Skessuhorn


Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 76

Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 76
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 201676 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is facebook.com/hilmirbehf Bifreiðaþjónusta Harðar ehf. Smur og dekkjaþjónusta Sala á dekkjum og olíuvörum Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi 437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30 Sími 437-2030 - v.v@simnet.is DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK LAUSNIN HÖFÐASELI Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga Vélabær ehf. Bæ í Bæjarsveit Alhliða viðgerðarþjónusta á bílum, dráttarvélum og vélum tengdum landbúnaði Smur og hjólbarðaþjónusta velabaer@vesturland.is S K E S S U H O R N 2 01 3 SK ES SU H O R N 2 01 6 ÖLL ALMENN GARÐVINNA • Fjarlægjum tré og kurlum • Útvegum sand, mold og möl • Sláum garða Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Það var þann 14. janúar síðastliðinn sem í Bændablaðinu birtist grein eftir Einar K. Guðfinnsson, alþing- ismann, undir nafninu: Langþráð baráttumál komið í höfn. Þar lýsir hann áratuga baráttu sinni og fleiri góðra manna fyrir því að lækka húshitunarkostnað á svokölluð- um „köldum svæðum“ til jafns við kostnað hjá þeim sem búa við þann munað að geta notað hitaveitu til að hita hús sín. Við lestur þessar- ar greinar vaknaði sú von í brjósti mínu að nú myndi rafmagnsreikn- ingurinn lækka verulega. Sú varð ekki raunin og kannske ekki von þar sem aðeins var tekið á öðrum aðal orsakavaldi þessa mikla hús- hitunarkostnaðar, en sjálfur orku- kostnaðurinn var látinn óbreyttur. Enn sitjum við dreifbýlisbúar uppi með það, sem ég vil kalla óréttlæti, að orkuverð er nánast 50% hærra en hjá þeim sem í þéttbýli búa. Ég spyr: Hvers vegna? Eftir alla þessa baráttu fyrir jöfnun húshitunar- kostnaðar á köldum svæðum sýnist mér að við stöndum nánast í sömu sporum og áður. Ekki dreg ég efa einlægan vilja Einars og annarra, sem barist hafa fyrir jöfnun húshitunarkostnaðar á þessum köldu svæðum, sem ekki eru í þeirri aðstöðu að geta nýtt sér jarðhita til að hita upp hús sín, en aftur á móti fyllist maður von- leysi yfir því, að hægt verði að rétta okkar hlut í þessu mikilvæga máli, miðað við þann árangur sem þessi einarða barátta á Alþingi okkar Ís- lendinga hefur skilað. Í grein Ein- ars kemur fram, að stefnt sé að því að húshitunarkostnaður í dreifbýli verði svipaður og hjá þeim hita- veitum, sem dýrastar eru og þegar ég las fyrirsögn á grein hans taldi ég víst að því takmarki væri náð, sem er þó fjarri lagi. Flutnings- kostnaður á raforku til húshitunar hefur um árabil verið greiddur nið- ur að hluta og ekki ber að vanþakka það og samkvæmt lögum, sem hann vitnar til er flutningskostnað- ur á raforku til húshitunar greiddur niður að fullu frá 1. apríl sem vissu- lega er þakkar vert. Því takmarki virðist vera náð en hvernig stendur þá á því að raforkureikningur minn lækkar ekki? Á undanförnum árum hef ég bara móttekið rafmagnsreikninginn og greitt hann án þess að grennslast eftir hvað lægi að baki þeim töl- um, sem á honum voru. Ég gerðist því forvitinn og fór inn á vef Orku- sölunnar til að fá yfirlit yfir taxt- ana, en fann þar ekki neitt annað en lýsingu á því hvernig Orkusalan breytir orkunni í STUÐ. Einhver hefur eflaust fengið eitthvað greitt fyrir þessa frábæru hugmynd, en taxtana fann ég ekki (enda eru tölv- ur alls ekki mitt sérsvið). Ég fór því inn á vef RARIK og þar gaf á að líta, og nú komst ÉG í stuð! Hví- lík fjölbreytni! Þarna voru sem sagt allir taxtarnir og nú vaknaði spurn- ing í huga mér hvort þetta væri í raun og veru ekki eitt og sama fyr- irtækið, sem sendi bara reikninga út í tvennu lagi, annan fyrir orkuna og hinn fyrir flutninginn. Og þarna fann ég kannske skýringuna á því hvers vegna hitunarkostnaðurinn hjá mér er svona hár. Það er nefni- lega ekki sama verð á orkunni hjá okkur, sem erum að þrjóskast við að dvelja í þessu dreifbýli og hin- um, sem eru svo skynsamir að velja sér búsetu í þéttbýli. Kílówatt- stundin hjá mér kostar kr. 9,73 þegar búið er að taka tillit til dreif- býlisframlags og virðisaukaskatts, en í þéttbýli er gjaldið kr. 6,46. Þarna munar nokkru (ca. 50%). Af hverju er þessi munur á orku- verði í dreifbýli og þéttbýli? Er þetta svona miklu betra rafmagn sem ég fæ eða minni hætta á trufl- unum á orkuafhendingu? Þarna var að finna annan lið, fastagjald og nú kom sama í ljós. Fastagjald í dreif- býli með virðisauka er kr. 35.188 á ári, en í þéttbýli kr. 22.318. Hvers vegna þessi munur? Getur hugsast að inni í þessum mun sé að finna dulinn flutningskostnað? Ég hef spurt nokkra aðila um það hvern- ig þessi gjaldaliður hafi orðið til og hver hafi ákveðið þessa mis- munun, en enginn hefur getað gef- ið mér skýringu á því. Það virkar stundum á mann eins og stofnan- ir taki jafnvel völdin af stjórnend- um sínum og ákveði vissa hluti án þeirra aðkomu og ef leitað er upp- lýsinga þá er skýringin sú að þetta SÉ bara svona. Enn er einn liður, sem reyndar er alveg skiljanleg- ur, en það er jöfnunargjald, sem er kr. 0,30 á kwst. Þegar ég ræddi við starfsmann Orkustofnunar sagði hann að þetta kæmi ekkert við hvorki orkuverði né flutnings- kostnaði: Þetta er bara skattur! (Ég vona svo sannarlega að ég hafi nú ekki misskilið neitt). Svo fór ég að skoða þetta á rafmagnsreikningn- um mínum og þá sá ég að þessi skattur er innheimtur með 24% virðisaukaskatti á almenna orku og 11% skatti á orku til húshitunar. Ég skal viðurkenna að ég veit lít- ið um innheimtuaðferðir á skatt- heimtu ríkisins en ég man ekki eft- ir öðrum skatti, sem innheimtur er með virðisaukaskatti. Ég hef í þessum orðum mínum lýst óánægju minni með mismun- un og ójöfnuði milli þegna þessar- ar þjóðar, af hverju við sitjum ekki öll við sama borð þegar kemur að úthlutun þeirra náttúrugæða sem við eigum öll sameiginlega, hvar á landinu sem við búum. Þegar við lítum til þess að stóriðjan notar 85% af allri framleiddri orku þjóð- arinnar, iðnaður og stórfyrirtæki nota 10% og við HIN notum 5% (skv. upplýsingum frá Orkustofn- un) þá væri fróðlegt að fá reiknað út hversu mörg prómill af þessum 5 prósentum fara til nota í dreif- býlinu, en mér vitanlega liggja þær tölur ekki fyrir. Það væri kannske verðugt verkefni t.d. fyrir Bænda- samtökin að skipa sér í hóp með öðrum í baráttusveit fyrir bætt- um kjörum okkar dreibýlisbúa, því við erum jú á þeirra VERNDAR- SVÆÐI - eða hvað? Mér fyndist það t.d. vera verð- ugt markmið að allir landsmenn fengju almenna orku á sama verði. Mér reiknast til að við það myndi minn orkureikningur lækka um ca. 120.000 kr. á ári og væri það mikil kjarabót, jafnvel svo mikil að hús- hitunarkostn- aður minn yrði hliðstæð- ur við það sem er hjá þeim sem nota hitaveitu þar sem hún er dýrust. Vel má vera að ég hafi misskil- ið eitthvað eða farið rangt með töl- ur og reynist svo biðst ég afsök- unar á því og vænti þess að það verði þá leiðrétt af þar til bærum aðilum. Hitt er þó ljóst, og verð- ur varla hrakið, að verulegur mun- ur er á kjörum á raforkuverði eftir því hvar við búum þrátt fyrir þessa leiðréttingu á flutningskostnaðin- um. Ég vil að lokum þakka þeim sem unnið hafa að þessum málum fyr- ir okkur, sem í dreifbýli búum þótt enn vanti mikið til að réttlætis sé gætt okkur til handa. En vonandi getum við áður en langt um líð- ur tekið undir lokaorð í grein Ein- ars Kristins þar sem hann „segist vona að þetta verði til heilla þeim byggðum og íbúum, sem hafa mátt þola sligandi kostnað á undanförn- um árum við það eitt að halda á sér hita í húsnæði sínu.“ Og nú hefur síðasti rafmagns- reikningur minn, sem ég á að greiða þann 2. júní, borist mér. Þar kemur í ljós að orkureikningurinn hækkar um rúmar 1000 krónur, en reikningur yfir flutninginn lækkar um tæpar 1000 krónur. Það mun- ar um minna. Innri-Fagradal á vormánuðum í maí 2016 Sigurður Þórólfsson. Takmarkinu náð? - Hugleiðingar um raforkuverð Pennagrein
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.