Morgunblaðið - 08.05.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Sjóðheit steypujárnssending
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 9.500 kr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Aðstæður voru einstakar í þessari
vorferð vegna hinna óvenjulegu
aprílhlýinda. Venjulega er farið á
vélsleðum frá Kvíslaveituvegi og
ekið á snjóbrúm yfir Þjórsárkvíslar
að Hofsjökli. Þetta svæði er nú aft-
ur á móti alveg autt og var því ekið
í Kerlingarfjöll uns fyrir urðu snjó-
teygingar sem náðu að jöklinum og
að skála Ferðaklúbbsins 4x4 í
Setrinu, þar sem leiðangurinn hafði
aðsetur,“ segir Þorsteinn Þor-
steinsson, jöklafræðingur á Veður-
stofu Íslands, við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til þess að
í vorleiðangri dagana 27. apríl til 3.
maí sl. var vetrarafkoma Hofsjök-
uls mæld. Var þá mælt hversu mik-
ill vetrarsnjór hefur safnast fyrir
frá liðnu hausti á 25 stöðum í mis-
mikilli hæð á jöklinum. Einnig voru
mæld samfelld snið með svokall-
aðri snjósjá, en um er að ræða tæki
sem nýtir rafsegulbylgjur til að
mæla snjóþykkt. Neðan við 1.000
metra hæð var snjóþykkt innan við
einn metri, en mest tæpir sjö metr-
ar á hábungunni, í 1.790 metra
hæð.
Beðið eftir haustmælingunni
Þorsteinn segir enn ekki búið að
vinna að fullu úr mælingunum en
svo virðist sem talsvert minna hafi
snjóað á jökulinn en í meðalári og
rímar það við að snjólétt var á há-
lendinu nýliðinn vetur.
„Snjóþykktin er áberandi lítil
neðan við 1.500 metra hæð á jökl-
inum og stafar það að hluta af
miklum hlýindum í aprílmánuði.
Snjóa leysti þá af miklum hluta há-
lendisins og náði leysingin einnig
upp á jökul,“ segir Þorsteinn, en
leiðangursmenn minnast þess ekki
að áður hafi verið jafn snjólítið um-
hverfis jökulinn á þessum tíma árs.
Þá segir Þorsteinn meðalhita á
Hveravöllum í apríl hafa verið 4,8
stigum yfir meðalhita aprílmánaðar
tímabilið 1961 til 1990 og 3,7 stig-
um yfir meðalhita aprílmánaðar
tímabilið 2009 til 2018.
„Þessar aðstæður eru alveg
þveröfugar við vorið 2018. Þá snjó-
aði stanslaust á jökulinn allan maí-
mánuð, eftir vorleiðangurinn, og
nam viðbótin um fjórðungi þess
snævar sem féll á Hofsjökul vetur-
inn 2017 til 2018,“ segir Þorsteinn
og bætir við að þessi samanburður
sýni vel hversu mikill breytileiki
getur verið á milli ára í veðráttu
hér á landi.
Þá segir hann ekki hægt að
segja til um það nú hvort jökullinn
sé að bæta við sig eða rýrna á
þessu jökulári, þ.e. frá hausti 2018
til hausts 2019. „Við vitum það ekki
fyrr en að lokinni haustmælingu
um mánaðamótin september-
október.“
Leiðangursmenn voru auk Þor-
steins þeir Bergur Einarsson, Vil-
hjálmur Kjartansson og Hrafnhild-
ur Hannesdóttir frá Veðurstofu
Íslands. Einnig voru meðferðis um
tíma vísindamenn frá Háskólanum
á Akureyri og NORCE-stofnuninni
í Stafangri auk tveggja kvikmynda-
gerðarmanna.
Ljósmynd/Veðurstofa Íslands
Jökull Hópur vísindamanna hélt nýverið upp á Hofsjökul til að mæla vetrarafkomu og var myndin tekin í ferðinni.
Óvenju snjólítið er í
námunda við Hofsjökul
Vísindamenn fóru í leiðangur og mældu vetrarafkomu
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fyrri umræða um ársreikning
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2018
fór fram í gær.
Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn,
benti m.a. á að ekki hefði tekist að
greiða niður skuldir borgarinnar í
góðæri og að skuldasöfnun A-hluta
og samstæðu héldi áfram á fullu.
Skuldir hefðu aukist um 25 milljarða
á síðasta ári eða um meira en tvo
milljarða á mánuði.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
var á öðru máli og gerði bókun sem
sagði ársreikninginn sýna sterkan
rekstur borgarinnar.
Rekstrarkostnaður eykst
„Skuldir voru 324 milljarðar um
áramót en áttu að vera 299 milljarðar
samkvæmt fjárhagsáætlun,“ sagði
Eyþór. „Við sjáum að rekstrarkostn-
aður hækkar umfram verðlag þrátt
fyrir að kjarasamningum sé ekki lok-
ið. Fjárfestingar eru hressilegar um-
fram afgang en ég velti fyrir mér
hvort bjartsýni borgarstjóra muni
koma okkur í gegnum það.“ Hann
sagði að ársreikningur Reykjavíkur-
borgar væri viðvörun. „Þegar við
sjáum að skuldir eru að vaxa langt
umfram það sem var hérna fyrir ári
þá verðum við að skoða það. Þessi
fyrsti ársreikningur á árinu sendir
borgarstjórn gula spjaldið, enda af-
gangur sem var upp á 28 milljarða
2017 minnkað um 60% milli ára. Þá
eru fjárfestingarnar meiri en rekst-
urinn leyfir.“
Skattar og gjöld í hæstu hæðum
Sjálfstæðismenn lögðu fram svo-
hljóðandi bókun á fundinum: „Tekjur
Reykjavíkurborgar hafa aldrei verið
meiri, enda skattar í hámarki og
gjöld í hæstu hæðum. Afkoma borg-
arinnar er þó lakari en árið 2017
enda vaxa gjöldin hratt. Launakostn-
aður vex um 10% milli ára af reglu-
legum rekstri. „Annar rekstrar-
kostnaður“ vex um 8%. Þá vekur
sérstaka athygli að skuldir borgar-
innar halda áfram að vaxa í góðæri.
Skuldir borgarsjóðs hækka um átta
milljarða og eru 108 milljarðar um
áramót. Heildarskuldir borgarinnar
hækka enn meira eða um 25 millj-
arða og eru 324 milljarðar í lok síð-
asta árs. Það er hækkun um rúma
tvo milljarða á mánuði árið 2018.
Þetta gerist á sama tíma og ríkissjóð-
ur lækkar skuldir sínar. Afgangur af
rekstri dugar ekki fyrir fjárfesting-
um og fjármagnskostnaður borgar-
innar snarhækkar á milli ára.“
Sýnir sterkan rekstur
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
las bókun um ársreikninginn í lok
fundarins þar sem sagði að ársreikn-
ingurinn sýndi sterkan rekstur borg-
arinnar. „Rekstrarniðurstaða er góð.
Allir málaflokkar eru innan fjár-
heimilda og borgin nýtur hagstæðari
vaxtakjara á markaði en nokkru
sinni fyrr. Ársuppgjörið sýnir borg
sem hefur metnað fyrir framúrskar-
andi þjónustu, leggur áherslu á góða
innviði og forgangsraðar í þágu vel-
ferðarmála og skólamála. Á undan-
förnum árum hefur verið fjárfest í
skólum, leikskólum, íþróttamann-
virkjum og öllu því sem gerir borgina
betri. Þær miklu fjárfestingar leiða
til þess að skuldir hækka lítillega.
Góður árangur hefur náðst í að bæta
sjálfbærni borgarsjóðs, hækka hlut-
fall veltufjár frá rekstri og gera
borgina vel í stakk búna til að takast
á við lækkun skulda samhliða áfram-
haldandi fjárfestingum á komandi
árum.“
Segir borgarstjórn fá gula spjaldið
Morgunblaðið/Hari
Borgarstjórnarfundur Meirihluta og minnihluta greinir mjög á um rekstr-
arniðurstöðu borgarinnar eins og kom fram í gær. Myndin er úr safni.
Fyrri umræða um ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir 2018 fór fram í gær Oddviti Sjálfstæðis-
flokksins segir niðurstöðuna vera viðvörun Borgarstjóri er ánægður með rekstrarniðurstöðuna
Arnar Þór Ingólfsson
Hjörtur J. Guðmundsson
Atkvæðagreiðsla um frumvarp
Svandísar Svavarsdóttur heilbrigð-
isráðherra um þungunarrof fer ekki
fram fyrr en í næstu viku, að þriðju
umræðu lokinni. Tvær breytinga-
tillögur hafa komið fram sem lúta að
því að stytta þann tímaramma sem
kveðið er á um í frumvarpinu.
Hiti var í þingmönnum er rætt var
um frumvarpið í gær. Umræðan
hófst á fjórða tímanum og stóð þar til
rétt eftir kl. 20. Bjarkey Olsen Gunn-
arsdóttir, þingmaður Vinstri-
grænna, sagði að málið hefði verið
útrætt í annarri umræðu, líka það
sem varðaði breytingatillögurnar.
Inga Sæland, þingmaður Flokks
fólksins, var ávítt af Steingrími J.
Sigfússyni, forseta Alþingis, og
nokkrum fjölda þingmanna, fyrir
ummæli sem hún lét falla í um-
ræðum um fundarstjórn forseta, áð-
ur en þriðja umræðan hófst
Páll Magnússon, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, lagði fram breyt-
ingatillögu þess efnis að heimilt yrði
að framkvæma þungunarrof til loka
20. viku í stað 22. viku. Anna Kol-
brún Árnadóttir, þingmaður Mið-
flokksins, lagði fram breytingatil-
lögu um að heimilt yrði að fram-
kvæma þungunarrof til loka 18. viku.
Frumvarpið hefur verið umdeilt en
núgildandi lög miða við 12. viku.
Atkvæðagreiðsla
í næstu viku
Heitar umræð-
ur um frumvarp
um þungunarrof
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Þingmenn tókust á um
þungunarrofsfrumvarpið.