Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2005, Blaðsíða 36

Skessuhorn - 20.12.2005, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 gglSSlíIiöBH Ekki sestur í helgan stein -Rætt við Bjarna Guðráðsson í Nesi í Reykholtsdal um störf hans að framfaramálum í áratugi Vegur frumkvöðla hefur vaxið í þjóðfélaginu á undanfömum ámm. Það var fyllilega tíma- bært. Lengi hafa þeir allt að því verið litnir homauga. Flestum er það eðlislægt að láta sér vel Iíka það sem lífið býður uppá hverju sinni. Hafa það gott. Þiggja ffamfarir ef svo má að orði komast. Bíða þeirra eins og þær komi sjálfkrafa. Það er líka tímafrekt að vera frumkvöðull. Það er líka illa borgað. Stundum fylgja frumkvöðlum bölvað ó- næði fyrir þá sem vilja hafa það þægilegt. Nýjum hugmyndum fylgir það nefnilega að taka þarf afstöðu til þeirra. Ekki er nú sjálfgefið að ffumkvöðlar njóti stuðnings í verkum sínum og sjaldnast skilnings. Þegar ónæð- ið er um garð gengið, sem off fylgir þegar framfarir eiga sér stað, vilja flestir Lilju kveðið hafa. Flestir Islendingar em sér- ffæðingar í slíkum kveðskap. Bjami Guðráðsson er fæddur á Skáney í Reykholtsdal árið 1935. Hann ólst upp á Skáney til 9 ára aldurs og síðan í Nesi í Reykholtsdal. Stundaði nám í Reykholtsskóla árin 1949-1951. Hann er kvæntur Sigrúnu Ein- arsdóttur frá Kletti. Þau bjuggu í Gróf í Reykholtsdal 1955-57 og síðan í Nesi frá 1957. Bjami stundaði nám við tónlistarskól- ann á Akranesi 1976-1979 og hefur starfað sem organisti við Reykholtskirkju ffá 1976. Starf- aði að félagsmálum á vettvangi ungmennafélaganna og í Búnað- arsambandi Borgarfjarðar. Var formaður Búnaðarsambandsins ffál978 - 1993. Fulltrúi fyrir Borgarfjarðarsýslu á Búnaðar- þingi 1978-1999. Bjami hafði á- samt öðmm umsjón með útgáfu Búnaðarsambands Borgarfjarðar á ritverkinu Byggðir Borgar- fjarðar sem sambandið gaf út á árunum 1989-1999 og ritaði greinar í það rit. Hafði umsjón með byggingu Reykholtskirkju og Snorrastofu í Reykholti sem formaður byggingamefhdar árin 1983-2000. Bjami hefur sinnt starfi í Snorrastofu frá árinu 2001. Bjami Guðráðsson fer stund- um lítt troðnar slóðir. Af frá- sögnum að dæma virðist hann ekki feiminn við að leggja til at- Iögu við garðinn þó hann sé hár. Bjami hefur víða komið við í Iíf- inu eins og flestir samferðar- menn hans vita. Fyrirferðamest em þó án efa byggingar, ræktun og búskapur í Nesi, störf á vett- vangi Búnaðasambands Borgar- fjarðar og uppbyggingin í Reyk- holti. Þetta gamla höfuðból hef- ur á undanfömum ámm gengið í endumýjun lífdaga sinna. Það var ekki sjálfgefið. Einungis djörfung, eða fífldirfska eins og sumir kalla það, gat skilað upp- byggingunni í Reykholti jafn langt og raun ber vitni. Yfir kaffibolla í Nesi bað ég Bjarna að rífja upp upphafið að hugmyndum um nýja kirkju í Reykholti sem færðu okkur þær glæsilegu byggingar sem þar eru og það starf sem nú þróast kring- um kirkjuna og Snorrastofu. Hugmyndir fæðast “Um margra ára skeið hafði um- ræða farið fram um byggingu nýrr- ar kirkju í Reykholti, en lítið hafði gerst. Þessi umræða fór vaxandi og um síðir fóra hugmyndir að taka á sig mynd. Við sem að þessum hug- myndum stóðu ákváðum að reyna að móta þær eins langt og hægt væri áður en endanlega væri á- kveðið að byggja. Með því vorum við ekki hræddir við umræðuna. Þvert á móti. Við vildum geta kynnt málið eins vel og hægt væri og að lausir endar yrðu sem fæstir. Við ræddum málið við kirkjuyfir- völd og víðar. Við leituðum til Húsameistara ríkisins sem þá var Garðar Halldórsson, arkitekt. Hann útfærði hugmyndir okkar um nýja kirkju og starfsemi sem okkur fannst vanta í Reykholti til styrktar skólanum og móttöku gesta á staðnum. Við kynntum málið fyrir forsætisráðherra, sem þá var Steingrímur Hermannsson. Embætti Húsameistara ríkisins heyrði undir forsætisráðuneytið og erindi okkar til ráðherra var því í aðra röndina það að fá aðstoð við hönnun bygginganna með eins litlum tilkostnaði fyrir okkur og hægt væri. Garðar tók miklu ást- fóstri við málið og lagði sig allan fram frá fýrsta degi. Hann vann mjög gott starf í þessu máli sem arkitekt og höfundur að gerð byggingarinnar og ekki var stuðn- ingur hans og fjölskyldu hans minni í gegnum viðskiptalífið.” Háleitar hugmyndir “Þetta voru auðvitað háleitar hugmyndir. Það var því ekki sjálf- gefið að þessi litli söfnuður væri tilbúinn að byggja nýja kirkju. En það var samþykkt á safnaðarfundi árið 1983. Staðarvalið sjálft var hugmynd ffá séra Einari Guðna- syni. Hann sá fyrir sér að ný kirkja myndi rísa á þessum stað og orðaði það við mig þegar ég var í sóknar- nefnd um miðjan sjöunda áratug- inn. Elstu hugmyndir um Snorra- safn í Reykholti era ffá 1930. Það var norskættaður Ameríkumaður, Einar Hilsen að nafni, sem fyrstur barðist fyrir þeirri hugmynd. Hann gaf til staðarins bækur til að mynda stofn safnsins. Ríkisstjórn Islands keypti síðar bókasafn Tryggva Þórhallssonar, eftir fráfall hans, og lagði það til Héraðsskól- ans. Það er nú hýst í Snorrastofu. Hér í sveitinni var þessu máli tekið með nokkram fyrirvara sem eðlilegt var. Verkið í heild varð miklu viðameira og kostnaðarsam- ara en að byggja eina kirkju. Það var því ekki óeðlilegt að einhverjar áhyggjur væru í héraði. Slíkt fylgir alltaf þegar stórar hugmyndir fæð- ast. Þegar hugmyndin að Snorra- stofu hafði mótast mynduðust fljótlega tengsl við Noreg vegna málsins enda hafa Norðmenn löngum viljað eiga Snorra. Við ræddum málið meðal annars við sendiherra Norðmanna og hann tók okkur vel. Honum leist mjög vel á hugmyndir okkar að Snorra- stofu og upp úr því varð nokkur hreyfing um málið í Noregi. Fljót- lega fundum við áhuga Norð- manna á því að koma myndarlega að fjármögnun Snorrastofu sem þá var áætlað að myndi kosta 50-60 milljónir króna.” Síðasta utanför Olafs konungs “Síðasta utanför Olafs Noregs- konungs var að koma hingað í Reykholt. Þar færði hann okkur 1 milljón norskra króna. Hann var viðstaddur þegar forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, lagði horn- stein byggingarinnar 6. september 1988. Þessi styrkur frá Norðmönnum varð minni en við bjuggumst við eftir þær góðu viðtökur sem málið fékk í Noregi. Það á sér ýmsar skýringar. Meðal annars þá að ýmsir aðilar hér á landi vora ekki hrifnir af því að stuðningur Norð- manna yrði mikill. Það var hræðsla við það að Norðmenn væra að eigna sér Snorra. Sú hræðsla kom meðal annars ffam í þeirri stað- reynd að menn töldu ekki rétt að Norðmenn styrktu þessar bygg- ingar um of. Norska milljónin kom sér vel og varð hvati til þess að ís- lendingar lögðu sig fram um að styrkja byggingu Snorrastofu. Al- þingismenn í Vesturlandskjördæmi beittu sér fyrir málinu. Mesti fjár- hagslegi stuðningurinn við bygg- ingu Snorrastofu kom frá Alþingi og ríkisstjórn. Síðar, í tengslum við átakið við að ljúka byggingu Snorrastofu og opna hana árið 2000, fór fram fjársöfnun í fjóram fylkjum í Vestur-Noregi undir for- ystu Arne Holm ræðismanns Is- lands í Bergen og Hakon Randall fyrram fylkisstjóra Hörðalandi. I reynd kostuðu Norðmenn ríflega fjórðung byggingar Snorrastofu.” Jöfnunarsj óður sókna stofnaður “Klirkjustjórnin studdi okkur með ráðum og dáð. Það er vanda- verk fyrir litla söfnuði að byggja upp höfuðból. Um þetta leyti var jöfnunarsjóður sókna stofnaður. A- hrifamaður í undirbúningi að breyttu fyrirkomulagi á innheimtu kirkjugjalda og stofnun sjóðsins var prófastur okkar, séra Jón Ein- arsson í Saurbæ. Hann var frá upp- hafi einlægur stuðningsmaður okkar og kirkjubyggingin í Reyk- holti var ein sú fyrsta sem naut stuðnings jöfnunarsjóðsins. Jöfn- unarsjóðurinn og kirkjuráð hefur síðan reynst sá bakhjarl kirkjunnar sem best hefur gert til þess að styðja söfnuðinn við þetta átak. I upphafi fékk byggingin almennan fjárstuðning með söfnun hér í sveitinni. Sá stuðningur sýndi hug manna og samstöðu um málið sem dugði til að aðrir fengjust til að styðja söfnuðinn til þessara fram- kvæmda.” Gamla kirkjan Áður en samþykkt var að byggja nýja kirkju lá fyrir mjög vönduð úttekt um þá gömlu unnin af Hjör- leifi Stefánssyni. “Ljóst var að gamla kirkjan fyllti ekki þær kröfur um stærð og gerð helgidóms sem staðurinn þarfnaðist. Það réð miklu um þá ákvörðun að byggð yrði ný kirkja. Jafnframt var reikn- að með að taka þá gömlu niður eða flytja hana á annan stað sem hún varðveittist og kæmi að gagni sem lifandi helgidómur. Það var mark- miðið því ekki vildum við hér í litl- um söfnuði standa undir tveimur kirkjum á sama hlaði. Á öðram stöðum á landinu hafði það gerst. Okkur höfðu borist fyrirspurnir m.a. frá Bifröst, Sólheimum og Safnasvæðinu á Akranesi um að fá gömlu kirkjuna og endurbyggja hana til helgihalds. Því miður varð ekkert úr því. Mér finnst að það hafi strandað á því að yfirvöld hús- friðunarmála vildu ekki styrkja endurgerð hennar annarsstaðar en á staðnum.” Andstaða í kerfinu “Á ýmsum stöðum í kerfinu var andstaða við byggingu nýju kirkj- unnar. Sú andstaða náði til ýmissa háttsettra embættismanna. Málið var því alls staðar viðkvæmt. Heima var málið ekkert viðkvæmt eftir að ákvörðun um bygginguna var tekin. Þegar söfnuðurinn sam- þykkti byggingu nýju kirkjunnar var ekki með sérstökum bókunum kveðið nógu skýrt á um hvað skyldi gert við þá gömlu einfaldlega vegna þess að menn töldu líka svo langt í að sú nýja yrði tilbúin. Við sem stóðum að uppbyggingunni litum hins vegar alltaf þannig á að hún yrði flutt eða tekin niður. Síð- ar skipuðust mál þannig að Þjóð- minjasafhið tók hana í húsasafn sitt og annast endurbyggingu hennar samkvæmt samningi við söfnuð- irm. Eg er hins vegar ennþá þeirr- ar skoðunar að betra hefði verið að flytja kirkjuhúsið til einhvers þeirra sem vildu taka við því til helgihalds. Þjóðminjavörður sótti málið fast og söfnuðurinn féllst á að húsið stæði áfram. Ef okkur hefði órað fyrir að gamla kirkjan yrði látin standa áfram á staðnum þegar við vorum að vinna að mál- inu í upphafi þá hefði ekki verið reist ný kirkja í Reykholti í því formi og með þeirri starfsemi sem þessi kirkja hýsir nú.” Víða leynast sker “Ég kom að uppbyggingunni í Reykholti til þess að láta verkið ganga fyrir sig. Til þess að svo mætti verða þurfti þrennt; stuðn- ing safnaðarins, traust til þess og burði. Eg hafði fyrstu tvo þættina og hluta af þeim þriðja. Eg hafði á þessum tíma verið í bændapólitík- inni og ýmsum öðram félagsstörf- um sem höfðu gengið vel. Eg var því frekar brattur þegar lagt var af stað. Verk sem þetta krefst alls sem þú hefur að gefa og gott betur en það. I mínu tilfelli var það styrkur Sigrúnar konu minnar sem ég hafði uppá að hlaupa. Sá styrkur kom sér vel og var óspart notaður. Ég hef oft lýst undirbúningi uppbyggingarinnar í Reykholti sem siglingu um norska skerja- garðinn. Þar era víða sker sem leynast. Mér fannst við aldrei lenda alvarlega á skeri. Eg er alveg handviss um að á áranum 1985- 1987, þegar undirbúningurinn stóð sem hæst, var mjög vel vakað yfir okkur. Þegar öll sund virtust vera að lokast var ávallt eins og okkur væri bent á nýja leið. Hér er nú risin kirkja sem ég tel að til- heyri allri þjóðinni.” Ekki verk eins manns “Enginn má líta svo á að upp- bygging Reykholts sé eins eða tveggja manna verk. Því fer fjarri. Hins vegar er það ávallt svo að sumir eru meira áberandi en aðrir við slík verk. Trúlega höfum við séra Geir Waage verið áberandi í þessum störfum. Geir er mikill persónuleiki og hans söguþekking og sannfæringarkraftur var mjög þungt lóð á vogarskálar þeirrar Hjánin Bjami og Signín í Nesi. I baksýn se'st vélageymslan sem m.a. sinnti hlutverki geymslu fyrir gamla Dómkirkjuorgelib þar til tími og ráð gafst til aS ko?na því í viðgerð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.