Skessuhorn - 01.06.2016, Qupperneq 66
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 201666
VILT ÞÚ HAFA ÁHRIF Á NÝTINGU, VERNDUN
OG VIÐHALD NÁTTÚRUNNAR?
Kynntu þér spennandi nám í Landbúnaðarháskóla Íslands
þar sem nálægðin við viðfangsefnið og kennara er í forgrunni.
Lítill skóli með mikla sérstöðu!
HÁSKÓLADEILD
Umhvefisskipulag, Náttúru- & umhverfisfræði,
Skógfræði & landgræðsla, Hestafræði og
Búvísindi
STARFSMENNTUNARDEILD
Skrúðgarðyrkja, Skógur & náttúra,
Blómaskreytingar, Garðyrkjuframleiðsla
og Búfræði
WWW.LBHI.IS | LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS | HVANNEYRI, 311 BORGARNESI | 433 5000 | LBHI@LBHI.IS
UMSÓKNARFRES
TUR
5. JÚNÍ
UM
HV
ER
FI
S-
SK
IP
UL
AG
BÚ
VÍ
SI
ND
I
HE
ST
AF
RÆ
ÐI
FR
AM
HA
LD
SN
ÁM
ST
AR
FS
- &
EN
DU
RM
EN
NT
UN
NÁ
TT
ÚR
U-
&
UM
HV
ER
FI
SF
RÆ
ÐI
SK
ÓG
FR
Æ
ÐI
&
LA
ND
GR
Æ
ÐS
LA
UMHVERFIS-
SKIPULAG
NÁTTÚRU- &
UMHVERFISFRÆÐI SKÓGFRÆÐI- &
LANDGRÆÐSLA
HESTAFRÆÐI BÚVÍSINDI
GARÐYRKJA
BÚFRÆÐI
Grunnskólinn í Borgarnesi fór af
stað með verkefnið „Iðn – verknám
á vinnustað“ síðasta haust. Verkefnið
er viðbót við þær valgreinar sem
standa tveimur elstu árgöngum skól-
ans til boða. Verkefnið var í grunninn
hugmynd frá Önnu Dóru Ágústs-
dóttur kennara í hönnun og smíði.
Hún sótti um styrk til Sprotasjóðs
svo hægt væri að hrinda verkefninu
í framkvæmd en þegar samþykki fyr-
ir þeim styrk lá fyrir var Anna Dóra
að flytja úr Borgarnesi. Guðrún
Steinunn Guðbrandsdóttir tók við
af henni með að hrinda verkefninu í
framkvæmd. „Markmiðið með verk-
efninu er að nemendur fái að kynnast
ólíkum iðngreinum og fái að máta sig
við ólík verkefni iðnaðarmanna. Það
gæti orðið til þess að fleiri leggi fyr-
ir sig iðnnám og þar af leiðandi fleiri
nemendur sem fara í framhaldsnám
að grunnskóla loknum,“ segir Hulda
Hrönn Sigurðardóttir deildarstjóri í
Grunnskólanum í Borgarnesi í sam-
tali við Skessuhorn.
Vel tekið á móti
nemendum
Þeir nemendur sem velja Iðn – verk-
nám á vinnustað sem valgrein taka
5-7 vikna lotur í valinu. Í vetur hafa
loturnar verið fimm og alls 20 nem-
endur hafa tekið þetta val, eina lotu
eða fleiri. Þrettán fyrirtæki í Borgar-
nesi hafa tekið þátt í verkefninu og
sum hafa tekið við nemendum all-
ar loturnar. „Viðhorf til verkefnis-
ins hefur verið mjög jákvætt úr öll-
um áttum, frá fyrirtækjum, nem-
endum og ekki síður foreldrum. Í
sumar og haust kom Guðrún upp
tengslaneti við fyrirtæki í Borgar-
nesi. Verkefnið var kynnt og kann-
aður áhugi fyrirtækja á að aðstoða
við að láta þetta verkefni verða að
veruleika. Öll fyrirtækin sem haft var
samband við tóku erindinu vel. Sum
fyrirtækin treystu sér ekki til að vera
með strax, en komu svo inn í sam-
starfið þegar leið á veturinn. Það er
mikið lagt upp úr því hjá fyrirtækj-
unum að finna verkefni við hæfi fyr-
ir nemendur. Sum þeirra hafa verið
að gera sérstök verkefni fyrir krakk-
ana á meðan önnur setja upp verk-
efni sem eru í tengslum við það sem
verið er að gera í því fyrirtæki hverju
sinni. Ekkert þessara fyrirtækja hef-
ur farið fram á greiðslu fyrir þátttök-
una. Þessi velvilji fyrirtækjanna hefur
gert okkur kleift að halda verkefninu
gangandi og hafa það fjölbreytt,“
segir Hulda.
Helsti kostnaðurinn við verkefnið
felst í akstri nemenda á vinnustaði
og tryggingar. Nemendum sem ekki
eru hjá fyrirtækjum í næsta nágren-
ni við skólann er ekið á vinnustaðinn
og sóttir þegar iðn-tímum er lok-
ið. „Þar sem þetta er óhefðbundinn
kennslustaður, utan skólalóðar og
nemendur eru að vinna með verkfæri
og tæki sem eru þeim mörgum fra-
mandi, auk þess sem þau eru að vin-
na með ýmis efni, þá er mikilvægt
að þau séu tryggð á vinnustöðunum.
Sjóvá sá um að hanna sérstaka tryg-
gingu fyrir okkur í þessum tilgangi,“
segir Hulda.
Nemendur og foreldrar
hafa verið mjög ánægðir
með verkefnið
Verkefnið hefur opna dyr fyrir marga
nemendur sem kannski hafa ekki
fundið sig í hefðbundnu bóknámi.
„Það hefur verið ánægjuleg hliðar-
verkun að margir þeirra nemenda
sem hafa tekið þátt í iðn - verkefninu,
hafa tekið sig á í bóknáminu. Eins og
þeir hafi fundið tilganginn með nám-
inu, eftir því sem þeir verða ákveðn-
ari í hvað þá langar til að læra í fram-
tíðinni,“ segir Hulda.
Daniel Victor Herwigsson er nem-
andi í níunda bekk og hann valdi Iðn
– verknám á vinnustað sem valgrein.
Daniel hefur prófað ýmsar greinar en
hann byrjaði í málmsmíði hjá Límtré
Vírneti. Hann fór svo í blikksmíði
hjá sama fyrirtæki. Næst prófaði
hann rennismíði hjá Vélaverkstæði
Kristjáns og í síðustu lotunni ákvað
hann að prófa eitthvað alveg nýtt og
fór í pípulagnir hjá Árna og Guðjóni
í Vatnsverki. Daniel segist vera mjög
ánægður með þennan möguleika og
stefnir á að nýta sér þetta val einnig
næsta vetur.
Jóhanna Erla Jónsdóttir er móðir
drengs sem hefur nýtt sér verkefnið
og fengið að vinna bæði hjá Lím-
tré Vírneti og Loftorku. Jóhanna
segir þau mæðgin bæði vera mjög
ánægð með verkefnið og Hreiðar,
sonur Jóhönnu, hefur lært mikið á
þessari vinnu. Hann hefur verið að
koma með hluti sem hann hefur gert
bæði í Vírneti og Loftorku. Í Lof-
torku smíðaði hann til dæmis hamar
og staurasleggju sem eru hlutir sem
hann kemur til með að geta notað.
Jóhanna segist vona að áframhald
verði á verkefninu næsta haust. En að
sögn Huldu hafa viðbrögðin almennt
verið á þessa leið frá nemendum og
foreldrum. arg
Iðn - verknám á vinnustað fyrir nemendur
Grunnskólans í Borgarnesi
Daniel Victot Herwigsson er mjög ánægður með möguleikann á valinu „Iðn – verknám á vinnustað“. Þarna er hann að vinna
á Vélaverkstæði Kristjáns.