Skessuhorn - 20.12.2005, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
S'gESSUtiöM
Kosið í Menningarráð Vesturlands
og skrifáð undir samstarfssamning
Fulltrúar sveitarfélaga á Vesturlandi skrifa undir samstarfssamninginn í Snorrastofu um menningarmál til þrigg/a ára. Fulltrúa
DalabyggSar vantaði þar sem sveitarst/óm þar var á sama tíma aS fjalla um fjárhagsáœtlun.
Þær hafir borið hita ogþmiga að gerS menningarsamnings jyrir Vesturland. VerkefniS
hefur átt langan aSdraganda. Helga Halldórsdóttir, formaSur SSV og Hrefna BJóns-
dóttir, framkvœmdastjóri.
Samstarfssamningur sveitarfé-
laganna á Vesturlandi um menn-
ingarmál var undirritaður í Reyk-
holti sl. fimmtudag við hátíðlega
athöfn. Jafnframt var skipað nýtt
Menningarráð Vesturlands sem sér
um framkvæmd menningarmála
næstu 3 ár. Menningarsamningur
milli SSV og samgönguráðuneytis
og menntamálaráðuneytis var und-
irritaður á aðalfundi SSV 28. októ-
ber sl. Tekur hann gildi nú um ára-
mótin en í honum var gert ráð fyr-
ir að samstarfssamningur sveitarfé-
laga á Vesturlandi um menningar-
mál lægi fyrir og hefur nú þeim á-
fanga verið náð.
Að lokinni stuttri athöfn í Reyk-
holtskirkju, var skrifað undir sam-
starfssamninginn í Snorrastofu. I
Safnaðarsal kirkjunnar var síðan
boðið upp á léttar veitingar. Þar
flutti Helena Guttormsdóttir er-
indi í forföllum Signýjar Ormars-
dóttur, starfsmanns Menningar-
ráðs Austurlands, þar sem sam-
bærilegur menningarsamningur
hefur verið í gildi sl. 4 ár. Erindið
fjallaði um hvað menningarsamn-
ingur Austfirðinga hefur gert fýrir
menningarlífið í landshlutanum.
Var það niðurstaða viðstaddra að
margan lærdóm megi draga af því
sem Austfirðingar hafa gert.
Langur aðdragandi
Hrefna Bryndís Jónsdóttir,
ffamkvæmdastjóri SSV hefur átt
veg og vanda að undirbúningi og
gerð menningarsamnings milli
sveitarfélaganna og ríkisins. Hún
var að vonum ánægð þegar undir-
rituninni var lokið. “Eg er afskap-
lega ánægð með að þessi samning-
ur skuli nú vera í höfn. Samninga-
viðræður hafa tekið langan tíma og
ég get alveg viðurkennt að ég var
ekki alltaf bjartsýn á að samningar
tækjust, m.a. vegna ráðherraskipta
í menntamálaráðuneytinu og hafði
það áhrif á framgangshraða þessa
verkefnis. Okkar heimafólk í sveit-
arstjórnum hefur verið duglegt við
að ýta við stjórnmálamönnum og
það hefur haft sín áhrif,” segir
Hrefna.
155 milljónir til
skiptanna næstu 3 ár
Nú hefur nýtt Menningarráð
fyrir Vesturland verið skipað. Tek-
ur það nú við verkefninu og stjórn-
un þess. “Það fylgir starfi Menn-
ingarráðs mikil ábyrgð að spila vel
úr því fjármagni sem nú verður til
staðar, sjá til þess að það nái til
metnaðarfullra og raunhæfra verk-
efna og tryggja að mótffamlag inn
í menningarsamninginn skili sér
frá sveitarfélögum og öðrum aðil-
um. Fyrsta verkefni Menningar-
ráðs er að skilgreina hlutverk sitt
og eðli þeirra verkefna sem undir
það munu heyra í framtíðinni.
Þannig verður t.d. að móta mjög
skýrar úthlutunarreglur. Sam-
kvæmt samningnum er að því
stefnt að a.m.k. helmings mót-
framlag komi frá öðrum aðilum en
ríkinu og getur þar bæði verið frá
sveitarfélögum, fyrirtækjum og
jafnvel einstaklingum, allt eftir eðli
verkefna hverju sinni. Við sjáum
t.d. sóknarfæri í því að fjármagna
ákveðin verkefni með styrkjum frá
eða í samstarfi við erlenda aðila
ekki síður en innlendra.”
Hrefna segir að gríðarleg tæki-
færi liggja í þessum samningi.
Næstu 3 ár sé gert ráð fyrir að
menningarráð hafi um 155 millj-
ónir til ráðstöfunar með mótfram-
lagi heimamanna og annarra aðila.
Þessi upphæð verður til skiptanna
til reksturs Menningarráðs, til
launa starfsmanns og úthlutun
framlaga til menningarmála á
Vesturlandi. Menningarráð tekur
strax til starfa og gerir Hrefna ráð
fyrir að fyrsta úthlutun styrkja fari
fram á útmánuðum 2006.
Stjórnin kjörin
Kosið hefur verið í stjórn Menn-
ingarráðs Vesturlands. SSV til-
nefndi Helgu Halldórsdóttur for-
mann í stjórnina. Jón Pálmi Páls-
son, sviðsstjóri menningarmála hjá
Akraneskaupstað er fulltrúi sveit-
arfélaga 5 sunnan Skarðsheiðar,
Þorvaldur T Jónsson, bæjarfulltrúi
í Borgarbyggð er fulltrúi Borgar-
fjarðarsýslu norðan Skarðsheiðar
og Mýrasýslu. Guðrún Anna
Gunnarsdóttir, formaður safna- og
menningarmálanefndar Stykkis-
hólmsbæjar er fulltrúi sveitarfélag-
anna á Snæfellsnesi og Helga A-
gústsdóttir, forstöðumaður Eiríks-
staða Haukadal er fulltrúi frá
Dalasýslu.
MM/ Ljósm: ÞÞ
Stjóm MenningarráSs. Frá vinstri: Þorvaldur, Jón Pálmi, Helga Agústsdóttir, Helga
Halldórsdóttir og GuSrún Anna Gunnarsdóttir.
PISTILL GISLA
Jólin
Þótt ég geti seint talist til
venjulegs fólks þá er ég ekkert
frábrugðinn venjulegu fólk að
því leyti að ég vil gjarnan hafa
fínt hjá mér á jólunum og líkt
og aðrir hef ég gjarnan lagt
mikið á mig í þeim tilgangi.
Mér verður oft hugsað til jól-
anna 1990 í því sambandi en
þá var ég að vinna til mið-
nættis á Þorláksmessu og átti
þá jólahreingerninguna eftir
að stærstum hluta. Nóttin fór
að mestu í þær framkvæmdir
og undir morgun sofnaði ég
standandi á eldhúsgólfinu
með eldfast mót í höndunum
og vaknaði ég við það að lok-
ið datt í gólfið og brotnaði.
Þótt það séu í það mirmsta
fimmtíu ár þangað til ég kem
til með að viðurkenna að ég sé
að verða gamall þá lærir mað-
ur þó sitthvað með aldrinum,
ungum aldri það er að segja,
og meðal annars það að
sleppa því frekar að þrífa eld-
fasta mótið heldur en að vera
útkeyrður, úttaugaður og út-
brunninn á aðfangadagskvöld.
Um helgina var ég skikkað-
ur til að heimsækja musteri
Mammons, verslunarmið-
stöðina Kringluna í Reykja-
víkurhreppi. Taldi ég mig
hafa sloppið vel með því að
komast þaðan lifandi en troð-
ast ekki undir í mannmergð-
inni. Þar var fólk á hlaupum í
innkaupum eins og segir í
kvæði Þórhalls Sigurðssonar
um Austurstræti hvar þá voru
ys og læti sem hafa nú færst
inn í verslunarhallir á borð
við Kringluna. Allir þurfa
alltaf að gera allt fyrir jólin.
Þannig er það nú bara og því
verður sjálfsagt ekki breytt.
Kaupmenn reyna að sjálf-
sögðu að reita af neytendum
eins og þeir geta-fyrir hver jól
enda eru jólin ágætis mark-
aðsvara. Það er því ekki við
höndlarana að sakast en lykill-
inn að góðum jólum er hins-
vegar að láta ekki teyma sig of
langt í vitleysunni. Það er
hinsvegar um að gera að láta
teyma sig allavega hálfa leið.
Jólin eru neftiilega nokkurs
konar „deadline“ eins og það
heitir í blaðamennsku eða
skiladagur eins og helst má
þýða það á íslensku. Fyrir jól-
in þarf að klára allt og það er
svosem í lagi svo fremi að
þetta allt sé innan viðráðan-
legra marka þannig að menn
fái notið jólanna. Að verki
loknu slaka menn á í stundar-
korn og síðan eru jólin búin
og aftur komið á byrjunarreit.
Jólin eru því nauðsynlegt
upphaf og endir og eitthvað
sem alltaf er stefnt að.
Eg óska lesendum Skessu-
horns gleðilegra jóla og vona
að þeir kunni sér hóf fyrir
þessi jól og alla tíð. Þar sem
ég lét af störfum sem ritstjóri
blaðsins eftir sjö ára setu í rit-
sjórastólnum á árinu þá vil ég
nota tækifærið núna í árslok
og þakka samfylgdina á þeim
vettvangi. Þetta er þó ekki
hinsta kveðja því ég mun alla-
vega enn um sinn ausa hér á
þessum stað af visku minni og
vísdómi. Hittumst heil á nýju
ari.
Gísli Einarsson, jólasveinn