Skessuhorn - 20.12.2005, Síða 46
5A>'ir auoM'ao'jn nr a' I'lf fr 11ni íiíI
46
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
ggESSlíHOBRI
Skemmtilegast að skreyta og pakka inn
Rætt við Ellý í Hvíta húsinu um vinnuna, áhugamálin, húsið hennar og listina
Ellý heima í stofunni sinni innan um jólaskrautiö.
Hvíta húsið á Akranesi hefur
verið starfrækt í gamla Iðnskóla-
húsinu í þrjú ár. Umsjónarkona
hússins í þann tíma hefur verið
Elínborg Halldórsdóttir, eða
Ellý eins og hún er alltaf kölluð.
Ellý er myndlistarkona, kennari,
smiður og fagurkeri sem finnst
skemmtilegt að skreyta og fegra
umhverfið um jólin. Skessuhom
kíkti í heimsókn heim tál Ellýjar
og í Hvíta húsið á aðventunni.
Starfsemin er á ábyrgð
unglinganna
Dyr Hvíta hússins standa opnar
ungmennum á Akranesi sem eru
16 ára og eldri. Ekki er þó um að
ræða hefðbundna félagsmiðstöð
heldur er hugmyndin sú að það sé
samastaður fyrir þau. Ellý segir
krakkana eiga að bera ábyrgð á
starfseminni sjálf. “Þau sjá svolítið
um þetta, um það hvað er að gerast
hér. Börn og unglingar eru svo vön
því að hafa dagskrá eða eitthvað
prógramm, en það fylgir þeim al-
veg frá leikskólaaldri. Hvíta húsið
gengur út á það að þau ákveði sjálf
dagskrána hérna í húsinu.” Hvíta
húsið er því staður unga fólksins út
í eitt. Ellý segir þetta ganga vel.
“Það er oft munur milli árganga.
Þetta fer mikið eftir krökkunum
sjálfum og atvinnuástandi. Núna
til dæmis er gott atvinnuástand og
þá er minna um að vera hérna, en
það er auðvitað bara jákvætt. Þá
fara krakkarnir að vinna um leið og
jólaffíið byrjar.”
I húsinu er tölvuaðstaða, sjón-
varp og skjávarpi. A effi hliðinni er
starfrækt Menntasmiðja. “Hvíta
húsið er menningarhús. Það er
ennþá starfandi hérna af fúllum
krafti danshópur, sem byrjaði sem
hluti af fjöllistahópi sem var hérna
í fýrra. I honum var þessi danshóp-
ur, leiklistarhópur, tónlistarhópur
og svo vefsíðugerð og myndlist.
Þetta var Evrópuverkefni og við
fórum og hittum aðra svona hópa í
svissnesku Olpunum, sem var auð-
vitað alveg meiriháttar.” Fastir
liðir í Hvíta húsinu núna eru með-
al annars áhorf á fótboltann, tölv-
urnar eu mikið notaðar og það
verður boðið upp á tölvunámskeið
í húsinu eftir jól.
Frítíminn er
til njóta hans
Starfið í Hvíta húsinu og hug-
myndin þar á bak við er ekki for-
varnarstarf í bókstaflegum skiln-
ingi, en stuðlar engu að síður að
vímulausri skemmtun fyrir ungt
fólk á Akranesi. Afengi og önnur
vímuefni eru bönnuð. Ellý segir
það vera nauðsynlegt að unglingar
hafi samastað þar sem skemmtunin
gengur út á annað en þetta týpíska
íslenska djamm. “Þau eiga að nota
frítímann betur en í það að drekka
eða nota vímuefni, til dæmis að
koma hingað í Hvíta húsið til að
spila eða gera eitthvað skemmti-
legt. Þau eru oft tortryggin, því
það má náttúrulega ekkert vera
“ókúl” eða hallærislegt og það þarf
stundum að sanna fyrir þeim að
skemmtunina er að finna víða, ekki
bara í djammi. Við erum hópsálir
og það er þeim nauðsynlegt að
eiga í samskiptum án þess að nota
vímuefni. Svo finnst þeim undan-
tekningarlaust alveg rosalega gam-
an að gera aðra hluti, eins og til
dæmis að spila Trivial Pursuit og
spilakvöldin eru alltaf vinsæl enda
eru hérna alltaf allir hér í miklu
stuði.”
Ellý vill með starfi sínu í Hvíta
húsinu stuðla að góðum tengslum
milli ungs fólks því vináttan sé eitt
það mikilvægasta í lífinu. “Það er
mikið að gera hjá unglingunum og
ýmislegt sem kallar á þau. Það er
mikilvægt fyrir þau að njóta tímans
sem þau hafa aflögu. Ég hef til
dæmis alltaf átt góðar vinkonur
sem ég er í mjög miklum samskipt-
um við. Karlar koma og fara en
vinkonur eru. Það tekur nokkur ár
fyrir svona starfsemi að skjóta rót-
um, en ég held að Hvíta húsið sé á
ákveðnum tímamótum núna og
það er búið að festa sig í sessi.”
Eigum bara að
vera við sjálf
En er ekki erfitt að keppa við
djammið? “Þegar grunnskólanum
lýkur þá standa unglingar á tíma-
mótum og ætla sér oft að vera
mjög fullorðin allt í einu. Það
hjálpar heldur ekki ef einu sam-
komustaðirnir fyrir ungt fólk eru
vínveitingastaðir. Við eigum bara
að vera við sjálf og njóta samvista
við hvort annað, jafnvel þó við
séum ekki að gera neitt sérstakt.
Ég vil að krakkar séu skapandi og
kunni að hafa ofan af fyrir sjálfum
sér. Ekki bara nota frítíma sinn í
fyllerí á skemmtistað. Það á svo oft
við Islendinga að mínu mati að
þeir geta ekki skemmt sér eins og
þeir vilja því þeir eru svo hræddir
um hvað aðrir eru að hugsa. Við
verðum alltaf að halda kúlinu. Mér
finnst nú bara töff að vera svolítið
“uncool” og einstakur. Maður á að
skemmta sér og hafa gaman af líf-
inu. Það er allt í lagi að vera svolít-
ið kjánalegur, ég er það oft og er
alveg sama.” Að sögn Ellýjar er
þetta bara spurning um að gefa
einhverju öðru gaum. “Þau byrja
oft á því að segja “ég kann þetta
ekki.” En þetta er ekkert spurning
um að þurfa að kunna eitthvað. Þú
þarft ekkert að vera bestur, þú
munt hafa gaman af um leið og þú
byrjar. Ef maður er með skemmti-
legu fólki er alltaf gaman.”
Langar að mála meira
Auk þess að sjá um Hvíta húsið
hefur Ellý verið að kenna í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands þennan
veturinn. “Ég kenni nýjan
valáfanga innan félagsffæðibrautar
í FVA sem heitir Skapandi störf.
Þar er ég að þjálfa nemendur í því
að vinna með ungum börnum að
listsköpun, til dæmis að setja upp
leikrit eða söngleiki. Nemendurnir
eru 16 og 17 ára gamlir.”
Það má segja að Ellý sé búin að
koma sér vel fyrir á Akranesi þrátt
fyrir að hafa aðeins búið í bænum í
þrjú ár. Hún hefur verið varamað-
ur í umhverfis- og skipulagsefnd
Akraneskaupstaðar og er búin að
smíða sér hús fyrir sig og börnin
sín fjögur. “Já, ég er að smíða hús-
ið mitt á Presthúsabraut sem er al-
veg hreint æðislegur staður nálægt
sjónum. Ég er nýbúin að smíða
pallinn og núna er ég að gera bíl-
skúrinn sem verður svo vinnustof-
an mín.” Ellý segir gott að ala upp
börn á Akranesi. “Þetta eru auðvit-
að rosaleg forréttindi sem Akur-
nesingar hafa sem er náttúran
hérna. Ég átti áður heima í Breið-
holti í Reykjavík, sem er barnvænt
hverfi, en þetta er miklu betra.
Hér höfum við Éangasand, bryggj-
una, Akrafjallið, búðirnar í mið-
bænum, þetta er alveg ffábært. Það
er svo stutt á milli staða hérna að
maður þarf ekki að eyða tímanum í
vitleysu og stress eins og í borg-
inni.”
Ellý er myndlistarkona en hefur
ekki haft mikinn tíma til að mála
síðustu ár. “Ég ætla núna að fara að
einbeita mér meira að myndlist-
inni en hún er búin að sitja á hak-
anum allt of lengi. Ég hef hrein-
lega ekki haft tíma til að mála í nær
tvö ár, en ég hef þó verið að vinna
verk fyrir Skjá 1 og Iðnó til dæmis.
Ég sór þess eið þegar ég flutti ffá
“Það er um að gera að nota hugarflugið og skreyta eftir hjartans lyst. ” Ellý dreifir litlum jólastjömum ígluggasyllur og á húsgögnin.