Skessuhorn


Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 70

Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 70
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 201670 Síðastliðinn fimmtudag dönsuðu fjölmargir nemendur Brekkubæjar- skóla á Akranesi dans á bílaplaninu fyrir framan Tónlistarskóla Akra- ness við lagið „Happy“ eftir Pha- rell Williams. Það voru 7. bekking- ar sem hófu dansinn, ásamt góð- um gestum frá Þýskalandi sem eru í heimsókn hjá árganginum. Aðrir árgangar fylgdu svo í kjölfarið og tóku þátt í dansinum. Heimsóknin þýsku krakkanna er hluti af Erasmus+ verkefninu „Eu- rope 12 points!“ sem Brekkubæjar- skóli er þátttakandi í ásamt skólum frá sjö öðrum löndum. Verkefnið er til þriggja ára og er öðru árinu nú að ljúka. Síðastliðna tvo vetur hafa nemendur allra skólanna klár- að ýmis verkefni, svo sem að taka upp þjóðdansa, syngja þjóðsöngva, kynna popptónlist og taka upp jóla- lög svo eitthvað sé nefnt. Síðasta verkefnið kallast „Happy in Eu- rope: Flashmobdans“ þar sem nem- endur allra skólanna dansa sama dansinn í mismunandi löndum. Var dansinn tekinn upp á myndband og verður síðan gert eitt sameiginlegt myndband með brotum sem sýn- ir myndefni frá öllum skólunum. 7. bekkur í Brekkubæjarskóla tók þátt í tveimur dönsum þar sem þau dönsuðu einnig með vinabekk sín- um í Berlín í byrjun maí. grþ Hamingjusamir nemendur í Brekkubæjarskóla Kátur með skiltið sitt. Nemendur dönsuðu allir í takti. Rallýáhugafólk landsins bíður næstu helgar með óþreyju en fyrsta umferð í Íslandsmótinu í rallý 2016 verður ekin á Suðurnesjum dagana 3. og 4. júní. Að venju er það Akst- ursíþróttafélag Suðurnesja sem sér um þessa fyrstu keppni; Orkurallý- ið. Alls eru fjórtán áhafnir skráðar til leiks og má þar sjá bæði reynslu- bolta í bland við nýliða ásamt því að örlitlar breytingar hafa orðið á áhöfnum frá síðasta keppnistíma- bili. Uppstokkun hefur einmitt orðið í röðum Tímon-áhafnar- innar en Baldur Haraldsson hefur ákveðið að taka sér frí frá keppni um tíma en aðstoðarökumaður hans, Borgfirðingurinn Aðalsteinn Símonarson er þó hvergi hættur. Mun hann aka með Sigurði Braga Guðmundssyni í sumar á Mitsub- ishi Lancer Evo 7. Þá mun Þorkell Símonarson í Görðum, Keli Vert taka þátt í jeppaflokki á Toyota Hi- lux, en Kela til aðstoðar er Þórar- inn K Þórsson. mm Rallýmenn tæta af stað á föstudaginn Hér má sjá þá Baldur og Aðalstein í Tímon liðinu við Hafravatn í Rally Reykjavík 2015. Ljósmyndasýning verður opnuð við hátíðlega athöfn í Skorradal laug- ardaginn 11. júní kl. 17:00. Um er að ræða samvinnuverkefni Kristín- ar Jónsdóttur ljósmyndara á Háls- um og Huldu Guðmundsdóttur á Fitjum. Sýningin, sem ber nafn- ið Eyðibýli í Skorradal allt árið, verður haldin á Stálpastöðum en þar er eitt af eyðibýlunum í daln- um. Skessuhorn hafði samband við Kristínu og ræddi við hana um sýn- inguna. „Hugmyndin kviknaði eft- ir að Hulda hafði samband við mig vorið 2014 og vildi fara af stað með eitthvað verkefni úr Skorradalnum. Upphaflega var ætlunin að mynda Skorradal allt árið. Við þrengdum þetta svo niður í eyðibýli í dalnum, bæði vegna þess að Hulda hefur mikinn áhuga á þeim og veit margt um þau og vegna þess að ég hef allt- af heillast af öllu svona gömlu, og er kannski bara pínu gömul í mér,“ segir Kristín og hlær. „Við erum með mjög skemmti- lega uppsetningu á sýningunni. Hluti af myndunum er inni í gam- alli hlöðu og hluti af þeim eru út, fyrir aftan hlöðuna. Myndirnar leiða mann áfram í gegnum sýn- inguna. Það þarf að ganga um 150 metra frá bílastæði, upp gamla veg- inn að bænum. Fólk getur komið og skoðað myndirnar hvenær sem er sólarhringsins. Birtan og veðrið gæti því haft áhrif á sýninguna fyr- ir fólk, sem er mjög skemmtilegt,“ segir Kristín og bætir því við að það sé að sjálfsögðu mikill kostnaður á bak við svona sýning, en Uppbygg- ingarjóðurinn styrkir verkefnið, og myndirnar verða til sölu, en þetta er ákveðin áhætta fyrir Kristínu og Huldu. „Við ætlum því að hafa uppi myndavélakerfi til öryggis en við vonum að þetta fái að vera í friði og erum bjartsýnar á að svo verði,“ segir hún. Ef allt gengur vel verð- ur sýningin opin fram í lok ágúst og er planið að enda hana á myndræn- an hátt 19. ágúst heima hjá Huldu á Fitjum. „Við erum enn að útfæra það en planið er að varpa mynd- unum, og fleiri myndum til, upp á hlöðuvegg. Og það verður eitthvað svona skemmtileg og flott lokun á þessari sýningu þar,“ segir Kristín. arg SÓKNARÁÆTLUN VESTURLANDS Skorradalshreppur Opnun 11. júní kl 17:00 við Stálpastaði í Skorradal. Sýningin stendur fram til 19. ágúst. Opið allan sólarhringinn. Photo exhibition Abandoned farms in Skorradalur all year round. Grand opening on the 11th of June at 5pm by Stálpastaðir. Open all-day until 19th of August. Ljósmyndasýning sett upp á Stálpastöðum í Skorradal Fimmtudaginn 19. maí var opinn dagur í Grunnskólanum í Borgar- nesi. Viðburðurinn var endurvak- inn af Guðrúnu Steinunni Guð- brandsdóttur, kennara í hönnun og smíði, síðastliðinn vetur, eftir nokk- urra ára hlé. Nemendur og starfs- fólk buðu gesti velkomna í skól- ann og nemendur úr 10. bekk buðu gestum upp á leiðsögn um skólann. Fjölmargir lögðu leið sína í grunn- skólann þennan dag. Hefðbundin kennsla var í skólanum en auk þess voru leiksýningar, kaffihús, söngur og fleira. Ýmis verkefni nemenda voru til sýnis, til að mynda dúkku- rúm með sængurfötum, skrautpúð- ar, púsluspil, klukkur, málverk og margt fleira sem nemendur hafa unnið í list- og verkgreinum í vetur. Auk þess sem myndir af fuglum og öðru sem finna má í fjörunni var til sýnis frá nemendum á yngsta stigi. arg Opinn dagur í Grunnskólanum í Borgarnesi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.