Skessuhorn - 20.12.2005, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
saéSs'ííwoiSKi
S kilma n i laúreppiir
ócskar íhúum áímim,
Veátlmdiiigiim ag
mSákiptaaðilum sínumgleðilegra
jála ag/arsældar á kamandi árum
HarpoSjöfn
BUREKSTRARDEILD
Sólbakka 8-310 BorgarnesifcfeftMMötó
Afgreiðsla sími 430 5620 - Fax 430 5621
gUástig
BORGARNESI
Fyrsta útskrift frá Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga
Fjórir nemendur voru útskrifaðir
með stúdentspróf ffá Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga sl. laugardag,
þeir fyrstu sem skólinn útskrifar. I
útskriftarræðu Guðbjargar Aðal-
bergsdóttur, skólameistara, kom
ffam að nú eru 230 nemendur við
nám í skólanum en upphaflegar á-
ætlanir gerðu ráð fyrir 170 þegar
skólinn yrði fullsetinn árið 2007.
Skólinn tók til starfa haustið
2004 með því að taka inn fyrstu tvo
árganga í ffamhaldsnámi, en þriðja
árgangi var síðan bætt neðan við
haustið 2005. Fyrsta árið voru 120
nemendur við skólann, en kennslu-
fyrirkomulag skólans gerir nem-
endum kleift að koma þar til náms
hvar sem þeir eru staddir á leið
sinni til stúdentsprófs.
Vilhjálmur Pétursson í Grundar-
firði útskrifaðist með hæstu meðal-
einkunn nemenda og hlaut viður-
kenningu ffá sveitarfélögunum á
Snæfellsnesi. Þá fékk Vdhjálmur
einnig viðurkenningu frá Eddu
Miðlun fyrir hæstu einkunn í ís-
lensku og ffá KB banka fyrir hæstu
einkunn í viðskiptagreinum. Vil-
hjálmur flutti kveðju til skólans frá
nýstúdentum þar sem hann gaf
skólanum og starfsliði fyrstu ein-
kunn fyrir ffábært starf.
GK
Hreppsnefiid mælir
með vegi um Teigsskóg
Hreppsnefnd Reykhólahrepps
hefur samþykkt umsögn til Skipu-
lagsstofnunar vegna umfjöllunar
stofhunarinnar um lagningu Vest-
fjarðavegar ffá Bjarkalundi að Eyri
í Kollafirði. Töluverð umræða hef-
ur farið fram um hugsanlegt
vegstæði og þá sérstaklega hvort
leggja eigi veg um svokallaðan
Teigsskóg. Hreppsnefndin mælir
með því að vegurinn verði lagður
um skóginn en þess verði gætt að
sem minnst verði gengið á skóginn
við ffamkvæmdir.
I umsögn hreppsnefndarinnar
segir meðal annars: “Reykhóla-
hreppur leggur áherslu á mikilvægi
vegabóta í Gufudalssveit fyrir íbúa
og aðra vegfarendur. Vísað er til
fyrirliggjandi skýrslu Rannsókna-
stofnunar háskólans á Akureyri
“Samfélagsáhrif og arðsemi,” sem
fjallar um vegtengingar á Vest-
fjörðum. Þar kemur vel fram mik-
ilvægi styttinga í Gufudalssveit
(svokölluð leið B) þar sem vegurinn
verður á láglendi.”
Um leiðina ffá Bjarkalundi að
Þórisstöðum segir: “Þverun
Þorskafjarðar er gríðarlega mikil-
væg, enda styttir hún leiðina um
9,5 km. Hreppsnefnd telur að öll
stytting á vegum hafi jákvæð áhrif
fyrir umhverfið, þar sem hún
minnkar útblástur frá bílvélum.
Sama gildir reyndar þegar vegir
flytjast af fjöllum niður á láglendi.”
Frá Þórisstöðum liggur leiðin að
Kraká. Um þann kafla segir meðal
annars: “Sem fyrr mælir hrepps-
nefnd eindregið með leið B, enda
eiga brattir fjallvegir að heyra sög-
unni til. Sú leið liggur í gegnum
Teigsskóg. Huga þarf að því að taka
eins lítið rými undir veginn sjálfan
og kostur er, þannig að sem minnst
verði gengið á skóginn sjálfan.
Hreppsnefnd leggur áherslu á að
annar áfangi þessarar leiðar verði
boðinn út í einu lagi. Ekki kemur
til greina að lagður verði bráða-
birgðavegur um Grónes sunnan-
vert. Sömuleiðis er mjög mikilvægt
að huga að vegtengingu bæjanna
fjögurra, þ.e. Djúpadals, Brekku,
Gufudals og Fremri-Gufudals, sem
verða fyrir mestri röskun ef leið B
verður valin. Safh- og tengivegir
heim að þessum bæjum lengjast og
ganga þarf vel ffá þeirri vegagerð í
samráði við ábúendur. Djúpadals-
bæinn verður að tengja með vegi út
Djúpafjörð sunnanverðan. Gufu-
dalsbæina og Brekku skal tengja
með vegi um Hofsstaðahlíð. Með
B-leiðinni styttist mjög leiðin bæði
að Skálanesi og Múla í Kollafirði
sem hlýtur að teljast mjög jákvætt.”
Umsögnin verður nú send
Skipulagsstofhun sem kveður upp
úrskurð sinn á nýju ári.
HJ
Nýr framkvæmdastjóri
starfemannasviðs
hjá Norðuráli
Rakel Heiðmarsdóttir, sálfræð-
ingur, hefur tekið við starfi fram-
kvæmdastjóra starfsmannasviðs
Norðuráls ehf. í stað Kristjáns
Sturlusonar, sem ráðinn hefur ver-
ið framkvæmdastjóri Rauða kross
Islands. Rakel er doktor í ráðgjaf-
arsálffæði ffá University of Texas,
Austin, og hefur BA próf í sálfræði
ffá Háskóla Islands. Aður en Rakel
réðst til Norðuráls var hún
mannauðsráðgjafi hjá Starfs-
mannaskrifstofu Reykjavíkurborg-
ar og vann m.a. áður að þróun
starfsmannastefnu hjá hátæknifyr-
irtækinu Motorola í Austin, Texas.
Jafnframt hefur Rakel sinnt stjórn-
unarráðgjöf í íslenskum fyrirtækj-
um, kennt við háskólann í Texas
og Háskóla Islands og sá um rann-
sókn á verkefhinu “Auður í krafti
kvenna” á vegum Háskólans í
Reykjavík.
Rakel er gift Sigurði Bjarka
Magnússyni, upplýsingatækni-
stjóra hjá Iðnskólanum í Reykja-
vík, og eiga þau eitt barn.
MM