Morgunblaðið - 17.08.2019, Side 2

Morgunblaðið - 17.08.2019, Side 2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hverfisgata Þjóðleikhúsið er afgirt frá götunni vegna framkvæmdanna. Aðgengi er lokað frá Hverfisgötu  Nýtt leikár að hefjast í Þjóðleikhúsinu  Leikhúsið var ekki látið vita af seinkun framkvæmdaloka „Það er ekki nokkur leið að komast að Þjóðleikhúsinu frá Hverfisgötu. Menn þurfa að fara krókaleiðir frá Lindargötu og það getur verið erfitt, ekki síst fyrir prúðbúna frumsýning- argesti og dömur á háum hælum,“ sagði Ari Matthíasson þjóðleikhús- stjóri. Hann sagði að nýtt leikár hæf- ist mánudaginn 19. ágúst með setn- ingarathöfn. Um leið verður miða- salan opnuð. Margir koma þangað að kaupa kort, einkum eldra fólk sem kaupir ekki á netinu. Fyrsta frum- sýning leikársins á stóra sviðinu, Brúðkaup Fígarós, verður 7. sept- ember. Það að loka Þjóðleikhúsið af með framkvæmdum við Hverfisgötu í upphafi nýs leikárs er grafalvar- margir börn og fólk sem á erfitt með að komast um. Þess vegna er mikil- vægt að við séum vel upplýst. Mögu- lega verðum við fyrir tjóni vegna þess að fólk kemst ekki til að njóta þess sem við höfum kynnt með ærn- um tilkostnaði.“ Tekið skal fram að upplýsingafulltrúi frá Reykjavíkur- borg hafði samband við Ara í gær. „Ég hef líka ítrekað rætt við Reykjavíkurborg um hvað svæðið í kringum Þjóðleikhúsið er illa lýst upp, bæði á dauflýstri Lindargötu og Hverfisgötu. Nú fer að verða dimmt á kvöldin og mjög mikilvægt að svæðið sé vel upplýst svo gestir leik- hússins komist greiðlega um,“ sagði Ari. gudni@mbl.is legt, að mati Ara. „Það er skylda okkar að tryggja að sjúkra- og slökkvibílar hafi greiðan aðgang að húsinu þegar sýningar hefjast. Ég veit ekki hvernig það á að vera hægt við þessar aðstæður,“ sagði Ari. Hann kvaðst árum saman hafa verið í sambandi við Reykjavíkur- borg og sagt í hvert skipti að upplýsa þyrfti leikhúsið tímanlega um allar framkvæmdir. Síðast hafði hann samband í vor og var sagt að fram- kvæmdunum lyki um Menningar- nótt. „Þjóðleikhúsið fékk engar upp- lýsingar um breytingar á þeim áætlunum. Ég las um þær í blöðun- um,“ sagði Ari. „Það koma 120.000 gestir í Þjóðleikhúsið á hverju ári, 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2019 það byrjar allt með fjórum fræjum ENN HOLLARI OLÍA OMEGA 3 & 6 + D- & E-VÍTAMÍN Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Snörp orðaskipti urðu á fundi um þriðja orkupakkann í utanríkismálanefnd Alþingis í gær á milli einstakra þing- manna og héraðsdómarans Arnars Þórs Jónssonar. Hann hafði lagt minnisblað fyrir fundinn þar sem með- al annars er talað um að lögun að regluverki Evrópusam- bandsins í orkumálum feli í sér „takmörkun á fullveldi þjóðarinnar í raforkumálum“. Í minnisblaðinu segir Arn- ar einnig að það að innleiða andmælalaust erlendar regl- ur sé að gangast við óbeislaðri „útþenslu setts réttar“ í „viljalausri þjónkun“. Það grafi undan tilverurétti lög- gjafarþings Íslendinga. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna og varaformaður utanríkismálanefndar, sagði málflutning Arnars móðgun við sig og aðra nefndar- menn. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsókn- arflokksins, tók í sama streng. EES-samningi stefnt í uppnám Hilmar Gunnlaugsson, lögmaður og sérfræðingur í orkurétti, kom fyrir fundinn og sagði að beinlínis væri erfiðara að skylda Ísland til að leggja sæstreng ef Ísland innleiddi þriðja orkupakkann en ella. Margrét Einarsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og einn þriggja höfunda álitsgerðar um laga- legar afleiðingar synjunar orkupakkans, sagði að synjun samningsins myndi stefna EES-samningnum í uppnám. Hún sagði ekkert ákvæði í þriðja orkupakkanum sem skyldaði íslensk stjórnvöld til að leggja sæstreng eða heimila lagningu hans. Gestir fundarins höfðu flestir áður komið fyrir utanrík- ismálanefnd eða atvinnuveganefnd. Aðrir höfðu tjáð sig nokkuð um þriðja orkupakkann í opinberri umræðu. Arnar var sá eini sem kom fyrir nefndina sem varaði við samþykkt hans. Boðað er til annars fundar í nefndinni um orkupakkan næstkomandi mánudag. Deilt á fundi um orkupakka  Alþingismenn sögðu málflutning héraðsdómara móðgandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Utanríkismálanefnd Nokkrir gestir komu á fundinn. Gefin var út skýrsla í gær á vegum sérfræðinefndar Orkunnar okkar um „áhrif inngöngu Íslands í Orku- samband Evrópusambandsins“. Niðurstaða skýrslunnar er helst sú að Alþingi eigi að hafna upptöku þriðja orkupakkans þar sem innleið- ing hans sé „skaðleg fyrir íslenska þjóð, efnahag hennar og náttúru“. Í skýrslunni kemur einnig fram að innleiðing þriðja orkupakkans verði til þess að óhjákvæmilega skapist þrýstingur á Íslendinga að leggja sæstreng. Skýrslan er rituð „í ljósi þess að Alþingi og íslensk þjóð standa nú frammi fyrir því að taka eina þá stærstu ákvörðun sem þjóðin hefur staðið frammi fyrir í sögu íslensks lýðveldis og jafnvel mun lengur,“ að því er fram kemur í inngangi skýrslunnar. Ritstjórar skýrslunnar eru Jónas Elíasson prófessor, Stefán Arnórs- son prófessor og Haraldur Ólafsson, prófessor og veðurfræðingur. Haraldur sagði í samtali við mbl.is í gær að innleiðing orku- pakka eitt og tvö skuldbyndi Ísland ekki til að innleiða þann þriðja líka. Eðlilegt væri þó, að mati Haralds, að „bakka út úr“ orkupakka eitt og tvö. Innleið- ing sögð skaðleg  Orkupakka- skýrsla komin út Tveggja daga sumarfundi forsætisnefndar Al- þingis, sem haldinn var á Hólum í Hjaltadal, lauk í gær. „Þetta var starfsamur fundur og gagn- legur,“ sagði Steingímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, í samtali við Morgunblaðið. Á Hólafundi var kynnt vinna við endurskoðun kosningalaga og þingskapa Alþingis. Einnig var farið yfir ný upplýsingalög, að því marki sem þau taka til stjórnsýslu þingsins. Þá greindu umboðsmaður Alþingis og ríkisendurskoðandi, forsvarsmenn undirstofnana þingins, frá starfi og stöðu sinna stofnana. Einnig var farið yfir starfsáætlun Al- þingis, en starf hefst með þriggja daga sumar- þingi í ágústlok. Hinn 10. september verður 150. löggjafarþingið svo sett. sbs@mbl.is Forsætisnefnd Alþingis á Hólum í Hjaltadal Ljósmynd/Gylfi Jónsson Ræddu breytingar á starfsumhverfi og þingstörfin fram undan á sumarfundi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.