Skessuhorn - 20.12.2005, Síða 40
40
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
■ ■.>->^11»..L I
Hugvekja eftir sr. Eðvarð Ingólfsson, sóknarprest á Akranesi
Það líður nær jólum.
Bærinn okkar hefnr verið fag-
urlega skreyttur og ljósdýrðin
lýsir upp þessa dimmustu daga
ársins. Það er spenna í lofti. I
mörg horn er að líta á heimilun-
um og allir, sem tök hafa á,
reyna að leggja sitt af mörkum
við undirbúninginn. Það þarf að
skrifa á jólakort, skrúbba og
skúra og kaupa gjafir. Dagarnir
fljúga áfram í öllu annríkinu og
skammdegið fær nýja og já-
kvæða merkingu.
En við skyldum þó muna að
það hlakka ekki allir til jóla.
Sumir kvíða undirbúningi
þeirra, kvíða mikilli vinnu og út-
gjöldum. Sumir hafa einfaldlega
ekki efni á að gera sér mikinn
dagamun, aðrir eiga hvergi
höfði að halla. Þeir sem eru al-
varlega sjúkir eða hafa misst sína
nánustu á árinu eru viðkvæmast-
ir á jólum og finna aldrei sterkar
en þá fyrir tómleika og söknuði,
þótt þeir reyni e.t.v. að leyna því
til að spilla ekki gleði annarra.
Við biðjum góðan Guð að
blessa alla þá sem þannig er
ástatt fyrir um þessi jól og vaka
alveg sérstaklega yfir þeim. Við
hugsum sömuleiðis í bæn til
allra annarra sem fara á mis við
þessa stærstu hátíð kristinna
manna en þeir skipta milljónum
um gjörvallan heim!
Allur jólaundirbúningurinn,
allar samkomurnar sem uppörva
okkur og gleðja, öll jólalögin og
ljósadýrðin - og allt annað sem á
sinn þátt í að auka eftirvæntingu
okkar og mýkja hugann - fær þó
ekki sinn rétta hljóm fyrr en lot-
ið er við jötu frelsarans og hon-
um tekið opnum örmum. Og
vart mun þá bregðast að eitt-
hvað hlotnist af þeim fögnuði
sem engillinn boðaði á jólanótt.
Jesús ICristur kom sem gjöf
Guðs til okkar mannanna, til að
þjóna okkur, hjálpa og líkna.
Hann var kærleiksríkur og hann
vill að við líkjumst sér. Kærleik-
urinn leiðir alltaf ff am það besta
og fegursta í lífi manna og þá
streymir góðvild ffá hlýju hjarta.
Þannig vinnur Jesús Kristur í
okkur þegar við höfum tekið við
honum. Þá breytir hann lífi okk-
ar og gerir það að sínu.
Guð gefi þér, lesandi góður, að
þiggja þá gjöf að finna jólin við
jötu Jesú, sem er Kristur Drott-
inn, og þakka þá gjöf og hljóta
fögnuð gleðilegra jóla. Megi
þessi ljóssins hátíð færa þér og
þínum birtu, gleði og sannan
frið!