Skessuhorn


Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 47

Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 47
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 47 Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn fiskverkun óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn. Sara Hjörleifsdóttir rekur veitinga- staðinn Sjávarpakkhúsið í Stykkis- hólmi og selur þar mikið af bláskel. Hún segir bláskelina, sem hún fær frá Símoni Sturlusyni, það vinsælasta á matseðlinum hjá sér. Símon er annar eiganda fyrirtækis- ins Íslensk bláskel og sjávargróður. Bláskelin frá fyrirtækinu er víða bor- in fram í Stykkishólmi en skelin er einnig seld til veitingahúsa og hótela um allt land, þó mest á Snæfellsnesi og í næsta nágrenni. Fyrirtækið byrj- aði að selja bláskel fyrir sex árum og segir Símon aðeins örfáa hafa borð- að hana hér á landi fyrir þann tíma. Í dag er raunin önnur og bláskelin afar vinsæl, ekki hvað síst við Breiða- fjörðinn þar sem hún er ræktuð. Fyr- irtækið ræktar ekki bara bláskel held- ur veiðir og þurrkar einnig þara og sér Símon mikla framtíð í því. Þá tel- ur hann að þarinn eigi eftir að verða mun vinsælli en bláskelin þegar fram líða stundir. jse/ Ljósm. úr safni. Bláskelin úr Breiðafirði vinsælust Íslensk bláskel er herramannsmatur. Beltisþari er einnig verkaður hjá Ís- lenskri bláskel. að það hafi ekki haft áhrif á veðrið. En ég hef heyrt um skipstjóra sem varð svo æfur þegar hann sá sviðin í pottinum að potturinn fékk að fara í sjóinn ásamt sviðunum sem í hon- um voru. Atvinnutilboð í hverri landlegu Nú er mikil eftirspurn eftir góð- um kokkum þar sem ferðaþjónustan er að vaxa hratt. Þar sem Jónas hef- ur gott orð á sér fyrir störf sín við matreiðslu leikur blaðamanni for- vitni að vita hvort hann fái ekki mörg og freistandi atvinnutilboð? „Það er mjög mikil eftirspurn eftir kokk- um í landi og ég fer ekki í frí án þess að mér sé boðin einhver vinna. Það virðist vera hálfgert gullgrafaraæði tengt ferðaþjónustunni. Samt hef ég ekki ennþá fengið það atvinnutil- boð sem heillar mig svo mikið að ég sé tilbúinn að hætta sjómennskunni. Ég kann vel við þetta fyrirkomulag að vinna í fjórar vikur og eiga svo frí í rúmar fjórar. Það gefst dýrmætur tími til að sinna fjölskyldu og áhuga- málum í frítúrunum. Vissulega er oft ýmislegt sem maður missir af tengt fjölskyldu og vinum þegar maður er á sjónum, en það eru margir kostir á móti og allt venst þetta. Svo erum við alltaf í landi yfir jól og áramót og einnig á sjómannadaginn. Á sjó- mannadaginn gerir áhöfnin eitthvað saman ásamt mökum, förum á hótel og fínt út að borða, það er skemmti- leg hefð.“ Betri fjarskipti gera fjarveruna bærilegri Jónas Björgvin býr í Borgarnesi, er giftur Maríu Júlíu Jónsdóttir og eiga þau saman einn lítinn 13 mánaða dreng. „Fyrir á ég tvær dætur sem eru 10 og 14 ára á árinu og fyrir á María Júlía tvær dætur og einn son sem verða 15 ára og 8 ára á árinu. Samanlagt erum við því rúmlega vísitölufjölskylda og ég held að ef ég væri að vinna í landi hefði ég ekki eins mikinn tíma til að sinna fjöl- skyldunni og væri mikið í burtu um helgar. Ég er orðið alls staðar í síma- og netsambandi og fæ alla daga send snap-hreyfimyndir eða ljósmynd- ir sem er dásamlegt. Þegar ég byrj- aði á sjónum 2010 þá var ekki síma- samband nema í gegnum gervihnött eða upp við land svo að það er mik- il þróun í þessu sem gerir samskipt- in auðveldari og fjarveruna bærilegri. Þegar ég byrjaði á sjó hafði dóttir mín hún Harpa Rut orð á því að nú gæti hún ekki lengur verið með mér í vinnunni eins og hún gerði svo gjarn- an á Heilsustofnuninni í Hveragerði. Þetta voru óþarfa áhyggjur hjá henni og hún hefur komið þrisvar sinnum með mér á sjóinn og höfum við þá verið þrír ættliðir hérna um borð. Elskar að bjóða vinum villibráð Aðspurður um áhugamálin segist Jónas hafa gaman af allri útivist og skotveiði. „Mér finnst fátt skemmti- legra en bjóða fólki að borða villi- bráð sem ég hef sjálfur veitt og mat- reitt. Ég hef mjög gaman af flugi og á hlut í mótorsvifdreka sem ég flýg ef færi gefst. Nú er framundan hjá mér tveggja mánaða sumarfrí þar sem Baldvin er að fara í slipp. Hlakkar okkur fjölskyldunni til að njóta sum- arsins saman, enda að baki annasam- ur vetur hjá okkur öllum. Við ætlum að vera dugleg að ferðast um landið okkar og njóta alls þess besta sem það hefur upp á að bjóða. Einnig mun ég nýta þennan tíma til að fara í endur- menntun Slysavarnaskóla sjómanna því ef ég geri það ekki fæ ég ekki skráningu á sjó þegar skipið fer út í ágúst.“ mm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.