Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2005, Page 12

Skessuhorn - 20.12.2005, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 Vestiirland 20051 máli og myndiim Árið 2005 var okkur íbúum á Vesturlandi á margan hátt bæði gjöfult og gott og geta vafalítið flestir tekið undir það. Þensla í íslensku efnahagslífi náði til okkar og ber atvinnuástand og uppbygging ýmis konar skýran vott um það. Þegar fréttir liðins árs eru rifjaðar upp kemur í ljós að af mörgu var að taka enda hafa blaðamenn Skessuhoms ekki á neinum tímapunkti þurft að glíma við fréttaþurrð þrátt fyrir að snemma á þessu ári hafi blaðið verið stækkað upp í fulla dagblaðastærð og síðum þess verið fjölgað með tilheyrandi auknu rými fyrir efni. Hér á eftir birtir Skessuhom brot af því sem blaðið hef- ur fjallað um á Iíðandi ári og snertir okkur íbúana. Lesendum Skessuhoms og velvildarmönnum blaðsins víðsvegar um Vesturland, og utan þess einnig, em hér með færðar bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á ár- inu, með von um viðburðaríkt, gjöfult og gleðilegt ár 2006! Umsjón: Magnús Magnússon. Ljósmyndir: Blaðamenn Skessuhorns ogfleiri. Jón Oddur maður ársins Líkt og 6 undangengin ár stóð Skessuhorn fyrir vali á manni ársins á Vesturlandi. Að þessu sinni var frjálsíþróttakappinn Jón Oddur Halldórsson frá Hellissandi fyrir valinu en hann hefur náð góðum árangri í spretthlaupum fadaðra bæði á Ólympíuleikum og á öðrum sterkum mótum. Hann var ný- verið kjörinn íþróttamaður fatlaðra árið 2005. I öðru sæti í vali á manni ársins í fyrra varð Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæfells fyrir ævintýralega góðan árangur með liðinu árið 2004 og í því þriðja Pétur Geirsson, hótelhaldari fyrir kröft- uga uppbyggingu Hótels Stykkishólms. Skessuhorn minnir á að þessa dagana, eða til 28. desember nk., verður tekið við ábendingum um mann ársins á Vesturlandi og er best að senda tilnefningar á netfangið: skessuhorn@skessuhorn.is Akraneshöll í byggingn Um síðusm áramót var tekin sú ákvörðun hjá bæjaryfirvöld- um á Akranesi að á þessu ári yrði hafin bygging nýs fjölnota íþróttahúss á Jaðarsbökkum. Hér er um gríðarlega stóra ffamkvæmd að ræða sem vafalaust mun auðga íþróttalíf bæj- arins og nágrannabyggða einnig. Þessar vikurnar er unnið hörðum höndum að byggingu hússins enda er gert ráð fyrir að það verði vígt í apríl á næsta vori. I húsinu verður m.a. knattspyrnuvöllur í fullri stærð, hlaupabrautir og önnur að- staða fyrir íþróttafólk í íþróttabænum Akranesi. I undirbún- ingi er einnig að stækka áhorfendastúku knattspyrnuvallar- ins, byggja nýja sundlaug og bæta aðstöðuna á Jaðarsbökk- um. Allt í allt framkvæmdir fyrir um einn milljarð króna á næsm 3 árum (sjá einnig umfjöllun hér í blaðinu á bls. 70). Kraftur í framhaldsskólastarfi I upphafi ársins var formlega tekið í notkun hús Fjölbrauta- skóla Snæfellinga í Grundarfirði. Skólahald hófst þó haustið áður þrátt fyrir að framkvæmdum væri ekki lokið við alla hluta hússins. Nýja skólahúsið þykir bæði glæsilegt og ný- stárlegt þar sem í því eru ekki eiginlegar skólastofur eins og algengast er. Þess í stað em opin rými og aðstaða fyrir ein- staklingsvinnu og hópavinnu sem mikil áhersla er lögð á í skólastarfinu. Aðsókn að FSN hefur aukist meira en bjart- sýnustu menn þorðu að vona og í haust vom innritaðir yfir 180 nemendur. Það vekur einnig athygli að aðsókn að Fjöl- brautaskóla Vesmrlands á Akranesi hefur aukist þrátt fyrir hinn nýja skóla á Snæfellsnesi og var sl. haust ekki hægt að taka við öllum umsækjendum um skólavist þar. Og enn einn skóli er í burðarliðnum, þar sem Borgfirðingar undirbúa nú stofnun menntaskóla í Borgarnesi en hugmyndir em uppi um náið samstarf háskólanna í héraðinu og sveitarfélaga við uppbyggingu þess skóla og vonir bundnar við að skólahald þar geti hugsanlega hafist næsta haust. Ungmennabúðir að Laugnm Reksmr Ungmennabúða að Laugum í Sælingsdal hófst snemma árs. Þær eru reknar í anda hugmyndafræði UMFI og er markmið þeirra m.a. að vera leiðandi í rekstri slíkra búða, efla sjálfstraust unga fólksins, hvetja til samvinnu og tillitssemi. Góð aðsókn hefur verið að búðunum. Bruggað sem aldrei fyrr I byrjun Þorra var hulunni svipt af miklu framleiðsluleynd- armáli en þá kom í ljós að kornbændur sunnan Heiðar höfðu í samstarfi við Olgerðina Egil Skallagrímsson bmggað fyrsta bjórinn úr íslensku korni. Framleiðslan fékk góðar viðtökur og verður framhald á henni. Víngerðinni í Borgarnesi óx einnig ásmegin á árinu og var m.a. farið að framleiða úrvals vodka með nýjum aðferðum í sérstökum eimkatli sem þar var komið fyrir. Kvótaverð upp og niður aftur Mjólkurkvóti gekk kaupum og sölum milli bænda á árinu og verð rauk upp. Það varð þess valdandi að sumir ákváðu að hætta framleiðslu, seldu kvóta en aðrir veðjuðu á kvótakaup og skuldsettu sig til slíkra fjárfestinga. Verðið fyrir lítrann fór í 400 krónur fyrri hluta ársins en lækkaði aftur vemlega þegar líða tók á haustið þar sem neysla mjólkurafurða hefur aukist svo mikið að framleiðendur hafa vart undan að anna eftirspurn. Stórhýsi við Kirkjubraut Framkvæmdir við byggingu fjögurra hæða stórhýsis á svokölluðum Hvítanesreit á Akranesi gengu hægar en ráð hafði verið fyrir gert í upphafi árs þar sem nágrannar kærðu til skipulagsyfirvalda framkvæmdina. Húsið er engu að síður risið og í byrjun desember byrjaði fyrsta verslunin rekstur á neðsm hæð hússins. A efri hæðum verða íbúðir. Sviptingar hjá HB Granda Nokkrar sviptingar urðu í yfirmannsstöðum sjávarútvegsfyr- irtækisins HB Granda á árinu og snerta þær breytingar mjög tengsl fyrirtækisins við Akranes. Bræðurnir Smrlaugur og Haraldur Smrlaugssynir hætm báðir störfum, fyrst Stur- laugur í febrúar og síðan Haraldur nokkmm mánuðum síð- ar. Samhliða þessu seldi fjölskylda þeirra bréf sín í fyrirtæk- inu. Hvað af þessum breytingum leiðir á e.t.v. að einhverju leyti eftir að koma í ljós, en margir óttast að útgerð og vinnsla muni dragast enn frekar saman á Akranesi og gefa tölur um landanir í haust vísbendingar um að sá ótti sé á rökum reistur. Góður árangur lögreglu Á fyrri hluta þessa árs og á síðasta ári náði lögreglan í Borg- arnesi og á Akranesi góðum árangri við að upplýsa fíkniefna- mál í landshlutanum. Markvisst starf þessara embætta hefur skilað góðum árangri og birmm við í Skessuhorni þó nokkr- ar fréttir á árinu um mál sem upplýsmst jafnt sem snertir neyslu, dreifingu og ræktun þessara efna.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.