Morgunblaðið - 08.05.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.05.2019, Blaðsíða 40
Söngkonan María Magnúsdóttir kemur fram á Múlanum á Björtu- loftum í Hörpu í kvöld kl. 21 ásamt píanóleikaranum Kjartani Valde- marssyni og gítarleikaranum Ásgeiri Ásgeirssyni. Á efnisskránni eru uppáhaldslög þeirra og sálmar í eigin útsetningum, í bland við ný og eldri djasslög ástkærra höfunda. María Magnúsdóttir á Múlanum í kvöld MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 128. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Breiðablik sýndi hvílík gæði búa í liðinu þegar það vann flottan 4:1- sigur á Selfossi í gærkvöld í 2. um- ferð úrvalsdeildar kvenna í fót- bolta. Blikakonur fara því vel af stað í deildinni og hafa unnið báða leiki sína, rétt eins og Stjörnukonur sem höfðu betur gegn HK/Víkingi í Garðabæ, 1:0. ÍBV vann nýliða Keflavíkur, 2:0, suður með sjó. »34 Blikakonur sýndu mátt sinn og megin ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Liverpool leikur til úrslita í Meist- aradeild Evrópu í fótbolta annað ár- ið í röð, og í níunda sinn alls í keppni bestu félagsliða álfunnar. Þetta er niðurstaðan eftir ótrúleg- an 4:0-sigur liðsins á Barcelona í gærkvöld þar sem liðinu tókst að slá Spánarmeist- arana út þrátt fyrir 3:0-tap á útivelli í fyrri leiknum. Liv- erpool mætir sig- urliðinu úr ein- vígi Ajax og Tottenham í úrslitaleiknum sem fram fer á heima- velli Atlético Madrid hinn 1. júní næstkom- andi. »35 Liverpool aftur í úrslit eftir ótrúlegan sigur HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Nú fástS s vinnuföt í Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kristján Jóhannsson tenór syngur með Valskórnum á árlegum vortón- leikum, sem verða í Háteigskirkju sunnudaginn 12. maí næstkomandi. „Ég kann vel við rauða litinn og þetta er yndislegt fólk,“ segir stór- söngvarinn. Valskórinn er að ljúka 26. starfs- árinu. Sigurður Helgi Oddsson leik- ur á píanó og Bára Grímsdóttir hef- ur verið kórstjóri frá 2004 og útsetur einnig lög fyrir kórinn. Hún segir að kórinn sé blandaður og kórfélagar hafi yfirleitt komið að starfi knatt- spyrnufélagsins Vals á einn eða ann- an hátt. „Samt eru allir velkomnir og ekki þarf að sýna félagsskírteini,“ segir hún. „Þetta er sérlega góður félagsskapur, gott fólk og gott söng- fólk.“ Íþróttafélög halda ekki almennt úti kórum, en Valskórinn æfir einu sinni vikulega, kemur fram á að- ventukvöldi, heldur jólatónleika og vortónleika og fer í æfingabúðir og söngferðalög innanlands og utan. Eins og þjálfari Bára segir að tónninn hafi verið fallegur, þegar hún tók við kórnum, en hún hafi reynt að aga hann og fín- pússa. „Ég geri kröfur,“ segir hún, en haft hefur verið á orði að hún gæti stjórnað hvaða íþróttaliði sem er. Hún segist ekki hafa þurft að beita sér sérstaklega og þakkar það tengingu kórfélaga við íþróttirnar. „Þau eru alin upp í íþróttum og þar er borin virðing fyrir þjálfaranum. Ég er eini stjórnandinn í kórnum, ég er þjálfarinn, og þau gera það sem ég bið þau að gera með bros á vör. Ég reyni að vera ekki með frekju heldur fer mjúklega að þeim en ákveðið.“ Yfirleitt hafa gestir komið fram með kórnum á vortónleikunum. Lúðrasveit Reykjavíkur var í því hlutverki í fyrra og Marta Kristín Friðriksdóttir var gestasöngvari. Þegar spurðist að Kristján hefði áhuga á að syngja með kórnum var brugðist við. „Við gripum gæsina á meðan hún var volg,“ segir Bára. Kristján Jóhannsson er með þekktustu söngvurum landsins og hefur sungið víða og með mörgum kórum en ekki kór íþróttafélags fyrr en nú. „Í Valskórnum eru gamlir fé- lagar og vinir,“ segir hann um nýj- ustu meðsöngvarana. „Þetta er fyrst og fremst gaman. Það er mjög áríð- andi að syngja vegna þess að söng- urinn gleður, lætur söngvaranum líða vel, bætir og kætir. Allir reyna að gera eins vel og hægt er án þess að bera sig saman við aðra. Aðal- atriðið er að syngja saman, því það er svo gott.“ Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og sem fyrr verða meðal annars lög eftir Sigfús Halldórsson á efnisskránni. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og verður miðasala við innganginn. Ljósmynd/Þorsteinn Ólafs Valskórinn Bára Grímsdóttir og Kristján Jóhannsson standa fyrir framan kórinn á Hlíðarenda. Valsmenn gripu volga gæsina  Kristján Jóhannsson syngur með Valskórnum í fyrsta sinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.