Skessuhorn - 20.12.2005, Blaðsíða 49
^ousunuij;
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005
49
Söfiiuðu fyrir
Rauða krossinn
7. BB og 7. HE í Brekkubœjarskóla héldu bingó nýverið og söfnuðu 10.000 kr. fyrir
Rauða Krossinn.
Farið að tillögoim bæjarstjómar-
fundar unga fólksins
Bæjarstjóm Akraness hefur sam-
þykkt að bregðast við tveimur á-
bendingum er fram komu á bæjar-
stjórnarfundi unga fólksins sem
haldinn var þann 6. desember. A
fundi bæjarstjórnar í síðustu viku
lagði Sveinn Kristinsson fram
svohljóðandi tillögur þar sem með-
al annars segir: “Bæjarstjórn Akra-
ness samþykkir að veita kr. 300.000
til endurbóta á félagsaðstöðu ung-
linga í Brekkubæjarskóla. Undir-
búningur og framkvæmd verði í
höndum stjórnar nemendaráðs
skólans og skólastjórnenda. Ráðist
verði í framkvæmdir á yfirstandandi
skólaári ef þess er nokkur kostur.”
Þessi tillaga Sveins var samþykkt
með níu samhljóða atkvæðum.
Síðari tillaga Sveins var svohljóð-
andi: “Fram kom á bæjarstjórnar-
fundi unga fólksins að nemendur
FVA sækja lítið til Hvíta hússins og
að félagslíf er í nokkurri lægð í
skólanum. Bæjarstjórn Akraness
gerir tillögu um að skipaður verði
starfshópur sem hefur það verkefni
að skoða með hvaða hætti Hvíta
húsið getur stutt við uppbyggilegt
félagsstarf nemenda FVA. Starfs-
hópurinn verði skipaður tveimur
fulltrúum úr unglingaráðinu þ.e.
fulltrúa ráðsins fyrir hönd Hvíta
hússins og fulltrúa ráðsins frá
NFFA og með þeim starfi æsku-
lýðsfulltrúi og forstöðumaður
Hvíta hússins. Starfshópurinn skili
tillögum til bæjarráðs fyrir lok jan-
úar. Þessi tillaga var einnig sam-
þykkt með níu samhljóða atkvæð-
um.
m
Argjald unglinga lækkað í golf
Á aðalfundi Leynis þann 6. des-
ember sl. var samþykkt ný gjaldskrá
fyrir árið 2006. Hefðbundin hækk-
un var á árgjaldinu á milli ára og er
það nú 48.000 kr. fyrir fullorðna og
22.000 kr. fyrir maka. Veruleg
breyting var gerð á gjaldskrá ung-
linga sem hefur verið skipt í þrjú
þrep eftir aldri undanfarin ár; 14
ára og yngri (17.000 kr.), 15 til 17
ára (22.000 kr.) og 18-20 ára
(27.000 kr.).
Breytingin á árgjaldinu er fólgin í
því að nú er aðeins eitt árgjald fyrir
börn og unglinga 20 ára og yngri
sem skiptist í tvo hluta, 15.000 kr.
sumargjald og 7.000 kr. vetrargjald,
en reglubundnar æfingar verða hér
eftir yfir vetrarmánuðina. Með
þessu fyrirkomulagi gefst ungum
kylfingum nú kostur á að greiða að-
eins fyrir afiiot af golfvellinum og
golfkennslu yfir sumarmánuðina og
hafa val um að
taka þátt í vetrar-
æfingum ef þeir
kjósa það. Ár-
gjaldið lækkar
verulega hjá þeim
hóp (15-20 ára)
þar sem brottfall-
ið er hvað mest
og eru vonir
bundnar við það
að unglingar
haldist lengur í í-
þróttinni vegna
lægra árgjalds.
Áfram verður
veittur systkina-
afsláttur og af-
sláttur fyrir börn
foreldra sem eru í
golfklúbbnum.
MM
Eg þakkajyrir hlýhug í minn garð og
fjölskyldu minnar, góðar kveðjur og
gjafir í tilefni sextugsafmœlis míns þann
23. nóvember s.l.
Afmœlisveislan þann 19. nóvember með
stórum hópi œttingja, góðra vina og
samstarfsmanna verður mér œtíð
eftirminnleg og um leið þakkarefni.
Ég sendi mínar bestu kveðjur og óskir
um gleðileg jól og gœfuríkt nýtt ár.
Sturla Böðvarsson
BORGARNESI EHF.
ÓóJuun v iðökip tammmv akkar ag
VeMlendingum iUlum gleðilegra
jóla ag /ansældar á kamandi ári.
m a annn
rsem er
ENGJAAS) 2-8 - SIMI 433 9000