Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Qupperneq 86
21. ágúst 201986 MATUR
Ég ætla aldrei að vera
óþolandi gæinn
í matarboðum
n Björgvin Páll er á ketómataræðinu n Leyfir sér það sem hann langar í n „Svindlar“ reglulega
H
andboltakappinn Björgvin
Páll Gústavsson er einn af
þeim fjölmörgu Íslending-
um sem eru á ketómatar-
æðinu. Flestir fara á ketó til að
grennast en það er alls ekki mark-
mið Björgvins. Hann vill heldur
bæta samband sitt við mat og ger-
ir það í gegnum alls kyns tilraunir
með mataræði.
„Ég átti frekar undarlegt sam-
band við mat sem einkenndist af
því að ég var að berjast við það að
koma ofan í mig fimm til sex þús-
und hitaeiningum á dag til þess að
halda þyngd. Ég var með gríðar-
lega hraða brennslu, var að æfa
gríðarlega mikið og sinna alls kyns
hliðarverkefnum sem kostuðu
orku; bæði líkamlega og andlega,“
segir Björgvin og heldur áfram.
„Dagurinn minn snerist gríðarlega
mikið um mat og þó svo að nær-
ingin hafi verið holl þá var hún í
þessum týpísku „gömlu“ viðmið-
um, þar sem kolvetnin voru minn
helstu orkugjafi. Það var mataræði
sem hentaði mér í raun gríðarlega
illa þar sem ég fékk mjög mikið af
blóðsykurföllum og fleira. Blóð-
sykurföllin og sú þekking á nær-
ingu sem ég öðlaðist þegar ég
lærði bakstur á sínum tíma fyrir
fimmtán árum var svolítið kveikj-
an að því að færa mig yfir í réttu
kolvetnin, yfir í LKL, yfir í ketó, yfir
í TKD og að lokum JKD, sem er í
raun það sem ég kalla mataræðið
mitt því mín fyrirmynd í matar-
æðinu um þessar mundir heitir
Dr. Jordan Joy.“
Ekki ketóflensa heldur kol-
vetnaflensa
Mikið hefur verið talað um alls
kyns fylgikvilla þess að byrja
á ketó, þá aðallega svokallaða
ketóflensu sem virðist leggjast á þá
sem sneiða hjá kolvetnum. Björg-
vin segir ákveðinn misskilning
ríkja um þessa flensu.
„Þessi blessaða ketóflensa er
eitthvað sem ætti í raun að heita
kolvetnaflensa, þar sem einkennin
tengjast því að við erum orðin svo
kolvetnaháð. Ég var á þannig stað
andlega og líkamlega að einhver
smá höfuðverkur eða slappleiki
var ekkert til að tala um og ég fór
að finna fyrir kostum þess að vera
á ketó frekar fljótt,“ segir kappinn.
Verðum fróðari með hverjum
deginum
Þeir sem taka ketómataræðið alla
leið þurfa að halda sig undir fimm-
tíu grömmum af kolvetnum á dag
og í einhverjum tilvikum heldur
fólk sig undir tuttugu grömmum
af kolvetnum á dag. Björgvin seg-
ir það alls ekki einu leiðina til að
vera ketó. Hann er ekki á matar-
æðinu til að léttast.
„Ef markmiðið er að léttast þá
er hægt að fara milljón leiðir og
er ketó ein öflug leið til þess. Ég
er hins vegar ekkert brjálæðis-
lega spenntur fyrir þeim pæling-
um öllum, enda er það alls ekki
mitt markmið. Ég held að ketó á
Íslandi sé í ákveðnu þroskaferli og
fólk mun hægt og rólega átta sig á
því að tuttugu til fimmtíu grömm
af kolvetnum er ekki eina leiðin til
að vera ketó og að mínu mati ekki
æskilegt til lengri tíma. Tuttugu
gramma viðmiðin voru sett upp á
sínum tíma til þessa að vinna bug
á sjúkdómum, ef internetið er ekki
að ljúga að mér, og ýmsir hópar
sem styðjast við það ketó til þess
að ná tökum á sínum veikindum.
Eins og með allt annað þarf þetta
að fara út í öfgar til þess að finna
jafnvægi á einhverjum tímapunkti.
Eins og staðan er núna veit í raun
enginn nákvæmlega hvað það
þýðir fyrir mannveruna að vera
ketó. Við verðum þó fróðari með
hverjum deginum.“
Allt er gott í hófi
Björgvin segist finna mikinn mun
á sér sem íþróttamanni eftir að
hann byrjaði á ketó; hann er létt-
ari á sér, tekur betri ákvarðanir
og með jafnari orku. Hann elskar
svokallað Bulletproof-kaffi, neytir
fæðubótarefna og elskar að finna
nýjar og gómsætar leiðir til að
matreiða salöt.
En er eitthvað sem hann sakn-
ar úr mataræðinu eins og það var
fyrir ketó?
„Já, það kemur alveg fyrir að ég
sakni einhverra hluta. Fegurðin
við mitt mataræðið er einmitt að
ég leyfi mér það sem mig langar í.
Það mikilvægasta af öllu er með-
vitundin. Við fjölskyldan erum
til dæmis með pítsukvöld sirka
tvisvar sinnum í mánuði og þá
hendi ég í pítsu frá grunni með
öllu því sem mig langar í. Með
því næ ég til dæmis að næra bak-
arann í mér og einnig eiga geggj-
aða fjölskyldustund. Það er hluti af
mataræði mínu að leyfa mér þegar
það hjálpar mér á öðrum sviðum.
Ég ætla aldrei að verða óþolandi
gæinn sem borðar ekki matinn í
matarboðum, heldur er ég bara
mjög meðvitaður um magnið sem
ég set ofan í mig og hvernig ég vinn
úr því,“ segir Björgvin og brosir. „Ef
ég tek til dæmis svindlkvöld þá
nota ég þá kolvetnaorku sem er í
skrokknum í að lyfta og taka geggj-
aða æfingu daginn eftir. Allt er gott
í hófi og það á líka við um ketó.“ n
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is „ Eins og staðan er núna
veit í raun enginn
nákvæmlega hvað það þýðir
fyrir mannveruna að vera ketó
Útskýringar á
skammstöfunum
LKL = Lágkolvetna-
mataræði
TKD =Targeted Keto-
genic Diet
(Þetta mataræði er eilítið
frábrugðið hefðbundnu
ketómataræði. Á TKD er
spáð í hvenær kolvetna er
neytt og er það gert fyrir
eða eftir æfingu eða með-
an á henni stendur)
JKD = Ketómataræði
sem kennt er við Dr.
Jordan Joy
Hvað er Bulletproof-kaffi?
Bulletproof-kaffi er bara kaffi með smjöri og MCT-olíu.
Kaffið ku gefa þér meiri orku og hjálpa þér að léttast og er
því vinsælt á meðal þeirra sem eru á ketó- og paleomatar-
æðinu. Holl fita í kaffinu kemur úr smjörinu og olíunni.
Hvernig býr maður til Bulletproof-kaffi?
Hellið upp á kaffi eins og vanalega og blandið tveimur mat-
skeiðum og smjöri og einni matskeið af MCT-olíu saman
við. Þessi hlutföll eru ekki heilög og hægt að fikra sig áfram
þar til rétta blandan næst. Einnig er gott að blanda smá
salti og kanil saman við. Setjið þetta í blandara og blandið
þar til drykkurinn er silkimjúkur og drekkið svo á meðan
hann er enn heitur.