Morgunblaðið - 08.05.2019, Side 19

Morgunblaðið - 08.05.2019, Side 19
missirinn er mikill. Ég kynntist Kidda í stúdentahverfi í Stokk- hólmi í byrjun níunda áratugar- ins. Hann reyndist vera skemmtilegur, góður og tryggur félagi. Stuttu síðar tengdumst við fjölskylduböndum þegar Inga systir mín flutti út og þau Kiddi urðu lífsförunautar. Lífið hefur svo sannarlega ekki alltaf leikið við Ingu og Kidda, en í sameiningu sköpuðu þau sér og börnum sínum hlýlegt og ævintýralegt heimili á Hjalla- veginum í Reykjavík. Þangað höfum við, ég og börnin mín, allt- af verið velkomin í Íslandsferð- um okkar og notið hlýju og gest- risni húsráðenda. Í Kidda bjó þúsundþjalasmið- ur og ekkert verkefni var honum ómögulegt. Þess ber heimilið vitni, bæði í húsi og garði. Hann var þar að auki mjög hjálpsamur og alltaf svo vingjarnlegur. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þessum góða og hæfi- leikaríka manni sem kvaddi þetta líf allt of snemma. Farinn er góður maður og söknuðurinn er ósegjanlegur. Hugur minn er hjá nánustu að- standendum, Ingu, Hörpu og Bergþóru, Jóhönnu, móður Kidda og systkinum hans. Guðríður Þórhallsdóttir. Við vitum það að raunveru- lega deyr enginn, sem manni þykir vænt um, heldur lifir hann áfram í hjarta okkar og minn- ingin um hreina, bjarta glaðlega svipinn hans gleður okkur á erf- iðum tímum. Við fráfall Kidda vinar míns og vinnufélaga er mér efst í huga sú væntumþykja sem hann sýndi öllum og meinti af heilum hug. Hann miðlaði öllum af kunnáttu sinni og verksviti og þar var af nógu að taka. Kiddi var við störf hjá Neon- þjónustunni þegar fundum okkar bar saman í fyrsta skiptið. Hvers manns hugljúfi og vildi allra vanda leysa. Seinna urðum við samverkamenn þegar Nota Bene 1997 varð til með sameiningu Merkismanna, Neonþjónustunn- ar og Eureka. Kristberg var lærður kvik- myndagerðarmaður og átti nokkrar stuttmyndir sem sýndar voru í byrjun áttunda áratugar- ins við góðan orðstír. Hann sneri sér hins vegar að skiltagerð og starfaði við þá grein óslitið frá 1985. Hann hóf störf hjá Merkis- mönnum árið 2002. Þrátt fyrir bros og bjartan hug bönkuðu erfiðleikar upp á hjá honum í lífinu. Hann var 14 ára í sveit fyrir austan fjall þeg- ar hann fékk að vita að faðir hans Óskar Sumarliðason, hafði látist sviplega og í Nota Bene veiktist dóttir hans Brandís 10 ára gömul af sama sjúkdómi og dró hann sjálfan til dauða. Það eru erfið spor að fylgja barni sínu í sjúkdómsferli en Kristberg tók tíðindunum þegar hann greindist í apríl í fyrra eins og hann átti upplag til með karl- mennsku og æðruleysi. Eflaust hefur honum verið ofarlega í huga þrautaganga dótturinnar rúmum 20 árum áður. Í Kidda hafði alltaf blundað skipasmiður en eflaust er að frá- fall föður hans hefur stöðvað þann framgang en Kristberg náði sér í trésmíðaréttindi um aldamótin og var vel að því kominn. Og síðustu dagana gat hann litið stoltur yfir gott dags- verk; hafði byggt kvist og svalir á húsið þeirra Ingu við Hjalla- veginn. Margs er að minnast og margs er að sakna en eitt er víst að Merkismenn verða aldrei samir eftir fráfall þúsundþjala- smiðsins Kristbergs Óskars- sonar. Ég sendi Jóhönnu, móður hans, og Ingu og dætrunum, Hörpu og Bergþóru, mínar inni- legustu samúðarkveðjur, Gunnar Trausti. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 ✝ Ottó Einarssonfæddist í Reykjavík 10. jan- úar 1973. Hann lést á heimili sínu 25. apríl 2019. Foreldrar hans voru Einar J. Sig- urðsson bifreiða- stjóri, f. í Reykjavík 1. desember 1947, d. 1. apríl 2007, og kona hans Sig- urlaug Ottósdóttir, f. á Fá- skrúðsfirði 1. nóvember 1950. Systkini Ottós eru Valg. Laufey Einarsdóttir, húsmóðir í Reykjavík, f. 19. febrúar 1971, og Einar Þór Einarsson við- skiptafræðingar, f. 22. október 1981. Ottó var ókvæntur og barn- laus en leit ávallt á frændsyst- kini sín átta sem sín eigin. Börn Laufeyjar eru Einar Jakob Þórsson, f. 24. jan- úar 1994. Kolbrún Laufey Þórsdóttir, f. 15. september 1995, og Sigurlaug Alexandra Þórs- dóttir, f. 28. desember 1998. Börn Einars Þórs eru Alexander Máni Einarsson, f. 26. desember 2000, Alexander Svavar Árnason, f. 7. desember 2000, Erlen Isabella Einarsdóttir, f. 7. september 2005, Benedikt Breki Einarsson, f. 10. júní 2012, og Ríkharður Orri Einarsson, f. 15. mars 2017. Ottó starfaði mestalla ævi við akstur rútubíla og þar af lengst af hjá Gray Line, sl. 20 ár. Ottó verður jarðsunginn frá Grafar- vogskirkju í dag, 8. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku hjartans Ottó. „Hey þið, þetta er uppá- haldsfrændi minn, hann Ottó“ er setning sem hljómaði oft um miðja nótt í borg óttans um miðjan tíunda áratuginn, þegar litla frænka var að feta sín fyrstu fótspor í hringiðu skemmtanalífsins og þú stóðst vörð um dyrnar að skemmt- analífinu. Alltaf gafstu þér tíma til að taka á móti þessu góli og gefa mér þéttingsfast knús svo ég lyftist um hálfan metra frá jörðu. Sama hversu háværar raddir elítunnar, sem biðu í VIP-röð- inni, urðu og sama hversu þrút- in andlit þeirra urðu af bræði yfir því að seinka innkomu þeirra á dansgólfið, þá horfðir þú rólegur til hliðar og sagðir „Verið róleg, þið komist inn. Þetta er frænka mín.“ Oft fuku orðin úr munnum elítunnar á feiknahraða, svo mikil var bræðin „Já, það fór ekki framhjá neinum.“ Símtalið kom svo á sumar- daginn fyrsta um að þú hefðir sofnað svefninum langa og hleypt sál þinni alltof fljótt í Sumarlandið góða, þar sem kirsuberjatrén eru í fullum skrúða allan ársins hring og hamingjusamar sálir flögra um á bleikum hnoðrum, áhyggju- lausar og friðsælar. Eftir erfiðar fréttir sem þessar þá leitar hugurinn í minningabankann. Ég man hvað mér þótti gaman að koma til ykkar og leika með dótið ykkar Laufeyjar. Oft fengum við ömmupítsu í kvöldmatinn þegar við komum í mat. Það þótti mér ákaflega spennandi. Ég man hvað langamma var alltaf stolt af þér og góðmennsku þinni. Ég man þegar ég hitti þig í lok sumars 1993, þú varst að leysa pabba þinn af í útkeyrslu og ég á leið í sumarvinnuna. Þú spurðir mig: Hvernig leggst þetta í þig?“ Svarið var bara „tjaaa svona er lífið“. Við kvöddumst með knúsi og ég fékk kleinuhringi, líkt og pabbi þinn laumaðir þú að mér glaðningi þegar ég kvaddi. En eitthvað skynjaðir þú að mér fannst heimurinn vera að hrynja í kringum mig og tókst upp á því að mæta óvænt, fyrst í bankann og seinna í Flens- borg og bjóða mér í hádegis- pítsu á Pizza 67. Þar ræddum við heima og geima, þessar stundir okkar gerðu mér lífið bærilegt. Elsku Ottó, ég er þér svo þakklát fyrir að þú hafir gefið mér þennan tíma og fyrir vikið hefur þú alltaf átt stóran stað í hjarta mínu. Þú varst ein hjartahlýjasta og vinalegasta manneskja sem ég hef kynnst. Þú komst til dyranna eins og þú varst klæddur, gerðir ekki upp á milli fólks, það skipti engu hvort um var að ræða Jón eða séra Jón. Það voru allir jafn- ingar í þínum augum. Þó sambandið væri ekki mik- ið í seinni tíð var alltaf gaman að hitta þig. Fésbókin gerði það að verk- um að við gátum fylgst með hvort öðru og átt spjall. Alltaf kvaddir þú með þeim orðum „Jæja, nú verðum við að hafa fjölskylduhitting!“ Í dag hittumst við fjölskyld- an en þó ekki við þær aðstæður sem ég óskaði mér, það vantar þig. Þín verður sárt saknað. Ég kveð þig nú og þegar sál mín kemur í Sumarlandið býð ég þér upp á pítsu og spjall. Ég lýk þessu bréfi til þín með því að góla hátt upp í Sumarlandið: „Hey þið, þetta er Ottó frændi minn, besta sál í heimi. Takið vel á móti honum, hann á það svo sannarlega skilið.“ Þín frænka Hrafnhildur Sigurðardóttir. Á framhaldsskólaárum er mikið um að vera í lífi ungs fólks. Nýir kunningjar bætast í hópinn og vinskapur myndast. Það er ekki sjálfsagt að vin- skapur haldist, fólk fer í mis- munandi áttir og allir að feta sig áfram í lífinu. En hjá okkur mynduðust traust vináttubönd sem héldust alla tíð síðan. Ottó var traustur og góður vinur sem alltaf var gaman að spjalla við. Hann var alltaf hress og það var mikil gleði í kringum hann. Margar skemmtilegar og eftirminnileg- ar ferðir voru farnar í sum- arbústaði eða jafnvel út fyrir landsteinana. Alltaf var gleði og gaman. Okkur er minnisstætt þegar Ottó var að hjálpa pabba sínum að keyra út og uppáhaldið hans Elvis í botni í bílnum. Hann átti gott safn með Elvis Presley sem hann hélt mikið upp á. Þeir feðgar voru mjög nánir og missir Ottós var mikill þeg- ar hann féll frá. Við eigum margar skemmtilegar minning- ar sem við höfum verið að rifja upp undanfarna daga. Sérstaklega erum við þakk- lát fyrir hitting okkar rétt fyrir páska, aðeins nokkrum dögum fyrir andlátið. Við munum ylja okkur við þessar minningar þó söknuðurinn sé sár. Við sendum Sillu, Laufeyju, Einari og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Minning um góðan vin og traustan félaga lifir í hjörtum okkar. Jóhann, Gunnar, Lárus, Ármann og Jóhann H. Það er stórt högg hoggið þegar menn eins og Ottó hverfa af sviðinu. Það er margs að minnast og söknuðurinn sár. Ottó var stór maður í öllum skilningi þess orðs, honum var gefið stórt hjarta og gæsku þess naut hans samstarfsfólk í ríkum mæli. Hvort heldur hann ók far- þegum um landið, skipulagði ferðir rútuflotans eða seldi út- lendum viðskiptavinum ógleym- anlegar Íslandsferðir einkenndi hlýjan öll hans samskipti. Ottó var gegnheill maður og sannur. Gáskinn og gleðin sem leyndust í stríðni hans var sönn og því aldrei of langt gengið í hinum nauðsynlegu og líflegu vinnustaðahrekkjum. Svo makalaust sem það er sást Ottó aldrei skipta skapi á þessum tuttugu árum sem við störfuðum saman. Undir glaðværu yfirborðinu var samt djúphygli og alvara sem gerði að verkum að hann reyndi að skilja lífið og til- veruna til fullnustu og leitaði svara við því hvers vegna allt væri eins og það er. Einkum fannst honum forvitnilegt hvernig upplifun væri að vera púki í litlu þorpi. Við viljum með þessum fá- tæklegu orðum þakka Ottó vini okkar fyrir þau ár sem við átt- um saman. Við erum þess fullviss, kæri vinur, að þú sért farinn að láta gott af þér leiða í nýjum heim- kynnum. Þín ljúfa gleði og góða skap mun njóta sín sem fyrr. Innilegustu samúðarkveðjur sendum við fjölskyldu Ottós, vinum og vinnufélögum. Hvíl í friði um eilífð alla. Sigurdór og Sigurbjörg (Silla) Ottó Einarsson var svo miklu meira en samstarfsmaður okk- ar hjá Allrahanda-Gray Line. Hann var vinur okkar allra, umhyggjusamur og tryggur fé- lagi sem öllum þótti vænt um. Ottó var hluti af Allrahanda- Gray Line-fjölskyldunni eftir tveggja áratuga samstarf sem aldrei bar skugga á. Við sökn- um góðs vinar og minnumst hans með hlýhug. Ottó byrjaði að vinna hjá okkur sem bílstjóri í mars árið 2000. Hann sýndi strax mikinn áhuga á starfinu, var duglegur, iðinn og samviskusamur. Hann var fljótt gerður að vaktstjóra með mannaforráð og skipulagn- ingu verkefna. Síðar langaði hann að breyta til og gerðist sölumaður. Það verkefni fór honum vel úr hendi og gaman var til dæm- is að fylgjast með honum bjarga sér með fjölbreytilegum hjálpartækjum í tölvupóstskrif- um á öðrum tungumálum við viðskipavini félagsins. Þar sýndi sig hvað Ottó var úr- ræðagóður og lausnamiðaður. Þegar þessum áfanga var náð fór Ottó að velta fyrir sér hvað honum þætti í raun skemmtilegasta starfið, við hvað langaði hann helst að vinna. Niðurstaða hans var rútubíl- stjóri, með stóru R. Og þar með var hann kominn aftur í fyrsta starfið, þar sem hann undi sér best. Ottó var vinsæll meðal sam- starfsmanna sinna og ekki síð- ur viðskiptavina Allrahanda- Gray Line. Hann var góður bílstjóri sem fór vel með rútuna sína sem honum þótti vænt um. Ottó var sérlega duglegur að tengja og spjalla við samstarfsfólk sitt, vildi vita hvernig gengi hjá fyrirtækinu og hvernig vinnu- félögum liði frá degi til dags. Hlýjan og væntumþykjan kom frá hjartanu. Frá vinum og samstarfsfélögum hafa streymt minningar á samfélagsmiðlum. Ung samstarfskona lýsir fyrstu kynnum af honum: „Ég byrjaði að vinna við miðasölu úti í rútunum og hann spurði mig oftar en ekki hvort mig vantaði nokkuð teppi eða vatn og hvort ég væri ekki örugglega búin að borða eitt- hvað. Verð alltaf þakklát fyrir vin minn Ottó sem sýndi mér alltaf jafn mikla virðingu og „fullorðna“ fólkinu á vinnu- staðnum.“ Annar sagði: „Menn af þessu góðmennskukalíberi eru ekki á hverju strái.“ En í umhyggjunni fyrir öll- um í kringum sig virtist Ottó láta hjá líða að huga að því mikilvægasta, eigin velferð. Eftir á að hyggja þá sjáum við að ýmislegt hjá honum var ekki í því góða og nauðsynlega jafn- vægi sem honum var svo um- hugað um hjá öðrum. Það er sárt fyrir okkur sem eftir sitj- um að hugleiða hvers vegna þessi sómadrengur er ekki lengur meðal okkar. Ottó, elsku kallinn, þín er sárt saknað af okkur öllum, en minningin um þig lifir sterk og falleg. Við vitum að núna stjórnar þú rútunni í draumalandinu og passar vel upp á allt og alla í kringum þig. Um leið og við þökkum Ottó samfylgdina vottum við Sigur- laugu móður hans, Laufeyju systur hans, Einari Þór bróður hans og öðrum ástvinum inni- lega samúð okkar og biðjum um að þau fái styrk til að tak- ast á við sinn mikla missi. Þórir Garðarsson, Ruth Melsted. Ottó Einarsson ✝ Ingvar JóhannKristjánsson fæddist í Reykjavík 21. nóvember 1951. Hann lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans við Hring- braut 29. mars 2019. Kjörforeldrar hans voru Kristján Jónsson, f. 22.4. 1908, d. 16.10. 2012, og Ragnhildur Guðrún Egils- dóttir, f. 28.1. 1907, d. 19.7. 1998. Kynfaðir Ingvars var Sig- urður Jakobsson, f. 18.3. 1929, d. 6.7. 2009. Eftirlifandi eiginkona hans er Ragnhildur Aðalsteins- dóttir, f. 11.6. 1937. Bræður Ingvars samfeðra eru: Agnar Berg, f. 31.12. 1958 ,Víðar, f. 11.12. 1959, og Helgi Halldór, f. 12.10. 1962. Hinn 6. septem- ber 1975 kvæntist Ingvar eftirlifandi eiginkonu sinni, Höllu Ágústsdóttur, f. 15. desember 1954. Foreldrar hennar voru Ágúst Hallsson, f. 28.4. 1924, d. 10.1. 1986, og Oddný Sigurlaug Jónsdóttir, f. 6.3. 1935, d. 15.5. 1970. Kjördætur Ingvars og Höllu eru Ágústa Kristrún, f. 13. febr- úar 1995, og Ragnhildur Björk, f. 22. maí 1997. Ingvar var vélstjóri að mennt og starfaði hjá Landhelgisgæsl- unni frá árinu 1974-2012 er hann fór á eftirlaun. Útför hans fór fram í kyrrþey. Þegar kveðja skal náinn samstarfsmann og vin til ára- tuga kemur margt upp í hugann. Áreiðanlegur, úrræða- góður og ósérhlífinn með af- brigðum er þar á meðal. Þó svo að við hefðum siglt saman á varðskipunum kynntist ég Ingvari fyrst fyrir alvöru eftir að hann hóf störf í tæknideild Landhelgisgæslunnar árið 1981. Okkar fyrsta samstarf var þegar hann kom með í tundurduflaleiðangur árið eftir. Eftir það varð í raun ekki aftur snúið. Ingvar var nokkrum ár- um síðar sendur í nám sem sprengjusérfræðingur hjá danska sjóhernum og í fram- haldi til breska landhersins. Á þessum árum var sprengju- deildin ekki mönnuð deild eins og nú er, heldur lögðum við til hliðar okkar daglegu störf og sinntum verkefnum allt í kring- um landið á öllum tímum sólar- hringsins. Minnisstæðar eru margar ferðir við misjafnar aðstæður þar sem reyndi verulega á út- hald og útsjónarsemi þar sem kostir Ingvars nutu sín vel. Við áttum síðan eftir að fara saman á fjölda námskeiða í Danmörku og Bretlandi þar sem samstarf okkar vakti stundum athygli. Minnist þess að kennari á nám- skeiði í Danmörku sagði: „Þið verðið að tala saman svo við heyrum,“ en við svöruðum að við þyrftum þess ekki því við vissum nákvæmlega hvað hvor myndi gera og hvernig. Smá bendingar eða augnsamband nægði. Á þessum árum lögðum við svo grunninn að sprengjudeild- inni eins og hún er í dag. Ingvar tók við sem tækni- stjóri skipatæknideildar 1992 og sá um allt viðhald varðskip- anna til starfsloka árið 2013. Á þessum árum voru varðskipin Ægir og Týr tekin til gagn- gerra endurbóta og breytinga í Póllandi, 1997, 2001, 2005 og 2006. Ingvar stóð vaktina í Pól- landi í um það bil hálft ár í hvert skipti en fór heim í stutt- an tíma á nokkurra vikna fresti. Í framhaldi af Póllands- verkefnunum kom svo hönnun og smíði á varðskipinu Þór í Síle. Því verkefni fylgdi Ingvar eftir allt til þess að Þór sigldi áleiðis til Íslands. Í öllum þess- um verkefnum áttum við frá- bært samstarf sem fyrr. Í mörg ár héldum við þeim sið að fara árlega að heimsækja skólafélaga og kennara úr skóla sjóhersins í Kaupmannahöfn. Þá var oft glatt á hjalla þar sem við heimsóttum okkar uppáhaldsstaði, svo sem Hviids Vinstue, Skindbuksen og Kong- ens Bar, en svo heppilega vildi til að allir þrír voru í sömu göt- unni. Síðustu slíka ferð fórum við á síðasta ári. Ingvar sat aldrei aðgerða- laus. Hann festi kaup á lóð undir sumarbústað sem hann reisti sjálfur og á sama tíma stundaði hann umfangsmikla skógrækt á lóðinni. Ekki veit ég hvort það var bara fyrir verkefnaskort að hann smíðaði svo annan bústað við hliðina, en sú varð raunin. Þarna áttu þau Ingvar og Halla sér sælureit og hafa dvalið þar mestan part ársins síðustu ár. Ég minnist þess er dóttir mín keypti íbúð og Ingvar frétti að ég væri að undirbúa að setja parket á íbúðina. Hann tilkynnti að hann kæmi í fyrra- málið með vélsög og annað sem til þyrfti. Tveimur dögum síðar var komið parket á alla íbúðina. Svona var Ingvar. Um leið og ég kveð minn mæta og einstaka vin votta ég Höllu og dætrum mína dýpstu samúð. Gylfi Geirsson. Ingvar Jóhann Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.