Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 20
20 FRÉTTIR 21. ágúst 2019 Hjarðhegðun Íslendinga - 7 eftirminnilegar raðir H jarðhegðun er þekkt fyr- irbæri meðal bæði dýra og manna. Henni mætti lýsa með þeim hætti að einstaklingar innan hóps hagi sér með sama hætti, án þess að einhver sérstök stefna hafi verið mótuð í þeim efnum. Dæmi um þetta er að fara út í búð og ætla að velja milli tveggja tegunda af sömu matvörunni. Margir ættu þá til að kippa með þeirri sem minna væri eftir af. Fylgja fjöld- anum án allrar gagnrýnnar hugs- unar. Einstaklingur hermir eftir öðrum í þeirri trú að hann hafi vitað hvað hann væri að gera, í staðinn fyrir að móta sínar eigin skoðanir. Íslendingar hafa lengi vel tekið erlendum verslunum fagnandi, en einnig geta ýmis tískufyrir- bæri valdið æsingi og jafnvel usla ef varan er auglýst með orðunum „takmarkað upplag“ eða ef mik- ið hefur farið fyrir auglýsingum á samfélagsmiðlum og annað. Omaggio-vasarnir frægu eru þar gott dæmi, þar sem á gífurlega skömmum tíma voru vasarnir komnir inn á annað hvert heim- ili. Hjarðhegðun birtist einnig með eftirminnilegum hætti á ný- afstöðnum Ed Sheeran-tónleik- um og því ekki úr vegi að rifja upp nokkrar eftirminnilegar biðraðir síðustu ára. Lindex Þremur dögum eftir að verslun- in Lindex var opnuð í Smáralind þurfti að loka versluninni vegna vöruskorts. Á þessum dögum er talið að verslunin hafi afgreitt rúmlega tíu þúsund viðskiptavini og salan verið fimm sinnum meiri en áætlað hafði verið. Sænskir forsvarsmenn verslunarinnar voru viðstaddir opnunina og sögðust aldrei hafa vitað annað eins, þetta ætti bara ekki að vera hægt. Um stærstu opnun verslunar í sögu keðjunnar var að ræða. Bauhaus Bauhaus var opnuð í maí 2012. Brá verslunin á það ráð að hafa sérs- taka opnunarhátíð áður en dyrnar voru formlega opnaðar. Mikil ör- tröð myndaðist fyrir  utan verslun- ina og öll sex hundruð bílastæðin á svæðinu voru upptekin þegar há- tíðin byrjaði. Framkvæmdastjóri Bauhaus taldi að um 5–6 þúsund manns hefðu verið á svæðinu. H&M Smáralind Fyrsti viðskiptavinurinn stillti sér upp í röð rúmlega sólarhring fyrir opnunina. Rétt fyrir opn- unina náði röðin út úr Smára- lindinni. H&M kom til móts við eftirvæntinguna og þegar dyrnar voru opnaðar streymdi starfsfólk verslunarinnar út og tók dansspor, gestum til mikillar kátínu. Søstrene Grene Árið 2016 stilltu margir Íslendingar sér upp í röð fyrir utan verslun- ina Søstrene Grene til að freista þess að festa kaup á forláta hill- um. Að sögn sjónarvotta lá nánast við slagsmálum í Kringlunni þegar viðskiptavinir kepptust við að hrifsa til sín hillurnar. Sömu hillur fóru aftur í sölu nokkrum mánuð- um síðar og náði röðin þá út fyrir Kringluna. Þetta er ekki eina var- an sem hefur valdið usla í Søstrene Grene en mikill æsingur á til að grípa um sig þegar nýjar vörulínur fara í sölu. Dunkin‘ Donuts Kleinuhringjakeðjan Dunkin‘ Donuts opnaði útibú á Íslandi með pomp og prakt á Laugavegi árið 2015. Ævintýrið varð skammlíft og var versluninni lokað snemma á þessu ári. Stór fjöldi fólks safnaðist saman fyrir opnunina 2015, sum- ir biðu jafnvel heila nótt til að eiga möguleika á veglegum vinningi, fríir kleinuhringir í heilt ár. Húrra Þónokkrir Íslendingar gátu ekki setið á sér þegar von var á Yeezy- -strigaskóm úr smiðju Kanye West. Vongóðir viðskiptavinir tjölduðu jafnvel fyrir utan verslunina Húrra til að tryggja sér par af skónum sem komu í takmörkuðu upplagi. Hátt í hundrað manns biðu í röð þegar verslunin var opnuð. Ed Sheeran Segja má að tónlistarmaðurinn geðþekki, Ed Sheeran, hafi hlotið góðar móttökur hérlendis þegar hann hélt tónleika sína 10. og 11. ágúst síðastliðinn. Löng röð myndaðist fyrir utan Ed Sheeran-verslun sem hafði verið komið fyrir í Kringlunni, og langar raðir mynduðust þegar gestir freistuðu þess að snemminnrita sig á tónleik- ana og svo inn á tónleikana sjálfa. Þetta var einkum athyglisvert þegar Rúnar Freyr Gíslason benti á að engin skylda væri að innrita sig snemma nema sérstakar ástæður lægu þar að baki, svo sem ef hópur hefði keypt miða sameiginlega en ætlaði sér að mæta hver í sínu lagi. Engu að síður kom gífurlegur fjöldi tónleikagesta og beið í röð eftir snemminnritun, röðin náði langleiðina upp á Suðurlandsbraut. Seinna um daginn myndaðist svo röð tónleikagesta sem biðu eftir því að vera hleypt inn á tónleikasvæðið. Sú röð náði líklega sögulegri lengd á Íslandi, eða um 1,5 kílómetrum. Röðin náði alla leið að Glæsibæ og sló þar með út röðinni sem myndaðist á Guns n’ Roses-tónleikana á síðasta ári sem náði næstum að Glæsibæ. Hins vegar var alls ekki gert ráð fyrir svona langri röð. Raðirnar áttu að vera þrjár og var það greinilega merkt. Engu að síður stilltu tónleikagestir sér upp í einfalda röð sem bara lengdist og lengdist. Rúnar Freyr sagði í samtali við Vísi að lengd raðarinnar mætti skýra með hjarðhegðun. Fólk hafi farið í ranga röð þrátt fyrir skýrar merkingar. „Þá er fólk þannig að það eltir aðra og heldur að það eigi að gera það sama og hinir. Erla Dóra erladora@dv.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.