Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 18
FRÉTTIR18 21. ágúst 2019 n Furðulegar, umdeildar og óvenjulegar hugmyndir n Höfuð Lionels Richie og heilagt brauð ER HÆGT AÐ HÓPFJÁRMAGNA HVAÐ SEM ER? Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Visitor ferðaskrifstofa Hlíðasmára 8, 201 Kópavogur Sími 578 9888 · visitor.is Siggi hopar@visitor.is Guðrún Svokallaðar fjármögnunarsíður hafa undanfarin ár stutt við bakið á listamönnum, frumkvöðlum og aðgerðasinnum um allan heim. En hópfjármögnun á netinu hefur einnig teygt anga sína víðar, inn á önnur og óvenjulegri svæði. Hér má finna dæmi um nokkrar furðulegar, umdeildar og óvenjulegar hugmyndir sem náðst hefur að safna fyrir. Fékk mjólkurhristinginn bættan Í maí á þessu ári var Paul Crowther, 32 ára karlmaður frá Newcastle ákærður fyrir að henda mjólkurhristingi   á Nigel Farage, leiðtoga Brexit-flokksins.  Crowther var í kjölfarið ákærður fyrir árás og skemmdarverk. Var honum gert að greiða bætur upp 350 pund, eða rúmlega 55 þúsund íslenskar krónur. Fjölmennur stuðningshópur hélt því fram að Crowther væri í raun fórnarlambið í málinu þar sem hann hefði fórnað mjólkurhristingi sem kostaði hann rúmlega 5 evrur, sem samsvarar 800 íslenskum krónum.  Í kjölfarið var hrundið af stað söfnun á vefsíðunni GofundMe undir nafninu „Hjálpum Paul Crowther að endur- heimta mjólkurhristinginn sinn.“ Eins ótrúlega og það hljómar þá náðist að safna andvirði tæplega 260 þús- unda íslenskra króna og er því óhætt að fullyrða að Crowther hafi fengið tjónið bætt – og vel það. Þakklátir tölvuleikjaunnendur Tölvuleikurinn No Man´s Sky kom út árið 2016. Leikurinn byrjaði sem flopp en höfundunum tókst síðan að uppfæra hann og bæta og í kjöl- farið hefur leikurinn öðlast miklar vinsældir. Í júní síðastliðnum tóku aðdáendur leiksins sig til og söfnuðu 4.800 dollurum í gegnum vef GoFundMe svo hægt væri að birta skilaboðin „Takk fyrir“ á risastórt auglýsingaskilti sem staðsett er fyrir utan skrifstofu leikjafyrirtækisins. Blaðaljósmyndari barinn til óbóta Ráðist var á blaðaljósmyndarann Andy Nqo, og hann barinn harkalega fyr- ir þær sakir að mynda og fjalla um mótmælafundinn Antifa í Portland í Or- egon í Bandaríkjunum. Antifa dregur nafn sitt af anti-fasisma og er drifið áfram af öfgamótmælendum. Í kjölfarið var stofnað til söfnunar til að fjár- magna læknis- og lyfjakostnað sem Nqu varð fyrir en auk þess varð mik- ið tjón á tækjabúnaði hans. Á einum degi náðist að safna ríflega tvöfaldri þeirri upphæð sem lagt var upp með í upphafi eða yfir 100.000 dollurum. Óvenjulegt listaverk á tónlistarhátíð Tónlistarhátíð í Englandi skartaði heldur óvenjulegu listaverki en um er að ræða feikistórt höfuð söngvarans Lionels Richie. Það tók tvær til- raunir að safna fyrir gerð skúlptúrsins sem upphaflega var talið að myndi kosta 4.900 evrur, en kostnaðurinn átti eftir að aukast heldur mikið og endaði í rúmum 8.000 evrum. Fótboltaaðdáandi ferðast um heimsálfur Áhugi fólks á íþróttum er engum landamærum háður og það sannaðist heldur betur þegar fótboltaaðdáandi ferðaðist til Íslands alla leið frá Bangladess til að berja eftirlætislið sitt í fót- bolta augum. Maðurinn, Mohammad Sayed Majumder, er að eigin sögn einn stærsti stuðn- ingsmaður íslenska fótboltaliðsins og þakkar af heilum hug fyrir söfnunarherferð Tólfunnar sem gerði honum kleift að fjármagna ferðina en hann er væntanlegur til landsins nú í október þegar Ís- land keppir gegn Frökkum. Heilagt brauð Hinn svokallaði grillaði Jesús varð að veruleika þökk sé fjár- öflun sem hrundið var af stað. Jú, þið lásuð rétt, brauðrist sem ristar brauð með mynd af frelsaranum var fjármögnuð svo nú geta strangheiðarlegar brauðætur gætt sér á heilögu brauði með osti og smjöri. Þau Meg Sheehan og Rob Corso hentu sér í herferðina þar sem 286 aðdáendur brauðristar- innar lögðu söfnuninni lið. Alls söfnuðust 25.604 dollarar og geta áhugasamir orðið sér úti um græjuna á Amazon.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.