Skessuhorn - 20.12.2005, Síða 13
jaösunu^í
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
13
Vestwiand 2005 í máli og myndum
/
Nýir menn í stjórnunarstöður
Allnokkrar breytingar urðu á árinu í ýmsum lykilembættum
í landshlutanum. A sveitarstjórnarstiginu má nefna að Oli
Jón Gunnarsson steig upp úr stóli bæjarstjóra í Stykkishólmi
og gerðist framkvæmdastjóri hjá Loftorku í Borgarnesi. Við
starfi hans tók Erla Friðriksdóttir. Gísli Gíslason bæjarstjóri
á Akranesi til 18 ára lét af embætti og gerðist hafnarstjóri
sameinaðra hafna á Faxaflóasvæðinu. Guðmundur Páll Jóns-
son, bæjarstjórnarmaður gegnir starfi bæjarstjóra fram að
næstu kosningum. Nýir yfirmenn tóku einnig við í stórfýrir-
tækjum í landshlutanum. Má nefha að Gunnar Sigurðsson
tók nýlega við starfi fJamkvæmdastjóra Sementsverksmiðj-
unnar og Ingimundur Birnir stýrir nú Islenska járnblendifé-
laginu á Grundartanga. Agúst Sigurðsson er rektor Land-
búnaðarháskóla Islands sem formlega tók til starfa um liðin
áramót við sameiningu nokkurra stofnana á sviði rannsókna
og kennslu. Þá lét Magnús B Jónsson um leið af starfi rek-
stors Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri sem hann hafði
gegnt um áratugi. Loks ber að geta þess að Guðjón Guð-
mundsson, fv. alþingismaður var ráðinn framkvæmdastjóri
Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi. Ráðning hans var
nokkuð umdeild þrátt fýrir að enginn efist um hæfi hans en
ráðningin þótti bera keim af pólitík. Oskuðu m.a. nokkrir
umsækjenda um starfið eftir rökstuðningi fyrir ráðningunni.
Bræðsluverð á ýsu
I febrúarmánuði gaf vel til línuveiða hjá smábátum á Vestur-
landi og veiði var afbragðsgóð. Engu að síður sigldu ekki all-
ir af þeirri ástæðu einni saman að verðið á fiskmörkuðum var
orðið svo lágt að það borgaði sig ekki að róa. Meðalverð fyr-
ir kílóið af ýsunni fór þannig niður í 50 krónur og 100 krón-
ur af þorskinum.
Metþensla í byggingum
Fara þarf meira en 20 ára aftur í tímann til að finna tölur um
sambærilegan fjölda húsbygginga á Akranesi og á þessu ári
og því síðasta. Arið 2004 voru byggð samtals 71 hús og 138
íbúðir og á yfirstandandi ári verður fjöldinn enn meiri.
Framkvæmdir eru m.a. hafhar við byggingu fyrri af tveimur
11 hæða íbúðablokkum á Skagaverstúninu. Mikil aukning er
auk þess í byggingu íbúðarhúsnæðis á öðrum þéttbýlisstöð-
um á Vesturlandi. Hlutfallslega er vöxturinn þó mestur í há-
skólaþorpunum Hvanneyri og Bifröst þar sem fjöldi nem-
enda og starfsfólks á þessum stöðum hefur aukist verulega
og því mikil vöntun á húsnæði. A Hellnum er þessi misserin
að rísa nýtt frístundaþorp og mikið er byggt á öðrum þétt-
býlisstöðum á Snæfellsnesi og í Borgarnesi. A Snæfellsnesi
er aukinni eftirspurn eftir íbúðalóðum m.a. þakkað tilkoma
Fjölbrautaskólans og bættar samgöngur. Fyrstu húsin eru nú
risin í Reykholti eftir aldarfjórðungshlé á íbúðabyggingum
þar. I Búðardal eru framkvæmdir einnig við nokkur íbúðar-
hús og í raun er sama hvert litið er; allsstaðar er skortur á
iðnaðarmönnum einn helsti þröskuldur þess að enn fleiri
hús rísi en raun ber vitni. A Vesturlandi er einnig gríðarleg
aukning í fjölda sumar- og heilsárshúsa enda er búið að
skipuleggja hátt í 50 hverfi fyrir slíka byggðakjarna víðsveg-
ar um landshlutann.
Vantar hentug verkeftii
I fréttum kom fram að Fjöliðjan, vemdaðir vinnustaðir á
Vesturlandi, ætti undir högg að sækja. Astæðan: Það vantar
hentug verkefni, bætta aðstöðu og meiri skilning stjórn-
málamanna gagnvart mikilvægi verndaðs vinnustaðar. Mikil
þörf er óuppfyllt til sérhæfðs stuðnings til atvinnu fyrir ein-
staklinga með skerta starfsorku, bæði stuðnings til að geta
aðstoðað fólk til þátttöku á almennum vinnumarkaði og til
hæfingar og starfa á vernduðum vinnustað. Ymsir telja á-
stæðu til að hvetja jafnt ráðamenn í stjórnsýslunni sem og at-
vinnurekendur til að huga að verkefnum sem hentað gætu
skjólstæðingum Fjöliðjunnar.
HH|
ISafcfcSa
m
Óskum nemendum, starfsmönnum og Vestlendingum
öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
www.bifrost.is
VIÐSKIPTAHASKÓLINN
BIFRÖST