Morgunblaðið - 23.05.2019, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 23.05.2019, Qupperneq 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Sýningin er byggð á háheilögum sannleika í bland við eintóman upp- spuna og lygar,“ segir Agnes Wild leikstjóri um leiksýninguna Djákninn á Myrká - Sagan sem aldrei var sögð sem leikhópurinn Miðnætti frum- sýnir í Samkomu- húsinu á Akureyri í kvöld kl. 20 og sýnir annað kvöld kl. 20. Aðeins verða þessar tvær sýningar. Uppfærsluna vinnur Miðnætti í samstarfi við Leikfélag Ak- ureyrar undir merkjum Gróðurhúss- ins. Að sögn Agnesar skipa leikhóp- inn Miðnætti auk hennar tónlistarkonan Sigrún Harðardóttir og leikmynda- og búningahönnuður- inn Eva Björg Harðardóttir. „Við komum úr ólíkum listgreinum og fáum til liðs við okkur mismunandi listafólk í hin ýmsu verkefni,“ segir Agnes, en meðal fyrri sýninga Mið- nættis má nefna brúðusýninguna Á eigin fótum sem sýnd var við góðar viðtökur. Gaman að vinna með arfinn „Við í leikhópnum Miðnætti höfum mjög mikinn áhuga á þjóðsögum og höfum gaman af því að vinna með arfinn,“ segir Agnes þegar hún er spurð hvers vegna þjóðsagan um djáknann á Myrká hafi orðið fyrir valinu sem efniviður. „Djákninn á Myrká er aðalþjóðsaga Norðurlands og gerist í Hörgárdal hér í Eyjafirð- inum. Það kom því ekki annað til greina en velja þessa sögu,“ segir Agnes og bendir á að sýningin sé unnin í samsköpunarferli. „Handritið er samið á æfingaferlinu í samsköpun hópsins. Þjóðsagan sjálf er ekki nema um þrjár blaðsíður að lengd, en sýningin er um 60 mínútur,“ segir Agnes og tekur fram að leikararnir Birna Pétursdóttir og Jóhann Axel Ingólfsson bregði sér samtals í um 20 hlutverk. „Fyrsti hálftími sýningarinnar er „Hryllilegt gamanverk“ Agnes Wild  Miðnætti frumsýnir Djáknann á Myrká - Sagan sem aldrei var sögð Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þessar viðbætur smellpössuðu við það sem ég var að gera í málverkinu á þessum tíma,“ segir Sigurður Árni Sigurðsson þar sem við horfum á fyrstu „leiðréttinguna“ sem hann gerði snemma árs 1992. Þetta er svarthvít ljósmynd í póstkortastærð af hundi. Sigurður límdi myndina á gulleita örk og teiknaði inn á hana; bætti við skuggum af gróðri og af hundinum. Hann gerði ljósmyndina þannig að sínu verki, „leiðrétti“ hana. Síðan er liðinn rúmur aldar- fjórðungur og Sigurður Árni, sem er einn kunnasti myndlistarmaður sinn- ar kynslóðar hér á landi, hefur sam- hliða annarri vinnu sinni í myndlist- inni haldið áfram að bæta við „leiðréttingum“, þar sem hann vinnur einkum með fundin póstkort og ljós- myndir. Hann „leiðréttir“ fleira á þennan hátt, til að mynda frímerki og steina. Og á laugardaginn kemur kl. 16 verður opnuð í Hverfisgalleríi á Hverfisgötu 4 sýning sem hann kallar Leiðréttingar/Corrections, með um- fangsmiklu úrvali verka úr þessari at- hyglisverðu og merku myndröð. Þetta er orðinn viss leikur Samtímis opnun sýningarinnar kemur út vegleg bók í stóru broti með sama heiti og í henni eru 75 verk. Í bókinni eru ný grein eftir Æsu Sig- urjónsdóttur um verkin, eldri skrif eftir Jón Proppé og Hallgrím Helga- son um þau og formáli eftir kunnan franskan fræðimann, Bernard Mar- cadé, sem var prófessor Sigurðar Árna á sínum tíma í Frakklandi og hefur áður skrifað um verk hans. Í textunum er til að mynda fjallað um hugmyndir Marcels Duchamp um fundna hluti sem breytt er í verk, readymade eða objet trouvé eins og það kallast upp á ensku og frönsku, og hvernig það tengist þessum verk- um þar sem Sigurður Árni einmitt vinnur út frá fundnu myndefni. „Árið 1990 var ég með vinnustofu allt sumarið í Sete í Suður-Frakk- landi.“ Þannig hefur Sigurður Árni söguna af því hvernig fyrstu leiðrétt- ingarnar urðu til. „Þar í bæ er hefð að heimsækja flóamarkaðinn á sunnu- dagsmorgnum og fá sér síðan kaffi og krabbakökur. Ég tók þátt í þessu allt sumarið og við að ganga um flóa- markaðinn vaknaði hjá mér áhugi á gömlum póstkortum og sérstaklega þeim handlituðu, og ég fór að safna þeim. Áhuginn tengdist málverk- unum mínum, litirnir í þessum gömlu handlituðu prentuðu póstkortum eru svo áhugaverðir. Eftir sumarið átti ég dágott safn af kortum og öðrum gömlum ljósmyndum. Ein af þessum myndum var lengi uppi við í vinnustofunni, ómerkileg mynd tekin ofan á hund, hún var rifin í einu horninu en skuggaspilið í henni fannst mér skemmtilegt. Eftir að myndin hafði verið á vinnuborðinu mínu í meira en ár datt mér í hug að líma hana á pappírsörk og framlengja skuggana í kringum hundinn. Ég man hvað mér fannst merkilegt þeg- ar skugginn af gróðrinum og sá af hundinum sameinuðust í teikning- unni. Þetta tengdist þarna strax frá upphafi því sem ég var að velta fyrir mér og hef mikið unnið með, eins og hugleiðingum um forgrunn og bak- grunn í myndverkum. Við að gera fyrstu leiðréttingarnar velti ég mikið fyrir mér hvort fundna myndin eða póstkortið væri fyrirmyndin í verkinu eða það sem það sýndi. Var póst- kortið listaverkið eða teikningin mín?“ Sigurður Árni segir fyrstu leiðrétt- Tvær hliðar á öllum málum  Umfangsmikið úrval „leiðréttinga“ Sigurðar Árna Sigurðssonar verður á sýningu sem opnuð verður í Hverfisgalleríi á laugardag  Verk frá 27 árum  Samtímis kemur út vegleg bók með leiðréttingum Morgunblaðið/Einar Falur Fjöldi „Ég hef í raun aldrei séð svona margar leiðréttingar saman,“ sagði Sigurður Árni þar sem verkin voru saman komin á vinnustofu hans á dögunum. Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Léttar og sveigjanlegar umgjarðir. Skoðið litríkt úrvalið hjá okkur! 25% afsláttur af litríkum gleraugum fyrir krakka* *Gildir til 1. júní
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.