Skessuhorn - 01.06.2016, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 20162
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur
sunnudaginn 5. júní næstkomandi. Af því
tilefni er boðið til hátíðardagskrár víða um
Vesturland um helgina. Dagskrána má sjá
í sérstöku Sjómannadagsblaði sem fylgir
Skessuhorni vikunnar.
Á morgun er spáð sunnanátt, 5-10 m/s og
dálítilli vætu vestast á landinu en annars
hægri vestlægri eða breytilegri átt og björtu
með köflum. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast inn til
sveita. Hægviðri eða hafgola og víða léttskýj-
að á föstudag og laugardag en líkur á þoku-
lofti við sjávarsíðuna. Áfram hlýtt í veðri. Á
sunnudag og mánudag er útlit fyrir hæga
breytilega átt eða hafgolu. Skýjað með köfl-
um eða bjartviðri en líkur á síðdegisskúr-
um. Hiti 10 til 17 stig. Já, sumarið er komið
elskurnar!
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvernig er þín sokkamenning?“ Yfirgnæf-
andi meirihluti, eða 59 prósent, sögðust allt-
af ganga í samstæðum sokkum. „Allir mínir
sokkar eru eins,“ sögðu 16% og „engin regla
á þessu“ sögðu 14%. „Nota sokka af sitt-
hvorri sort,“ sögðu 7% og 4% ganga aldrei
í sokkum.
Í næstu viku er spurt:
Í framhaldi af spurningunni um sokkana,
fýsir okkur að vita: Hvorn skóinn reimar
þú fyrst á þig?
Fiskveiðar eru ein af stærstu atvinnugrein-
um þjóðarinnar. Sjómenn hafa í aldanna rás
haldið til hafs og oft lagt líf sitt að veði til að
draga björg í bú. Sjómenn og fjölskyldur
þeirra eru Vestlendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Afhenti gestabækur
úr vitanum
AKRANES: Í vikunni sem leið
var Héraðsskjalasafni Akraness
afhentar gestabækur sem gest-
ir Akranesvita hafa ritað nöfn
sín í frá 24. mars 2012. Gesta-
bækurnar eru framtak Hilm-
ars Sigvaldasonar vitavarðar en
hann opnaði sjálfur vitann fyrir
gesti fyrir fjórum árum og hefur
verið sívaxandi straumur fólks
í hann síðan. Bækurnar eru 20
talsins og hafa í kringum 25
þúsund gestir skrifað í þær. Að
sögn Hilmars hafa þó mun fleiri
heimsótt vitann og er 21. bókin
langt komin. Akranesviti verð-
ur opinn fyrir gesti alla daga í
sumar á milli klukkan 10 og 16.
Alla virka daga verða haldnir
tvennir stuttir tónleikar klukk-
an 14, þar sem nemendur Tón-
listarskólans á Akranesi koma
fram. Á meðfylgjandi mynd er
Hilmar Sigvaldason að afhenda
Gerði Jóhönnu Jóhannsdóttur
héraðsskjalaverði gestabækurn-
ar tuttugu.
-grþ
Straumlaust eina
nótt í næstu viku
BORGARFJ: Aðfararnótt
þriðjudagsins 7. júní næstkom-
andi frá miðnætti til kl. 07:00
verður straumlaust um gjörvall-
an Borgarfjörð norðan Skarðs-
heiðar. Það mun vera óhjá-
kvæmilegt vegna vinnu í að-
veitustöð rafmagns við Vatns-
hamra í Andakíl. „Straumleys-
ið nær til alls dreifikerfis Rarik
norðan Skarðsheiðar, þ.e. Borg-
arfjörð, Mýrasýslu og þar með
allt þéttbýlið svo sem Borg-
arnes, Bifröst og Hvanneyri.
Varavélar verða keyrðar og er
ekki gert ráð fyrir að til straum-
leysis komi á Snæfellsnesi.
Landsnet ráðgerir að vinna á
flutningslínukerfi sínu á Snæ-
fellsnesi dagana 8.-10. júní og
á ekki að koma til straumleysis
hjá notendum þar sem varavél-
ar verða keyrðar meðan á þeirri
vinnu stendur,“ segir í tilkynn-
ingu frá Rarik.
-mm
KYNNTU ÞÉR
LANDSINS MESTA
ÚRVAL AF HELLUM
OG GARÐEININGUM
Sendum vörur um land allt. Hafðu samband
í síma 412 5050 eða á sala@bmvalla.is.
bmvalla.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
62
20
1
Á fimmtudaginn í liðinni viku var
Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi formlega afhent
nýtt hjól. Það gerir íbúum Höfða nú
kleift að fara í hjólatúra með sjálf-
boðaliðum sem taka að sér að stjórna
hjólunum. Hjólið kostaði 800.000
krónur og voru það Lionsklúbbur-
inn Eðna, Slysavarnadeildin Líf og
Andrea Björnsdóttir á Eystri-Leir-
árgörðum sem söfnuðu fyrir hjól-
inu, ásamt því að hluti kaupverðsins
safnaðist með frjálsum framlögum í
bauka sem settir voru upp innanhúss
á Höfða. Konur úr Lionsklúbbnum
Eðnu afhentu Kjartani Kjartanssyni,
framkvæmdarstjóra Höfða, lykl-
ana að hjólinu og fulltrúar frá Slysa-
varnafélaginu Líf komu og gáfu
fjóra hjálma. Að lokinni afhendingu
hjólsins í síðustu viku var viðstödd-
um boðið upp á kaffi og meðlæti.
Þar sem hjólið er heldur óhefð-
bundið og ætlað til að flytja farþega
þurfa þeir sem stýra því að sækja
námskeið. Að sögn Elísabetar Ragn-
arsdóttur, sjúkraþjálfara á Höfða,
hafa nú þegar 15 sjálfboðaliðar farið
á námskeið, bæði þeir sem vilja ein-
göngu hjóla með eigin aðstandend-
ur og aðrir sem eru tilbúnir að hjóla
með hvern sem er.
arg
Kjartan Kjartansson framkvæmdarstjóri á Höfða, fulltrúar frá Lionsklúbbunum Eðnu og Slysavarnadeildinni Líf við
afhendingu á hjólinu.
Íbúum á Höfða gefið veglegt hjól
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rann-
sóknar sem unnin var fyrir Kokka-
landsliðið af Gallup þá telja Íslend-
ingar að lambakjöt sé þjóðarréttur
Íslendinga. Nærri 74% landsmanna
álíta að lambakjöt og lambakjöts-
réttir séu þjóðarréttur Íslendinga.
Rannsóknin var netkönnun fram-
kvæmd á tímabilinu 22. mars til 1.
apríl 2016. Úrtakið í könnuninni var
1418 manns á öllu landinu, 833 svör-
uðu eða 58,7%. Það sem var nefnt á
eftir lambakjötsréttum var fiskur/ýsa
með 5,9%, pylsa með 5,5% en 2,1%
nefndu pizzu.
Hafliði Halldórsson, forseti klúbbs
Matreiðslumanna og liðsmaður í
Kokkalandsliðinu, segir: „Ég er mjög
ánægður að það sé á hreinu hver
þjóðarréttur Íslendinga er. En það
felast jafnframt tækifæri í þessu fyr-
ir íslenska matreiðslumenn og mat-
armenningu okkar sem reiðir sig á
hágæða íslenskt hráefni. Lambakjöt
er úrvalshráefni og einstakt á heims-
vísu hvað varðar hreinleika og bragð.
Ég ólst upp við lambið í minni æsku
í sveitinni og þekki vel hversu ein-
stakt það er og jafnframt mikið eld-
að á mínu heimili.“ mm
Lambakjöt er þjóðarréttur Íslendinga
Skemmtiferðaskipið Le Boreal
mun koma við á Akranesi 30. júlí
á næsta ári. Þetta eru tíðindi fyrir
ferðaþjónustu á svæðinu þar sem
Le Boreal verður jafnframt fyrsta
skemmtiferðaskipið sem á viðkomu
á Akranesi. Skipið er nýlegt, smíðað
árið 2010, er 142 metrar að lengd
og 18 metra breitt. Það leggur
upp úr miklum lúxus fyrir farþega.
Áhöfn skipsins telur 139 manns en
skipið tekur allt að 264 farþega.
Skagamenn gætu átt von á fregnum
af fleiri komum skemmtiferðaskipa
því samkvæmt frétt Faxaflóahafna
hefur skipafélagið Variety Cruises
einnig lýst yfir áhuga á að stoppa á
Akranesi á næsta ári.
bþb
Skemmtiferðaskip til Akranes á næsta ári