Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2005, Síða 8

Skessuhorn - 20.12.2005, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 ■■.miiih..-; | Getum við aðstoðað þig? 4 Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ársreikningar, skýrslur, ritgerðir & handbækur stafræn prentun & frágangur Kveldúlfsgötu 23-310 Borgarnes 437 2360 - 893 2361 olgeirhelgi@islandia.is Þorláksmessuskata í hádeginu Opnunartími yfir jól og áramót: Aðfangadagur 10:00 -14:00 Jóladagur lokað Annar í jólum 11:00 -22:00 Gamlársdagur 10:00 -14:00 Nýársdagur 17:00 -22:00 Starfsfólk Ís-Myndar óskar öltum gleðilegra jóla og farsældar a nýju ári' Digranesgötu 6 - Borgarnesi - s. 436 1300 Getum við aðstoðað þig? / Vinnunótur, reikningar & eyðublöð á sjálfkalkierandi pappír Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Kveldúlfsgötu 23-310 Borgarnes 437 2360 - 893 2361 olgeirhelgi@islandia.is HCainUmíðað ókart frá cAkmne&i íjálapaltkami <§>ti/*cislfc(ður gjðfht fiemficur feest fyá alduir! 'Dýifiiina Tarfadáttir Timwr iPárðoirámi gidl&miðir ag skartgripafiánnuðir mnar: 862 6060 - 464 3460 Sá/itótaðnr: Fyiirheit gefin um frekari lækkun fasteignagjaldsstofiis Bæjarstjórn Akraness afgreiddi fjárhagsáætlun bæjarins og stofn- ana hans fyrir árið 2006 á fundi í síðustu viku. Fyrir fundinum lágu breytingartillögur minnihluta Sjálfstæðismanna sem sagt heíur verið frá í Skessuhorni. Skemmst er frá því að segja að tillögur Sjálf- stæðismanna voru allar felldar. Meðal þess sem minnihlutinn lagði til var að lækka gjaldstofn fasteignagjalda meira en meiri- hlutinn lagði til, það er að hann verði 0,36% í stað 0,394% sem meirihlutinn lagði til. I bókun sem meirihlutinn lagði fram á fund- inum segir meðal annars: “Á fundi bæjarstjórnar Akraness sem hald- inn var 15. nóvember sl. var álagn- ing Akraneskaupstaðar vegna árs- ins 2006 samþykkt samhljóða en þar var álagningarstofn fasteigna- gjalda á íbúðarhúsnæði lækkaður úr 0,431% í 0,394% sem er 9,4% lækkun. Þegar niðurstöður frá Fasteignamati ríkisins liggja fyrir nú í lok ársins og ljóst verður hverjar breytingar verða á fast- eignamati íbúðarhúsnæðis á Akra- nesi mun verða skoðað hvort gerð- ar verði frekari breytingar til lækk- unar á álagningarstofni íbúðarhús- næðis.” Eins og fram kom í Skessuhorni fyrir nokkru hefur fasteignamat á Akranesi hækkað umtalsvert á liðnum árum án þess að álagning- arstofnar hafi lækkað. Hefur því skattbyrði fasteignaeigenda aukist mjög. Einnig er gert ráð fyrir að fasteignamat muni hækka nokkuð í lok ársins. Nú hefur stofninn hins vegar verið lækkaður og fyrirheit gefin um frekari lækkun þegar fasteignamat liggur fyrir um ára- mót. Hj Þvottastöð opnuð við Shellstöðina I vikunni var ný þvottastöð opn- menn þvo sjálfir en geta valið mis- undanfarin ár hefur ekki verið hægt uð við Shellstöðina við Brúartorg í munandi þvottakerfi; sápu, bón og að þvo bíla á þvottaplönum í bæjar- Borgarnesi. Um er að ræða svokall- slíkt. Opntm stöðvarinnar er mikil félaginu eftir að frysta tekur á að hálfsjálfvirka stöð þar sem öku- ffamför fyrir bíleigendur þar sem haustin. MM Ellefii árgangar Leirárskóla hittast á ný Ellefu árgangar nemenda úr Leirárskóla í Borgarfirði skipu- leggja nú endurfund sem haldinn verður á Hótel Glym í Hvalfirði 4. mars næstkomandi. Upphaf endur- fundanna má rekja til 40 ára afmæl- is Leirárskóla fyrir skömmu. I framhaldinu kviknaði hugmynd að endurfundum árganga nemenda sem fæddir voru á árunum 1957- 1961. Góður rómur var gerður að þessari hugmynd og var þegar haf- inn undirbúningur. Það kveikti á- huga hjá fleiri árgöngum og smátt og smátt hefur árgöngum fjölgað svo nú verða saman árgangar 1951- 1962 eða ellefu árgangar. Samtals voru 185 nemendur í þessum árgöngum. Drengirnir voru mun fleiri eða 99 talsins eða 53,5%. Flestir voru í árgangi 1959 eða 27 nemar en í árgangi 1961 voru þeir fæstir, 9 að tölu. Undir- búningsnefnd endurfundanna hef- ur tekið saman búsetuskiptingu nemanna í dag. Á Akranesi búa 60 eða rúm 32%, á höfuðborgarsvæð- inu búa 55 eða tæp 30% og á skóla- svæðinu búa 38 eða rúm 20%, þar af eru 21 með sama heimilisfang og þegar þeir voru í skólanum. Af þessu má ráða að nemar í Leirár- skóla hafa sýnt byggð sinni mikið trygglyndi. Fimm nemanna búa er- lendis í dag og fjórir þeirra eru látnir. Undirbúningsnefndin hefur opn- að heimasíðu og er slóð hennar http://www.blog.central.is/leirar- skoli þar sem nemendur geta fund- ið nánari upplýsingar um endur- fundina. Þar hafa nemendur líka skrifað skilaboð sem ffóðlegt og skemmtilegt er að lesa. Fer ekki á milli mála að spenningur fer hratt vaxandi og ekki að efa að mildð fjör verður þegar þessir ellefu árgangar koma saman. Hjf Dafiiar vel Fyrsti Vestlendingur þessa árs fæddist á Sjúkrahúsinu á Akranesi 4. janúar. Síðan er liðið hátt í eitt ár og hafa yfir 220 börn komið í heiminn á SHA síðan. Litla stúlk- an hefur dafnað vel á árinu. Hér er hún ásamt móður sinni, Sigur- veigu Gunnlaugsdóttur á jólatrés- skemmtun á Akratorgi fyrr í mán- uðinum. Ljósm: MM

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.