau, auk þess sem rannsókn slíkra brota getur verið tímafrek. Ekki trúa öllu sem lesið er Aðspurður hvað almenningur þyrfti að hafa í huga varðandi net- glæpi, svarar Daði: „Ekki trúa öllu sem lesið er á netinu. Ef eitthvað hljómar of gott til að vera satt þá er það af því það er ekki satt. Ágætt getur verið að fletta jafnvel upp á netinu hvort það sem fólk ætlar að taka þátt í séu svik, á til dæmis við um fjárfestingasvik sem hafa ver- ið töluverð upp á síðkastið. Skoða tölvupóst vel og ganga úr skugga um að ekki sé um vefveiðapóst eða aðrar tegundir svikapósts að ræða. Vera á varðbergi áður en gefin eru upp lykilorð eða fjármunir fluttir til.“ Lítils háttar lagabreyting Ísland fullgilti svonefndan Búda- pest-sáttmála um tölvuglæpi (e. Convention on Cybercrime) árið 2007. Á þeim tíma var ekki talið að ráðast þyrfti í umfangsmiklar laga- breytingar til að uppfylla skilyrði sáttmálans. Aðeins þyrfti lítillega að breyta tilteknum ákvæðum, en að öðru leyti gætu tölvubrot rúm- ast innan fyrirliggjandi ákvæða, svo sem ákvæða um húsbrot sem taki einnig til þess þegar brotist er inn í tölvu (e. Hacking). Talið var að breytingar sem gerðar voru á hegn- ingarlögum 1998, þar sem lögin voru uppfyllt til að gera ráð fyrir nýrri tækni og tölvubrotum, væru fullnægjandi. Tæknibreytingar undanfarinna 20 ára hafa verið gífur legar. Hversdagsleg tækni sem við nýtum okkur í dag var nánast óhugsandi árið 1998 þegar tölvu- brot voru upphaflega innleidd í lögin, og jafnvel fyrir 12 árum þegar lítilsháttar breytingar voru gerðar. Álagsárásir Svonefndar álagsárásir (e. DDoS) geta fallið undir ákvæði 269. gr. a í hegningarlögunum þar sem segir: „Ef maður á ólögmætan hátt breyt- ir, bætir við eða eyðileggur tölvu- vélbúnað, eða gögn eða forrit sem geymd eru á tölvutæku formi, eða hefur með öðrum hætti gert ráð- stafanir sem eru til þess fallnar að hafa áhrif á niðurstöðu tölvuvinnslu, varðar það fangelsi allt að sex árum.“ Hins vegar segir í upphafi auðgunar- kaflans að auðgunarbrot séu aðeins refsiverð ef þau eru framin í auðg- unarskyni. Álagsárásir eru gjarnan framkvæmdar í öðrum tilgangi. Ný- legt dæmi er árás tyrkneskra tölvu- þrjóta á vef Isavia í júní, en sú árás er talin hafa átt rætur að rekja til óánægju Tyrkja með viðtökur sem tyrkneska landsliðið í knattspyrnu fékk á Íslandi. Vissulega mætti færa rök fyrir því að álagsárásir geti líka verið heimfærðar undir önnur refsi- ákvæði sem ekki hafi að geyma skil- yrði um auðgunarásetning, en það er hins vegar ámælisvert að hinn al- menni borgari geti ekki lesið í gegn- um hegningarlögin og séð hvaða ákvæði banni athæfið og hvaða refs- ing liggi við því. Nýtt landslag kallar á breytingar Þó svo íhaldssamir lögspekingar telji íslenska löggjöf fullkomlega í stakk búna til að takast á við nýtt lands- lag afbrota með tilkomu tæknifram- fara, þá eiga landsmenn þó án efa heimtingu á að það sé yfir vafa hafið að landslög tryggi þeim úrræði þegar á þeim er brotið, en einnig eiga þeir heimtingu á að lögin séu skýr og klárt mál hvað sé að lögum bannað. n 21. ágúst 2019 Erla Dóra erladora@dv.is „ Nú gætu tölvuþrjótar þess vegna slökkt á gangráðum n Netglæpir arðbærari en fíkniefnaframleiðsla n Hendur lögreglu bundnar TÖLVUÞRJÓTAR MAKA KRÓKINN Í SKUGGA ÚRELTRA LAGA www.gilbert.is Sif N.A.R.T TÍMALAUS GÆÐI 1000 METRA VATNSHELT
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.