Morgunblaðið - 23.05.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 23.05.2019, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 M A Z D A 2 S U M A R T I L B O Ð ! MAZDA2 NISEKO 1.5 BENSÍN, 90 HESTÖFL, BEINSKIPTUR VERÐLISTAVERÐ: 2.390.000 KR. -200.000 KR. AFSLÁTTUR Reykjavík Bíldshöfði 8 515 7040 Akureyri Tryggvabraut 5 515 7050 Komdu núna og nýttu þér þetta frábæra sumartilboð á Mazda2! mazda.is 2.190.000 KR. Einnig fáanlegur sjálfskiptur á sumartilboði. Afsláttur gildir á öllum útfærslum Mazda2. SUMARTILBOÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Meirihluti efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis leggur til að nokkr- ar breytingar verði gerðar á frum- varpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð. Leggur meirihlutinn til að í bráðabirgðaákvæði verði kveðið á um að laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna taki ekki breytingum fyrr en 1. janúar 2020 og þá í samræmi við þróun á meðaltali reglulegra launa ríkisstarfsmanna árið 2018. Frá og með 1. júlí 2021 taki laun þessara aðila breytingum 1. júlí ár hvert. Þá leggur meirihlutinn til að heim- ild ráðherra til að ákveða að laun hækki hlutfallslega 1. janúar ár hvert til samræmis við áætlaða breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins falli brott. Skýrt verði að laun skuli að- eins taka breytingum 1. júlí ár hvert í samræmi við hlutfallslega breyt- ingu á meðaltali reglulegra launa ríkisstarfsmanna á næstliðnu ári samkvæmt birtum útreikningum Hagstofunnar. Með þessu vilji meiri- hlutinn annars vegar koma í veg fyr- ir að laun ráðamanna og æðstu emb- ættismanna hækki tvisvar á ári og hins vegar tryggja að hækkun launa miðist aðeins við staðfesta útreikn- inga Hagstofunnar en ekki áætlanir. Leggur meirihlutinn einnig til að bráðabirgðaákvæði sem varðar kjör presta breytist og að kveðið verði á um að laun þeirra, sem tóku síðast breytingum samkvæmt ákvörðun kjararáðs frá 17. desember 2017, breytist 1. júlí ár hvert samkvæmt sömu aðferð og önnur laun sem kveðið er á um í frumvarpinu þar til nýtt samkomulag milli ríkis og kirkju hefur náðst um breytt fyrir- komulag á framlögum ríkisins til kirkjunnar. Heimild ráðherra til launahækkana skert  Hækkun launa miðist aðeins við staðfesta útreikninga Hagstofunnar Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, segir að for- sætisnefnd Alþingis hafi rætt það að tímabært sé að hefja undirbúning að endurskoðun laga um þingfarar- kostnað. „Þetta spratt upp af því að við vorum að gera breyt- ingar á ýmsum reglum og lækkuðum greiðslur í kjölfar kjararáðsúrskurðarins,“ sagði Steingrímur við Morg- unblaðið. Hann segir að jafnframt hafi verið rætt um skatta- lega meðferð greiðslna eins og fasts starfs- og ferða- kostnaðar. Greiðslurnar hafi á sínum tíma verið meira en helmingaðar. „Þessum greiðslum er ætlað að mæta útlögðum kostnaði og eru þar af leiðandi skattfríar. En það er ljóst að skattfríðindi stuða suma,“ sagði Steingrímur. Forseti Alþingis sagði að forsætisnefnd myndi setjast yfir þessi mál í góðu tómi, þegar færi gæfist til, en þessi umræða nefndarinnar um þing- fararkostnaðarhliðina hefði í raun ekkert með lagabreytingar um þingfarar- kaup að gera. Nefndin fylgdist að sjálfsögðu með þeim breytingum sem meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar væri að leggja til og honum skild- ist að þær breytingar tækju aðallega til þess að skýra línur milli Alþingis og ráðuneyta hvað varðar ráðherra og heimildir þeirra. agnes@mbl.is Ræða þingfararkostnað FORSETI ALÞINGIS Steingrímur J. Sigfússon Farfuglar voru allir komnir til lands- ins í gær nema þórshani, sem hafði ekki sést, en hann hefur oftast látið sjá sig um þetta leyti. Fuglaáhugamenn lesa gjarnan vefinn fuglar.is þar sem birtast fréttir af flækingsfuglum og fugla- komum. Á Facebook eru nokkrar síður, t.d. Birding Iceland, þar sem birtar eru fuglafréttir frá Íslandi á ensku, og Íslenskar fuglategundir. Jóhann Óli Hilmarsson, ljósmynd- ari og höfundur handbóka um fugla, fylgist vel með fuglakomum. Hann tók meðfylgjandi mynd af brand- svölu á Stokkseyri fyrr í mánuðinum en Jason Orri Jakobsson fann fugl- inn. Mikið hefur sést af svölum á landinu í vor. „Hér hafa sést landsvölur, bæjar- svölur og bakkasvölur og svo brandsvalan. Ég býst við að það verði eitthvert svöluvarp. Landsvala og bæjarsvala hafa orpið hér og gert það gjarnan þegar koma svona gus- ur. Bakkasvala er sjaldgæfari og hefur aldrei reynt varp hér svo vitað sé,“ sagði Jóhann Óli. Brandsvala sást nú í þriðja sinn og er líklega fá- gætasti fuglinn sem sést hefur í vor. Heimkynni hennar eru á Spáni, í Portúgal og við Miðjarðarhaf. Trjástelkur er allfágætur evr- ópskur vaðfugl. Hann sást nú í átt- unda sinn. Jóhann Óli tók myndina af trjástelknum í Njarðvík en Guð- mundur Falk fann fuglinn. Á meðal annarra flækingsfugla má nefna ameríska vaðlatítu sem sást í Garði. Hún er algengur flæk- ingur á haustin en sást nú í fyrsta sinn hér að vori. Annar amerískur flækingur var leirutíta sem sást einnig í Garði. Evrópskur síkjasöngvari sást við Þvottá í Álftafirði, tegundin finnst um alla Norður- og Mið-Evrópu. Einnig sást kvöldfálki við Vík í Lóni. Í lok apríl sást fjalllóa á Suður- nesjum en hún er sjaldgæf sjón. Jó- hann Óli sagði að fjalllóan væri m.a. hátt í fjöllum Skotlands og Noregs. Tegundin hefði alla burði til að lifa hér, ekki síður en heiðlóan. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson Brandsvala Hún er langt að komin og sjaldgæf sjón. Mikið hefur sést af landsvölu og bæjarsvölu í vor. Fágætir fuglar á landinu  Allir farfuglar komnir nema þórshaninn Trjástelkur Tegundin sást hér í áttunda skipti nú í vor og telst því fáséð. Farfuglarnir voru allir komnir í gær nema þórshani sem er væntanlegur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.