Skessuhorn - 20.12.2005, Síða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
...fMim..-
Vesturkmd 2005 í máli og
sveitarfélaginu megi á-
kveða að hann skuli víkja
úr sveitarstjórn þar til
hann taki aftur búsetu í
sveitarfélaginu. Guðrún
Jóna lét bóka í kjölfar at-
kvæðagreiðslunnar að ljóst
væri að sveitarstjórnar-
menn væru ekki starfi sínu
vaxnir og að með þessu
væri viðhaft gróft einelti.
Síðar á þessu ári var úr-
skurðað af félagsmálaráðu-
neytinu að ákvörðun meiri-
hluta sveitarstjórnar hafi ekki staðist lög og hefur Guðrún
Jóna því aftur tekið sæti sitt í sveitarstjórninni.
Ferðaþjónustuaðilar tóku höndum saman
18 ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi tóku á árinu höndum
saman og kynntu starfsemi sína sameiginlega, m.a. á ferða-
kaupstefnunni Vest Norden í Kaupmannahöfn. Atak þeirra
er undir slagorðinu “All senses” sem vísar til fjölbreytileika
svæðisins og þess að Vesturland hefur eitthvað fyrir öll skiln-
ingarvitin. Hópurinn fór saman í verkefnið í framhaldi af
námskeiðaröðinni Hagvöxtur á heimaslóð sem Utflutnings-
ráð stóð fyrir en þar er markmiðið einmitt að auka hagvöxt
með öflugu samstarfi. Akveðið var að kynna fimm lykla sem
ganga að svæðinu en þeir eru náttúra, saga, matur, menning,
mannlíf og aðgengi. Mikið gróska er í atvinnugreininni á
Vesturlandi. Ferðasumarið var almennt talið gott en það
einkenndist öðru ff emur af því að fækkun var í stórum hóp-
um ferðafólks en á móti fjölgaði þeim ferðamönnum sem
ferðuðust á eigin vegum (í bílaleigubílum og utan skipu-
lagðra ferða t.d. ferðaskrifstofa).
Minnsta atvinnuleysið
Atvinnuástand hefur sennilega aldrei verið betra á Vesturlandi
en árið 2005 enda mikil þensla á vinnumarkaði hvarvema í
landshlutanum sem oft hefur leitt til skorts á vinnuafli. Mál-
efni erlendra starfsmanna komu oft í umræðuna á árinu bæði
hér á svæðinu sem utan þess. Fljótlega á þessu ári gáfu tölur
til kynna að atvinnuleysi á Vesturlandi væri það minnsta á
landinu og hefur svo verið síðan. Utlit er fyrir áframhaldandi
gott atvinnuástand á næsta ári enda mannffekar framkvæmd-
ir í gangi, svo sem stækkun Norðuráls á Grundartanga og ný
störf við ffamleiðslu þar, mikil eftirspurn eftir mannafla í
byggingastarfsemi, vöxtur háskólastofnana, nýr ffamhalds-
skóli í Borgarnesi, stækkun Grundartangahafnar og áffam
mætti lengi telja. Ljósm: Mats Wibe Lund.
Viðburðaríkt sumar
Bæjar- og héraðshátíðir á Vesturlandi í sumar og haust skip-
uðu stóran sess í menningarlífi okkar Vestlendinga. Hátíðir
þessar voru 9 talsins vítt og breitt um landshlutann og tók-
ust almennt vel. Eins og gengur lék veðrið við suma meðan
hráslagi, úrkoma og vindur drógu úr aðsókn og stemningu á
öðrum stöðum. Auk hefðbundinna bæjarhátíða má nefna að
fjölmennt Fjórðungsmót hestamanna fór fram á Kaldármel-
um. Mótið þóttist takast með ágætum þrátt fyrir fremur kalt
og blautt mót, æska vestlensks hestafólks þykir efnileg og
hrossrækt er í blóma.
NO SIGNAL
Slys utan þjónustusvæðis
Segja má að það ætti að heyra fortíðinni til að þurfa að færa
fréttir af lélegu fjarskiptasambandi t.d. við fjölfarna þjóðvegi
landsins. Engu að síður birtum við fréttir um að í a.m.k.
fjórum tilfellum á þessu ári hafi þær aðstæður komið upp í
Dölum að fólk sem kom að bílslysum þurfti að aka langa leið
að næstu bæjum til að láta vita um umferðarslys sem þar
höfðu orðið. Slíkt hlýtur að teljast vandamál sem menn geta
ekki sætt sig við. Þeir sem aka frá Borgarfirði vestur í Búð-
ardal eru án síma- og jafnvel útvarpssambands alla leið frá
hlíðum Bröttubrekku og þangað til séð er ofan í Hvamms-
fjörð. Dapurleg staðreynd það.
Bændur bjartsýnir þrátt fyrir allt
Sumarið var ekkert sérlega hagfellt fyrir bændur með tilliti
til grastekju og heyfengur er talinn í slöku meðaltali að
magni og gæðum. Eftir hlýindaskeið í apríl voru frostnætur
tíðar í maí og lét nærri að í innsveitum sunnan- og vestan-
lands hafi mælst ffost aðra hverja nótt í mánuðinum. Einnig
var óvenjulega þurrt í mánuðinum og mældist úrkoma ein-
ungis innan við 10 mm í flestum landshlutum. Engu að síð-
ur er ástæða til bjartsýni meðal bænda. Sala á landbúnaðar-
afurðum hefur aukist og afkoma bænda er að batna. A það
bæði við um mjólkur- og kjötframleiðendur. Astand kjöt-
markaða komst í jafnvægi á árinu eftir verðstríð undangeng-
inna ára sem fáir græddu á nema hugsanlega neytendur til
skammst tíma litið. Sala á mjólk og mjólkurafurðum er
óvenju góð og svo virðist sem neytendur séu meðvitaðri en
áður um ágæti mjólkurdrykkju í stað t.d. sætra gosdrykkja.
Brautskráð frá LBHÍ í fyrsta skipti
f maí voru nemendur brautskráðir frá Landbúnaðarháskóla
íslands í fýrsta skipti en LBHÍ varð til úr þremur stofnunum
um sl. áramót; Garðyrkjuskóla ríkisins, Landbúnaðarháskól-
anum á Hvanneyri og Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Rektor LBHÍ er Agúst Sigurðssön og var þetta jafnframt
fýrsta brautskráning hans sem rektors hinnar nýju stofnun-
Islensku menntaverðlaunin á Akranes
Forseti íslands afhenti íslensku menntaverðlaunin í fýrsta
skipti í júníbýrjun. Stærstu viðurkenninguna hlaut Grunda-
skóli á Akranesi í flokknum: “Skólar sem sinnt hafa vel ný-
sköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi.” A myndinni
sést herra Olafur Ragnar Grímsson eftir að hafa afhent
Guðbjarti skólastjóra og öðrum fulltrúum skólans verðlaun-
in. íslensku menntaverðlaunin eru mikil hvatning og viður-
kenning fyrir metnaðarfullt skólastarf.
Met laxveiðisumar
Gott sumar var í lasveiðinni þetta árið. Heildarveiðin yfir
landið var um 55 þúsund laxar en 98% af laxinum sem
veiddist var eins árs fiskur. Laxveiðin á Vesturlandi er gríð-
arleg búbót fyrir veiðiréttareigendur, en talið er að um 44%
af hagnaði bænda af bújörðum í landshlutanum megi rekja
til hlunnindanna. Um 45 % af þeim laxi sem á land berst á
landinu er á Vesturlandi. Borgfirsku árnar voru að gefa gríð-
arlega góða veiði og var Þverá þeirra fremst með 4151 lax í
sumar, næstum jafnmikið og Eystri Rangárnar skiluðu en
þær lentu í toppsætinu.
Sérleyfi boðin út
Sérleyfi í hópferðaflutningum voru í fyrsta skipti boðin út á
árinu og taka ýmsar breytingar gildi um næstu áramót. Ak-
urnesingar hafa t.d. sótt það stíft að tengjast leiðakerfi
Strætó bs og mun þeim verða að ósk sinni innan skamms.
Þjónusta við aðra íbúa á Vesturlandi á að verða svipuð þó svo
breytingar verði á hverjir sinni henni. Hópferðamiðstöðin
og Vestfjarðaleið buðu lægst í sérleyfi vegna fólksflutninga á
leiðum á Vestur- og Norðurlandi.
Sameiningarkosningar
Þann 8. október sl. var kosið um sameiningu sveitarfélaga á
Snæfellsnesi. Lítill áhugi var fýrir sameiningunni og var til-
lagan kolfelld, svipuð niðurstaða og víðast hvar annarsstað-
ar á landinu þar sem kosið var sama dag. Þó gerðu Dala-
menn sér lítið fýrir og samþykktu sameiningu Saurbæjar-
hrepps og Dalabyggðar. Ibúum Reykhólahrepps hugnaðist
ekki samflot suður yfir Gilsfjörð og felldu í tvígang samein-
ingu við Dalamenn.
Framhaldsskóli í Borgames
Þrátt fýrir að ekki séu nema fáeinir mánuðir síðan formlega
var farið að vinna að undirbúningi framhaldsskóla í Borgar-
nesi virðist málið vera komið á góðan rekspöl og flest sem
bendir 'tíl þess að einkarekinn menntaskóli taki til starfa
næsta haust og þá í bráðabirgðahúsnæði. Þess ber að geta að
hugmynd um fJamhaldsskóla í Borgarnesi er ekki ný af nál-
inni en málið fékk byr undir báða vængi eftir könnun sem
unnin var á vegum SSV síðasta vetur í tengslum við gerð
vaxtarsamnings Vesturlands. Þar kom fram að það sem íbú-
um Borgarfjarðar þótti helst vanta var framhaldsskóli í hér-
aði. Síðsumars kom síðan fram hugmynd um einkarekinn
menntaskóla í nánu samstarfi við háskólana á Bifröst og