Morgunblaðið - 23.05.2019, Page 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
Mikið hefur verið
rætt og ritað um
þriðja orkupakkann
svokallaða, og sýnist
sitt hverjum, sem
verða vill, þar sem
skjöl frá ESB eru
annars vegar, enda
hefur þjóðin löngum
verið klofin í tvennt,
ef ekki þrennt, þar
sem sá aumi félags-
skapur er annars veg-
ar. Það kemur nú líka í ljós í
Bretlandi þessa dagana, þegar
verið er að berjast við að end-
urheimta frelsið aftur úr því helsi,
sem ESB setur á þjóðir sínar,
enda sést nú best á þeim barningi,
hversu heppin við megum teljast
að hafa aldrei blandað frekara
geði við það lið, sem þar stjórnar
málum, en orðið er með EES.
Jafnvel sá, sem harðast barðist
fyrir inngöngu Íslands í ESB, er
nú orðinn afhuga því, sjálfur Jón
Baldvin Hannibalsson, og þá mega
aðrir fara að hugsa dæmið upp á
nýtt, hefði ég sagt. Allt það, sem
hann hefur um málið sagt er sagt
af þekkingu á innviðum EES og
ESB, og því engin ástæða til að
véfengja það.
Þegar Jón Baldvin sem utanrík-
isráðherra vildi inn-
leiða EES-samning-
inn hér á landi á sinni
tíð, þá var ég ein
þeirra, sem voru á
móti því og skrifaði á
mótmælalista gegn
innleiðingu hans, og
ég er enn sami EES-
og ESB-andstæðing-
urinn og ég var þá, og
verð það alltaf.
Ég hef alltaf litið á
Sjálfstæðisflokkinn
sem heldur and-
stæðan ESB-aðild,
svo og EES-samningnum, frekar
en hitt, nema einhver prósent,
sem í dag kjósa að kalla sig Við-
reisn, en mér sýnist í þessu máli
fleiri en þeir, sem komu sér úr
flokknum, vera á sömu línunni
eins og Viðreisnarfólk, og vilja
endilega selja auðlindir landsins,
sem felst í virkjun fallvatna í þágu
sæstrengs og annars verra. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur líka til
þessa, eins og ég hef skilið hlut-
verk hans frá stofnun, staðið
öruggan vörð um sjálfstæði lands-
ins á öllum sviðum, og virt þá
staðreynd, að við erum lýðveldi
með full yfirráð yfir auðlindum
okkar á sjó og landi. Þegar flokks-
menn hans, þingmenn og ráð-
herrar eru farnir að renna sömu
slóðina og ESB-flokkarnir, og vilja
meina, að það sé í lagi að taka á
sig það ok, sem þessum þriðja
orkupakka fylgir, kalla allt annað
einangrunarstefnu, þá get ég ekki
annað sagt en: Svo bregðast
krosstré… – og það ekki að
ósekju. Sama gæti ég sagt um VG.
Ég fagnaði því, að Sigurður Ingi
Jóhannsson vildi fara hægt í sak-
irnar og skoða málin betur, þegar
hann sá viðbrögð okkar andstæð-
inga ESB og EES, og ekki síst,
þegar Jón Baldvin tók afstöðu
með okkur og fannst kommiss-
ararnir í Brüssel vera gengnir ein-
um of langt með orkustefnu sinni
og ásælni í íslenskar auðlindir. Þá
fannst Sigurði Inga vert að doka
við og kanna málin betur, og láta
ekki Miðflokkinn einan um það og
að standa vörð um lýðveldið, áður
en þessi ósköp verða samþykkt
samhljóða í þinginu, sem ég leyfi
mér að stórefast um, að verði, og
útkoman úr atkvæðagreiðslunni
gæti gengið þvert á flokka, líkt og
ESB-umræðan öll hefur verið til
þessa og klofið flokka niður í ein-
ingar sínar. En þetta stóð því mið-
ur ekki lengi, og ég harma það,
enda eiga allir að vita, að það er
aldrei hægt að treysta ESB.
Ég treysti því vel og trúi, sem
Jón Baldvin hefur sagt og segir
um orkupakka ESB, enda verða
menn að athuga það, að þar talar
maður, sem gjörþekkir þessi mál
og hefur kynnt sér þau rækilega,
veit því nákvæmlega, hvað hann
er að tala um eftir langa þjónustu
á sviði utanríkismála.
Hví skyldi ekki vera hægt að
taka mið af því og trúa því sann-
arlega, sem slíkur maður segir?
Betur væri, að þingheimur gæti
haft það að leiðarljósi, sem Jón
Baldvin hefur sagt, enda ætti
hann að geta túlkað þessi mál
flestum öðrum betur. Það væri því
vitið meira, að þingheimur rasaði
ekki um ráð fram og færi blind-
andi að samþykkja eitthvað fyrir
þjóðarinnar hönd, sem á eftir að
reynast henni afdrifaríkt síðar
meir, og þeir eigi jafnvel síðar eft-
ir að sjá eftir, komi þeir tímar, að
málin snúist í höndum þeirra,
enda vitum við öll, m.a. með því að
fylgjast með framkomu ESB
gagnvart Bretum núna, hvernig
yfirvöldin þar geta hagað sér og
jafnvel brotið á þjóðum, rjúfa
gerða samninga, virða ekki sjálf-
stæði þjóða og þá fyrirvara og til-
lögur, sem koma frá viðsemj-
endum. Við sjáum það í dag
gagnvart Bretum, þar sem allir
samningar skulu gerðir á for-
sendum kommissaranna í Brüssel.
Bretar fá engu að ráða, og svo
verður það um þessa orkupakka-
samþykkt af okkar hálfu, og ég
furða mig stórum á Guðlaugi Þór
og þeim öðrum í Sjálfstæðis-
flokknum, ef þeir halda virkilega,
að varnaglarnir, sem þeir setja
fyrir samþykkt þriðja orkupakk-
ans haldi, þegar til á að taka. Þeir
eiga að vita betur, ef þeir eru ekki
því glámskyggnari á framkomu
ESB en hefur verið til þessa, en
Jón Baldvin hefur áttað sig á fyrir
löngu, þekkir þá í Brüssel líka
betur en svo, og segir því mjög
varasamt að samþykkja þennan
orkupakka.
Gáfulegast væri því að leggja
orkupakkann fyrir þjóðina, áður
en lengra er haldið. Ég skora þess
vegna á þingheim og forseta
landsins að leyfa þjóðinni að hafa
síðasta orðið í þessum málum,
hvað sem ESB segir um það, enda
erum við lýðfrjáls þjóð, og sem
betur fer, í engum þeim tengslum
við ESB, sem bannar slíkt, og
megum þakka okkar sæla fyrir
það.
Um þriðja orkupakkann
Eftir Guðbjörgu
Snót Jónsdóttur »Ég skora þess vegnaá þingheim og for-
seta landsins að leyfa
þjóðinni að hafa síðasta
orðið í þessum málum.
Guðbjörg Snót
Jónsdóttir
Höfundur er guðfræðingur og
félagi í Heimssýn.
Að geta borðað og
drukkið er eitt af því
sem við tökum sem
gefnum hlut í lífinu,
rétt eins og að geta
gengið og talað. Við
veikindi og slys getur
kynging, þessi „sjálf-
sagða“ færni, hins
vegar skerst. Þá getur
fólk ekki lengur kyngt
mat og drykk á skil-
virkan og öruggan hátt. Það getur
komið fyrir alla að finna fyrir smá-
vægilegum erfiðleikum við að
kyngja, t.d. að svelgjast á stöku
sinnum, en viðvarandi kynging-
arvandi er mál sem óráðlegt er að
hunsa. Kyngingartregða í munni og
koki (e. oropharyngeal dysphagia)
getur komið fyrir á öllum aldri, hjá
bæði börnum og fullorðnum. Al-
gengast er að kyngingartregða sé
afleiðing sjúkdóms, t.d. heilablóð-
falls, ýmissa taugasjúkdóma og
krabbameins í höfði eða hálsi.
Kyngingartregða getur ágerst
smátt og smátt (t.d. í parkinsons-
veiki), eða komið skyndilega (t.d.
við heilablóðfall eða höfuðáverka).
Hún getur verið allt frá því að vera
væg, upp í að vera mjög alvarleg,
jafnvel þannig að viðkomandi geti
engu kyngt, heldur þurfi að fá alla
næringu gegnum slöngu (sondu).
Kyngingartregða hefur margvísleg
áhrif á daglegt líf, heilsu og lífsgæði
og getur m.a. leitt til ofþornunar,
næringarskorts, lungnabólgu og fé-
lagslegrar einangrunar. Kyngingar-
tregða getur auk þess valdið hættu
á að það standi í fólki matur, þannig
að loftvegur lokist og fólk jafnvel
kafni.
En hvað er kynging? Kynging er
býsna flókið ferli sem krefst virkni
og samhæfingar fjölmargra vöðva
og tauga, auk svæða í hvelaheila og
heilastofni. Kynging er ferð fæðu
gegnum munn, kok og vélinda og er
oft skipt í þrjú stig: munnstig, kok-
stig og vélindastig og hefur hvert
stig sína sérstöðu, t.d. er munnstig
viljastýrt en kok- og vélindastig
ósjálfráð.
Aldurstengdar breytingar á
kyngingargetu koma
fram hjá flestum upp
úr miðjum aldri, rétt
eins og á sjón og
heyrn, og hamla fólki
yfirleitt lítið í daglegu
lífi. Líkur á kynging-
artregðu hins vegar
margfaldast í réttu
hlutfalli við líkur á
ákveðnum sjúkdómum
sem algengari eru með-
al eldri aldurshópa en
yngri. Eins og hér hef-
ur verið nefnt getur kynging-
artregða haft mjög alvarlegar af-
leiðingar fyrir heilsu fólks og brýnt
að grípa til viðeigandi ráðstafana.
Talmeinafræðingar hafa margir
hverjir sérþekkingu á kynging-
artregðu á munn- og kokstigi.
Læknar geta vísað einstaklingum til
talmeinafræðinga sem greina vand-
ann nánar, leggja til úrræði og veita
ráðgjöf til einstaklinga, aðstand-
enda og heilbrigðisstarfsfólks. Tal-
meinafræðinga má finna víða um
land, m.a. sjálfstætt starfandi og á
heilbrigðisstofnunum. Þess má geta
að á Landspítala og Sjúkrahúsinu á
Akureyri hafa talmeinafræðingar
umsjón með sérhæfðum myndrann-
sóknum á kyngingargetu á munn-
og kokstigi, og veita ráðgjöf í kjöl-
farið.
Óhætt er að spá aukinni tíðni
kyngingartregðu í ljósi breytinga á
aldurssamsetningu þjóðarinnar.
Auka þarf vitund almennings og
heilbrigðisstarfsfólks um kynging-
artregðu og þau úrræði sem í boði
eru til að auðvelda fólki að nærast á
eins öruggan hátt og kostur er.
Eins og að
drekka vatn?
Eftir Elísabetu
Arnardóttur
Elísabet Arnardóttir
»Kyngingartregða
getur haft alvar-
legar afleiðingar fyrir
heilsu fólks. Auka þarf
vitund almennings og
heilbrigðisstarfsfólks
um kyngingartregðu.
Höfundur er deildarstjóri
talmeinaþjónustu Landspítala
og stundakennari við HÍ.
H
ér
að
sp
re
nt
I L S S T A Ð I R - H Ú S A V Í K
INNI fasteignasala auglýsir vinnubúðir
og annað lausafé til sölu
Nánar tiltekið er um að ræða einingahús staðsett að Hrauni, Reyðarfirði, önnur hús, ýmis laus búnaður og annað sem á
svæðinu er. Allt verður selt til flutnings, og þurfa kaupendur að greiða kostnað vegna þess.
Svæðið verður opið til skoðunar sunnudaginn 26. maí 2019 kl. 13.00 til 17.00.
Mikilvægt að kaupendur kynni sér vel söluskilmála, sem fela það í sér að seljandi tekur enga ábyrgð á ástandi hins
selda. Ástand eigna er mjög misjafnt. Skorað er á kaupendur að kynna sér vel þá muni sem þeir hyggjast gera tilboð í.
Hægt verður að bjóða í lausafé á staðnum. Þeir sem bjóða í heilar lengjur munu njóta forgangs á við þá sem bjóða í
stakar einingar.
Hægt verður að senda inn kauptilboð, senda fyrirpurnir og skoða myndir á vefsíðunni www.vinnubudir.com. Einnig má
senda tilboð í netfangið sigrun@inni.is.
Áskilinn er réttur til að hafna öllum tilboðum og taka hvaða tilboði sem er. Stefnt er að því að hefja samningsgerð á
grundvelli tilboða 3. júní 2019.
Það athugast að seljandi gerir enga ástandslýsingu á hinu selda
og hvetur kaupendur til að kynna sér ástandið vel, en fyrir liggur að
eignirnar hafa verið ónotaðar um langt skeið.
Upplýsingar á www.vinnubudir.com