Skessuhorn


Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 201612 FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Stykkishólmur 2016 Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu Dekk & Smur, Nesvegi 5 Fimmtudaginn 9. júní Föstudaginn 10. júní Tímapantanir í síma 438 – 1385 Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 S K E S S U H O R N 2 01 6 BORGARBRAUT 16, 350 GRUNDARFIRÐI SÍMI 430 8500  GRUNDARFJORDURGRUNDARFJORDUR.IS Grundarfjarðarbær Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Mýrarhúss Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 12. maí 2016 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin felst í því að ný sumarhúsalóð, merkt 6, er skilgreind norðan við lóð 5. Lóðin er 1050 m² að stærð og innan byggingarreits er heimilt að reisa 75 m² sumarhús. Mesta leyfilega hæð mannvirkis verður 5 m. Sjá nánari upplýsingar í deiliskipulagstillögu. Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma kl: 10-14 frá 1. júní 2016 til 14. júlí 2016 og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, hvattir til að kynna sér breytinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður, í síðasta lagi 14. júlí 2016. Gunnar Sigurgeir Ragnarsson, Skipulags- og byggingarfulltrúi í Grundarfirði SK ES SU H O R N 2 01 5 RARIK Vesturlandi Tilkynning um straumleysi Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Rarik www.rarik.is Bilanasími: 528 9390 SK ES SU H O R N 2 01 6 Ágætu raforkunotendur. Rafmagnslaust verður norðan Skarðsheiðar aðfaranótt þriðjudagsins 7. júní frá miðnætti til kl. 07:00 vegna vinnu Landsnets í aðveitustöð við Vatnshamra. Um er að ræða allt svæðið norðan Skarðsheiðar, þ.e. Borgarfjörð, Mýrasýslu og þar með talið alla þéttbýlisstaði, s.s. Borgarnes, Bifröst og Hvanneyri. Snæfellsnes Varavélar verða keyrðar eftir því sem við verður komið á Snæfellsnesi, notendur á svæðinu geta orðið fyrir einhverjum truflunum á raforkuafhendingu. Og á það einnig við um næstu daga á eftir (8.-10. júní) vegna viðhaldsvinnu Landsnets á 66 kV flutningslínum. Hafið ekki viðkvæm raftæki í notkun þegar rafmagnið fer af og hugið að endurstilla öll tímastillt raftæki sem kunna að hafa breytt sér. Rarik biðst velvirðingar á þeirri röskun sem rafmagnsleysið hefur í för með sér fyrir notendur. „Mig hefur langað í þetta hús í mörg ár. Þetta er eitt af fáum hús- um hér sem bjóða upp á möguleika sem þessa,“ segir Ásdís Kr. Mel- sted þegar Skessuhorn sló á þráð- inn til hennar. Þau Ásdís og Jó- hannes Haukur Hauksson festu kaup á húsinu við Brekkuhvamm 1 í Búðardal og opnuðu þar gisti- heimili á neðri hæðinni í nýliðn- um mánuði. „Framkvæmdir við húsið hafa gengið vel. Við fengum góða aðstoð og þetta gekk nokkuð hratt fyrir sig. Við byrjuðum af al- vöru í framkvæmdum eftir áramót, svo þetta tók um fjóra mánuði. Sjálf búum við á efri hæðinni og flutt- um þangað í apríl. Niðri erum við með fjögur vel útbúin herbergi fyr- ir gesti, eitt fjögurra manna, tvö tveggja manna og eitt eins manns herbergi,“ segir Ásdís. Kastalinn Húsið er staðsett á fallegum út- sýnisstað við fjöruna í Búðardal. „Maður finnur ekki flottara útsýni en þetta. Hér horfir maður beint yfir Hvammsfjörðinn og fuglalíf- ið í fjörunni er mikið og fjölbreytt. Örninn fær sér meira að segja stundum sæti hér úti á skerinu og selurinn lætur líka oft sjá sig,“ seg- ir Ásdís. Gistiheimilið hefur fengið nafnið Kastalinn. „Þegar við vorum að velja nafn á gistiheimilið vildum við að það tengdist húsinu og sögu þess. Við vorum því helst að leita að nafni sem tengdist heilsugæslu en húsið var á sínum tíma byggt sem heilsugæslustöð. Svo heyrðum við sögu frá því Halli Árna og Inga keyptu húsið,“ segir Ásdís, en Halli Árna og Inga voru eigendur hússins á undan Ásdísi og Jóhannesi. „Fyr- ir mörgum árum hitti Siggi Ingva- son Halla og spyr hann hvort það væri ekki eitthvað að frétta. „Jú, jú,“ svaraði Halli þá; „ég var víst að kaupa mér kastala,“ segir hann svo. Þarna var nafnið komið,“ segir Ás- dís og hlær. Móttökur vonum framar Opnað var fyrir bókanir 9. maí síð- astliðinn og segir Ásdís móttök- urnar hafa verið vonum framar. „Pantanirnar eru að nálgast 100 núna fyrir sumarið og alveg fram í september og eru alltaf að bæt- ast við fleiri. Fyrstu gestirnir komu 20. maí og það hafa verið gestir hér allar nætur síðan.“ Það er því nóg að gera hjá Ásdísi og Jóhann- esi en ásamt því að reka gistiheim- ili er Ásdís sjúkraflutningamað- ur og tekur að sér afleysingar við eitt og annað. Jóhannes er mjólk- urfræðingur hjá MS í Búðardal, er oddviti Dalabyggðar og slökkvi- liðsstjóri. arg Opna gistiheimili í Búðardal Jóhannes Haukur Hauksson og Ásdís Kr. Melsted keyptu húsið við Brekkuhvamm 1 í Búðardal og opnuðu þar gistiheimili. Gistiheimilið Kastalinn í Búðardal. Frá Kastalanum er fallegt útsýni yfir Hvammsfjörðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.