Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 34
Sérblaðið KYNNINGARBLAÐ 20. ágúst 2019 Bjórböðin eru einstök heilsulind Bjórböðin á Árskógssandi voru opnuð 2017, en þau höfðu þá lengi verið draumur Agnesar Önnu Sigurðardóttur eftir að hún heimsótti slíkt bað í Tékklandi 2008 ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Þresti Ólafssyni. Hugmyndin hafði verið lengi í huga Agnesar frá fyrsta baði og hún var staðráðin í að opna bjór- böð einn daginn á Árskógssandi. Undirbúningsvinna hófst 2014 og voru Bjórböðin opnuð árið 2017 en þar er einnig veitingastaður og útipottar sem hafa notið mikilla vinsælda vegna útsýnis yfir hafið. En hverjir eru kostir bjórbaðs fyrir líkamann? „Í bjórbaði baðar maður sig í ungum bjór, lifandi bjórgeri, humlum, vatni, bjórolíu og bjórsalti. Bjórinn sem við notum í baðið er ungur í gerjun og er á þeim stað í ferlinu að hann hefur lágt pH-gildi og hefur þar af leiðandi stinnandi og mýkjandi áhrif á húð og hár. Bjórgerið sem notað er í böðin er einstaklinga ríkt af nánast öllum B-vítamínskalanum, sem er einstaklega endurnærandi fyrir húð og hár. Einnig er gerið mjög ríkt af próteini, kalíum, járni, sinki og magnesíum. Humlarnir sem eru notaðir í böðin hafa mjög góð áhrif á líkamann þar sem þeir eru ríkir af andoxunarefnum og alfasýrum. Olíurnar og örefnin úr plöntunni hafa bólgueyðandi áhrif og eru einnig notuð til að minnka roða í húð og hafa góð áhrif á æða- kerfið. Það er sannað að humlar hafa slakandi áhrif á vöðva og líkama.“ Ekki er mælt með því að farið sé í sturtu næstu 3 til 5 klukkustundir eftir baðið, því baðið hefur mjög endurnærandi og mýkjandi áhrif á húðina. Hitastig baðanna er um 37 til 39°C og fyllt upp með nýrri blöndu fyrir hvern kúnna, ef fólk vill hafa baðið kaldara eða heitara, þá er hægt að óska eftir því. Innifalið í baðgjaldinu er sloppur og handklæði. Mælt er með að komið sé tímanlega og farið í útipottana áður en farið er í bjórbaðið. Sjö ker eru á staðnum og er hvert þeirra í einka- herbergi, þannig að gestir eru alveg í næði. Hvert ker er tveggja manna. „Síðan slakar þú á í 25 mín- útur. Svo er gestum fylgt upp á aðra hæð í slökunarherbergi og þar er viðkomandi í 25 mínútur. Slökunarherbergið er teppalagt og allt mjög notalegt. Við mælum með að sleppt sé sturtu í 3–4 klukkustundir eftir bað, þannig að bjórinn geri það sem hann á að gera, og húðin verður slétt og mjúk á eftir,“ segir Agnes. Baðið er fyrir alla, hins vegar er 20 ára aldurstakmark, eins og lög gera ráð fyrir, í að neyta bjórsins. Bjórinn í bjórböðunum er 3–5 daga gamall og því ekki orðinn áfengur og því öllum óhætt að fara ofan í. Bjórböðin hafa verið vel sótt bæði af heimamönnum og ferðamönnum, og eru viðbrögð gesta nær undan- tekningarlaust jákvæð og hafa farið fram úr öllum vonum og væntingum. Bjórböðin eru einstök heilsulind og sækja innblástur til Tékklands, en eru þau fyrstu sinnar tegundar á Norður- löndum. Allar upplýsingar má fá í síma 414-2828, á netfanginu bjorbodin@bjorbodin.is og heima- síðunni bjorbodin.is.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.