Skessuhorn - 20.12.2005, Page 30
30
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
j*U3Unu>j
Jólakveðja úr
Stykkishólmi
Lítil börn hafa gaman af því að
hlusta á sögur og fátt þykir þeim
skemmtilegra en að hlusta margoft
á sömu söguna, jafnvel þótt þau
kunni hana utan að. Engu má
breyta í sögunni, mismæli lesarans
eru leiðrétt og biðin eftir hápunkti
sögunnar er alltaf jaín spennandi.
Þetta þekkja allir.
um eftir áföll í atvinnulífmu og það
gerist aftur. Það er eins öruggt og
koma jólanna enda stendur mann-
líf hér á gömlum merg með blóm-
legu og fjölbreyttu menningar-
starfi í tónlist, leiklist, íþróttum og
mörgu fleiru. Þetta eru lífsgæði á
sama hátt og góð þjónusta, hreint
loft, nægt vatn og ódýrt heitt vatn.
Það er hins vegar merkilegt
hvernig jólunum tekst á hverju ári
að gera okkur fullorðna fólkið að
börnum. Við viljum sömu söguna
með sömu atburðarás og persón-
um. Við viljum helst engu breyta í
undirbúningi jólanna eða helgi-
haldinu sjálfú ög viljum geta geng-
ið að hlutum jafnt sem viðburðum
og tilfinningum á vísum stað í des-
ember. Þetta er eitthvert viðhorf
sem er innbyggt í okkur mannfólk-
ið, held ég, og við komum út úr
skápnum með það í kringum jólin.
Jólin eru líka tímamót. Sólin
hækkar á lofti á ný og framundan
er nýtt ár, þetta er tími uppgjörs og
nýrra fýrirheita. Liðið ár hefur á
margan hátt verið gjöfult og gott
fyrir okkur Hólmara þrátt fýrir á-
föll í sjávarútvegi. Mikil atvinna
hefur verið í öðrum greinum t.d.
byggingariðnaði og ýmiss konar
þjónustu. Breytingar í útgerð og
stöðvun skel- og rækjuvinnslu hafa
áhrif í bæjarfélaginu, hjá því verð-
ur ekki komist. Það er hins vegar
mikilvægt að fólk missi ekki trúna
á því afli sem býr í því sjálfu og
sjálfstraust íbúanna og samtaka-
mátmr virðist ekki hafa beðið var-
anlegan hnekki. Það hefur gerst
fýrr að Hólmarar hafi rétt úr kútn-
Ég nefndi hér að ofan íhaldssemi
okkar þegar kemur að jólahaldi.
Hún birtist þó oft á annan hátt á
öðrum árstímum. Eitt dæmið um
tregðu okkar til breytinga fannst
mér vera niðurstöður sameining-
arkosninganna hér á Snæfellsnesi,
og reyndar víðar. Vilji kjósenda var
mjög skýr, um það verður ekki
deilt, en hvers vegna hann var
svona á skjön við vilja ríkisvaldsins
og samtök sveitarfélaga er ekki
eins augljóst. Þó má auðveldlega
tína til ýmsar skýringar á úrslitum
kosninganna. Það hefur verið gert
og verður ekki farið út í þá sálma
hér að öðru leyti en því að hér á
Snæfellsnesi held ég að hafi skipt
mestu andstaða margra sveitar-
stjórnarmanna í málinu. Það er
samt sem áður enn skoðun mín að
ein besta leiðin til þess að efla
sveitarfélögin sé að stækka þau.
Það er ekki eina leiðin en hún er
mikilvægur áfangi að því mark-
miði. Sé litið til næstu ára þá vona
ég að næsta kjörtímabil líði ekki án
þess að sameiningarmálin verði
tekin til alvöru umræðu á ný hér á
Nesinu.
Jól nútímans eru gjarnan borin
saman við jól fýrri tíma. Það mæla
líklega fáir gegn því að jólahaldið
hefur vaxið að umfangi með tón-
leikum, jólaviðburðum ýmiss kon-
ar og fjársöfnunum svo fólk er
önnum kafið við jólahald frá því í
nóvember og fram yfir áramót.
Neyslan og óhófið hefur líka auk-
ist og allt þetta veldur því að marg-
ir efast um gildi jólanna. En hefur
ekki alltaf verið ofneysla og óhóf á
jólum?
Margt sem tengist jólum og jóla-
haldi hjá okkur kallast einhvern
veginn á við andstæður sínar. Ljós-
ið sem sigrar myrkrið er líklega
það sem kemur fýrst upp í hugann
en gjafirnar og góði maturinn
minna okkur á þá sem líða skort,
hvort sem er hér á landi eða úti í
hinum stóra heimi. Hátíð friðarins
og kærleikans verður til þess að ó-
friðurinn sem ríkir víða um heim
verður átakanlegri en fýrr og fjöl-
skyldum sem búa við heimilisof-
beldi eða eru sundraðar tekst ekki
að búa til þá fjölskylduhátíð sem
við viljum að jólin séu.
Eru þá jólin ónýt hátíð? Eiga
jólin sér enga málsvörn lengur? Jú,
ég held að jólin séu þrátt fýrir allt
svo stór hluti af tilveru hvers Is-
lendings, ungs eða gamals, að
kjarni þeirra lifi þrátt fýrir ytri um-
búðirnar og skrumið. Þessi kjarni á
sér líka svo djúpar rætur að þótt
margt fólk telji sig að öllu jöfnu
ekkert sérstaklega trúað þá snertir
hin hljóða og friðsæla mynd af
Jesúbarninu í jötunni strengi sem
hljóma betur og lengur en auglýs-
ingastefin á aðventunni.
Þess vegna finnst mér að við eig-
um að láta það eftir okkur að vera
bæði barnaleg og barnsleg í jóla-
haldinu, jafnvel þótt sumir vilji
byrja í október. Við viljum heyra
sömu söguna aftur.
Agætu Vestlendingar, með þess-
um línum fýlgja óskir um að þið
eigið gleðileg og kærleiksrík jól og
að nýja árið verði ykkur gæfuríkt
og gott.
Eyþór Benediktsson
Stykkishólmi
Jólakveðja
úr Dalasýslu
Bjart er yfir Dalabyggð og ófrið-
ur sá er hér ríkti, stundum kallaður
“Sturlunga hin síðari,” af gárung-
um, er að baki og menn virðast
vera orðnir nokkuð sáttir við lífið
og tilveruna hér í Dölum og ekki
er seinna vænna þar sem framund-
an eru kosningar á vormánuðum.
Dalirnir eru orðnir fjölmenningar-
samélag og má hér finna fólk af
margvíslegum þjóðarbrotum s.s.
flestum norðurlöndunum, Pól-
landi, Þýskalandi, Tailandi,
Filippseyjum og Kína svo eitthvað
sé upp talið.
Sláturhúsið var opnað aftur, með
viðhöfn nú í haust eftir miklar
endurbætur og telst eitt fullkomn-
asta sláturhús landsins. Það er
glæsilegt á að líta bæði utan sem
innan og er lóðin þar í kring til
mikillar fyrirmyndar þar sem
gamlar byggingar voru brotnar
niður og gróðursett í reiti við hús-
ið. Iþrótta- og tómsmndabúðun-
um á Laugum hefur verið vel tekið
og hafa unglingar, víðsvegar að af
landinu komið og notið dvalarinn-
ar þar í sveitarsælunni, án áreitis
GSM-símanna við leik og störf og
fengið að kynnast búskaparháttum
Dalamanna og heimsótt Eiríks-
staði þar sem þau hafa skyggnst
inn í líf víkinganna sem þar bjuggu
fýrir um 1100 árum. Hér eru menn
fullir bjartsýni og ekkert atvinnu-
leysi er, frekar hafa stofnanir og
fyrirtæki átt í vandræðum með að
fullmanna í stöður. I Búðardal hef-
ur verðið erfitt að fá húsnæði og
nú hefur verið úthlutað nokkrum
lóðum og eru húsbyggingar komn-
ar af stað. Einnig var byrjað á að
byggja við Dvalarheimilið á Fells-
enda þar sem plássum fjölgar og
enn fleiri stöf skapast. I skólanum
fjölgar í árgöngum, með þeim af-
leiðingum að börnin eru að
sprengja utan af sér skólahúsnæð-
ið, en verið er að leita leiða til að
leysa vandamál leikskólans sem
hefur verið í húsnæði skólans til
margra ára. Þá eru fullorðnir dug-
legir við að mennta sig og er fjöld-
inn allur af Dalamönnum sem
stunda fjarnám frá hinum ýmsu
skólum. Dalamenn hafa sótt hinar
ýmsu samkomur á haustmánuðum
og það er næstum sama hvað er í
boði að húsfyllir er á þeim öllum,
hvort sem um er að ræða kaffi-
húsakvöld, kveikt á ljósunum á
jólatrénu, danssýningu og jóla-
hlaðborð, svo eitthvað sé upp talið.
Jón Pétur danskennari kom að
sunnan eins og hann hefúr gert sl.
átta ár og var með dansnámskeið
fyrir börn og fullorðna sem var
mjög vel sótt og verða menn ekki í
vandræðum með tjúttið á þorra-
blótunum, sem skemmtinefndir
víðsvegar um Dalabyggð eru farn-
ar að æfa fyrir.
Haldið var frumkvöðlanámskeið
fyrir bæði unglinga og fullorðna
og komu þar fram miklar og góðar
hugmyndir sem flestar tengdust
ferðaþjónustu á einn eða annan
hátt. Voru það mæðgin sem skör-
uðu fram úr, annað hjá fúllorðnum
og hitt í unglingahópnum. Mikið
er af handverksfólki hér í Dölum
og má hér finna saumaklúbb sem
stundar mjög gamalt handverk,
svokallaðan vattarsaum, en það var
sú aðferð sem Islendingar notuðu
áður en þeir lærðu að prjóna.
Handverkshópurinn Bolli opnaði
markaðinn sinn nú fyrir jólin en
þar getur að líta mjög íjölbreytt
handverk.
Sá fáheyrði atburður gerðist hér
á aðventunni að einhver tók sig til
og stal heilli hraðahindrun af einni
af götum bæjarinns, hindrunin
fannst sem betur fer en hvað gera
átti við hindrunina er ekki vitað.
Dalamenn eru mikið fyrir að
tendra ljós í skammdeginu og
hvarvetna má nú sjá fallegar
skreytingar og hefur Búðardalur
breyst í fallega jólaþorpið sem ger-
ist alltaf fyrir hver jól.
Jólakveðja úr Haukadalnum,
Helga Agústsdóttir