Skessuhorn


Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 66

Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 66
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 201666 VILT ÞÚ HAFA ÁHRIF Á NÝTINGU, VERNDUN OG VIÐHALD NÁTTÚRUNNAR? Kynntu þér spennandi nám í Landbúnaðarháskóla Íslands þar sem nálægðin við viðfangsefnið og kennara er í forgrunni. Lítill skóli með mikla sérstöðu! HÁSKÓLADEILD Umhvefisskipulag, Náttúru- & umhverfisfræði, Skógfræði & landgræðsla, Hestafræði og Búvísindi STARFSMENNTUNARDEILD Skrúðgarðyrkja, Skógur & náttúra, Blómaskreytingar, Garðyrkjuframleiðsla og Búfræði WWW.LBHI.IS | LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS | HVANNEYRI, 311 BORGARNESI | 433 5000 | LBHI@LBHI.IS UMSÓKNARFRES TUR 5. JÚNÍ UM HV ER FI S- SK IP UL AG BÚ VÍ SI ND I HE ST AF RÆ ÐI FR AM HA LD SN ÁM ST AR FS - & EN DU RM EN NT UN NÁ TT ÚR U- & UM HV ER FI SF RÆ ÐI SK ÓG FR Æ ÐI & LA ND GR Æ ÐS LA UMHVERFIS- SKIPULAG NÁTTÚRU- & UMHVERFISFRÆÐI SKÓGFRÆÐI- & LANDGRÆÐSLA HESTAFRÆÐI BÚVÍSINDI GARÐYRKJA BÚFRÆÐI Grunnskólinn í Borgarnesi fór af stað með verkefnið „Iðn – verknám á vinnustað“ síðasta haust. Verkefnið er viðbót við þær valgreinar sem standa tveimur elstu árgöngum skól- ans til boða. Verkefnið var í grunninn hugmynd frá Önnu Dóru Ágústs- dóttur kennara í hönnun og smíði. Hún sótti um styrk til Sprotasjóðs svo hægt væri að hrinda verkefninu í framkvæmd en þegar samþykki fyr- ir þeim styrk lá fyrir var Anna Dóra að flytja úr Borgarnesi. Guðrún Steinunn Guðbrandsdóttir tók við af henni með að hrinda verkefninu í framkvæmd. „Markmiðið með verk- efninu er að nemendur fái að kynnast ólíkum iðngreinum og fái að máta sig við ólík verkefni iðnaðarmanna. Það gæti orðið til þess að fleiri leggi fyr- ir sig iðnnám og þar af leiðandi fleiri nemendur sem fara í framhaldsnám að grunnskóla loknum,“ segir Hulda Hrönn Sigurðardóttir deildarstjóri í Grunnskólanum í Borgarnesi í sam- tali við Skessuhorn. Vel tekið á móti nemendum Þeir nemendur sem velja Iðn – verk- nám á vinnustað sem valgrein taka 5-7 vikna lotur í valinu. Í vetur hafa loturnar verið fimm og alls 20 nem- endur hafa tekið þetta val, eina lotu eða fleiri. Þrettán fyrirtæki í Borgar- nesi hafa tekið þátt í verkefninu og sum hafa tekið við nemendum all- ar loturnar. „Viðhorf til verkefnis- ins hefur verið mjög jákvætt úr öll- um áttum, frá fyrirtækjum, nem- endum og ekki síður foreldrum. Í sumar og haust kom Guðrún upp tengslaneti við fyrirtæki í Borgar- nesi. Verkefnið var kynnt og kann- aður áhugi fyrirtækja á að aðstoða við að láta þetta verkefni verða að veruleika. Öll fyrirtækin sem haft var samband við tóku erindinu vel. Sum fyrirtækin treystu sér ekki til að vera með strax, en komu svo inn í sam- starfið þegar leið á veturinn. Það er mikið lagt upp úr því hjá fyrirtækj- unum að finna verkefni við hæfi fyr- ir nemendur. Sum þeirra hafa verið að gera sérstök verkefni fyrir krakk- ana á meðan önnur setja upp verk- efni sem eru í tengslum við það sem verið er að gera í því fyrirtæki hverju sinni. Ekkert þessara fyrirtækja hef- ur farið fram á greiðslu fyrir þátttök- una. Þessi velvilji fyrirtækjanna hefur gert okkur kleift að halda verkefninu gangandi og hafa það fjölbreytt,“ segir Hulda. Helsti kostnaðurinn við verkefnið felst í akstri nemenda á vinnustaði og tryggingar. Nemendum sem ekki eru hjá fyrirtækjum í næsta nágren- ni við skólann er ekið á vinnustaðinn og sóttir þegar iðn-tímum er lok- ið. „Þar sem þetta er óhefðbundinn kennslustaður, utan skólalóðar og nemendur eru að vinna með verkfæri og tæki sem eru þeim mörgum fra- mandi, auk þess sem þau eru að vin- na með ýmis efni, þá er mikilvægt að þau séu tryggð á vinnustöðunum. Sjóvá sá um að hanna sérstaka tryg- gingu fyrir okkur í þessum tilgangi,“ segir Hulda. Nemendur og foreldrar hafa verið mjög ánægðir með verkefnið Verkefnið hefur opna dyr fyrir marga nemendur sem kannski hafa ekki fundið sig í hefðbundnu bóknámi. „Það hefur verið ánægjuleg hliðar- verkun að margir þeirra nemenda sem hafa tekið þátt í iðn - verkefninu, hafa tekið sig á í bóknáminu. Eins og þeir hafi fundið tilganginn með nám- inu, eftir því sem þeir verða ákveðn- ari í hvað þá langar til að læra í fram- tíðinni,“ segir Hulda. Daniel Victor Herwigsson er nem- andi í níunda bekk og hann valdi Iðn – verknám á vinnustað sem valgrein. Daniel hefur prófað ýmsar greinar en hann byrjaði í málmsmíði hjá Límtré Vírneti. Hann fór svo í blikksmíði hjá sama fyrirtæki. Næst prófaði hann rennismíði hjá Vélaverkstæði Kristjáns og í síðustu lotunni ákvað hann að prófa eitthvað alveg nýtt og fór í pípulagnir hjá Árna og Guðjóni í Vatnsverki. Daniel segist vera mjög ánægður með þennan möguleika og stefnir á að nýta sér þetta val einnig næsta vetur. Jóhanna Erla Jónsdóttir er móðir drengs sem hefur nýtt sér verkefnið og fengið að vinna bæði hjá Lím- tré Vírneti og Loftorku. Jóhanna segir þau mæðgin bæði vera mjög ánægð með verkefnið og Hreiðar, sonur Jóhönnu, hefur lært mikið á þessari vinnu. Hann hefur verið að koma með hluti sem hann hefur gert bæði í Vírneti og Loftorku. Í Lof- torku smíðaði hann til dæmis hamar og staurasleggju sem eru hlutir sem hann kemur til með að geta notað. Jóhanna segist vona að áframhald verði á verkefninu næsta haust. En að sögn Huldu hafa viðbrögðin almennt verið á þessa leið frá nemendum og foreldrum. arg Iðn - verknám á vinnustað fyrir nemendur Grunnskólans í Borgarnesi Daniel Victot Herwigsson er mjög ánægður með möguleikann á valinu „Iðn – verknám á vinnustað“. Þarna er hann að vinna á Vélaverkstæði Kristjáns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.