Skessuhorn


Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 73

Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 73
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 73 Nýlega kynntu menntamálayfirvöld ákvörðun um fyrirhugaðar breyt- ingar á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í grunnskólum. Lið- ur í þessum undirbúningi var með- al annars rafrænt æfingapróf fyrir 3. bekk sem framkvæmt var síðastlið- inn fimmtudag (26. maí). Það má hafa mörg orð um þessi mál og þau skref sem hafa verið tek- in. Margt virkar jákvætt við fyrstu sýn en mörgum spurningum er ósvarað, bæði um hugmyndafræð- ina að baki breytingunum og fram- kvæmd prófanna sjálfra. Rafræn fyr- irlögn könnunarprófa getur verið framfaraskref á margan hátt. Slíkt fyrirkomulag getur auðveldað þró- un prófa bæði hvað varðar inntak og form, fjölbreytni prófatriða og ný tækni getur í framtíðinni mætt ýms- um einstaklingsþörfum betur en nú er gert. Við getum einnig lært margt af öðrum þjóðum og nýtt okkur í þessu ferli þannig að próftakan verði til sem mests gagns. Þetta er verk- efni sem er áhugavert fyrir mennta- málayfirvöld, kennara og skólastjór- nendur að þróa í góðri samvinnu á næstu árum. Mikilvægt er að við nýtum kosti rafræns umhverfis um- fram prófa á pappír og hvernig próf- in munu taka mið af hæfniviðmið- um aðalnámskrár. Hér er þó nauð- synlegt að flýta sér hægt, gefa sér góðan tíma og vanda til verka. Ég tel að menntamálayfirvöld séu nú að fara framúr sér og flest- um öðrum í þessu máli. Það að ætla að skella inn rafrænum samræmd- um könnunarprófum skólaárið 2016-2017 er ekki skynsamlegt að óbreyttu. Fjölmörg ljón eru í vegin- um sem yfirvöld menntamála verða að taka tillit til. Krafa yfirvalda um samræmda prófatöku hvað varðar tíma, staðsetningu og framkvæmd er vandamál. Sú krafa er illskiljan- leg í ljósi þess að könnunarprófin eru í heild sinni slakur mælikvarði á skólastarf almennt. Þá þarf að huga vel að fram- kvæmd prófanna þar sem skólarn- ir búa til dæmis við afar mismun- andi aðstæður svo sem varðandi fjölda tölva, nettengingu og netsam- band. Fjölmennir skólar geta t.a.m. alls ekki skapað samræmdar prófað- stæður á tilteknum prófdegi þar sem kannski 80-100 börn eiga að þreyta próf á sama tíma. Auk þeirra vand- kvæða sem hér á undan eru nefnd á eftir að ræða ýmis önnur atriði við framkvæmdina. Til dæmis er ljóst að sveitarfélög verða að leggja í mikinn kostnað til að þetta form prófatöku sé raunhæfur valkostur. Kaupa þarf inn tæki og tól sem ekki rúmast nú innan fjárheimilda skóla. Samræmd könnunarpróf eiga í grunninn fyrst og fremst að vera fyrir nemendur og foreldra. Prófin eiga að sýna aðilum hvar þeir standa miðað við sett markmið aðalnám- skrár. Samræmd könnunarpróf eru sjaldnast fyrir skóla því kennarar vita oftast nákvæmlega hver staðan er á hverjum nemanda. Flest vandkvæði við framkvæmd rafrænna könnun- arprófa snúa að skorti á tækjum, að tímasetningu, skipulagi og formi prófanna. Flest þessara vandamála má hins vegar leysa með einföldum hætti. Til dæmis er hugmynd að lausn að prófin séu opin á vef í ákveðinn tíma eða foreldrar geta fengið send lykilorð heim þar sem þeir geta sest með börnum sínum yfir prófið þeg- ar aðstæður gefast til. Fjölmargar menntarannsóknir hafa sýnt að virk þátttaka og hvatning foreldra í námi barna sinna skiptir sköpum. Nem- endur eiga að fá allan stuðning til að ná sem bestum árangri án þess að til staðar séu hindranir formlegar eða óformlegar eða dregið sé úr kröfum. Eins og allir eiga að vita er lykill að velgengni að próftakinn sé tilbúinn í próftökuna. Með því að taka rafræn könnunarpróf á heimavelli aukast einnig líkur á að prófin verði börn- unum og foreldrum þeirra til ein- hvers gagns og gamans. Rafræn könnunarpróf eiga ekki að vera einkamál Menntamálastofnun- ar heldur unnin í virku samráðsferli við kennara, skóla, sveitarfé- lög og foreldra. Nokkuð skort- ir enn á í þeim efnum, því mið- ur. Enn er tími til að forða annars góðri hugmynd um rafræn könnun- arpróf frá glötun. Tökum upp virkt samstarf hagsmunaaðila um náms- mat sem miðast við fjölbreytt skóla- starf frekar en samræmt. Námsmat sem miðast við hinar ýmsu náms- greinar og þá jafnt bóknám sem verknám. Vinnum saman að því að skapa réttlátara menntakerfi þar sem sanngirni er leiðarljós okkar og allir nemendur eru fullgildir þátttakend- ur óháð hæfileikum sínum eða að- stæðum. Sigurður Arnar Sigurðsson. Höf. er aðstoðarskólastjóri Grunda- skóla á Akranesi. Rafræn könnunarpróf fari fram á heimavelli Pennagrein Föstudaginn 27. maí var 21 nem- andi brautskráður frá Fjölbrauta- skóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félagsfræðabraut brautskráðust Arna Dögg Hjaltalín, Berglind Muller, Hilmar Orri Jóhannsson, Matthías Fred Eggertsson og Sæþór Sumar- liðason. Af náttúrufræðibraut braut- skráðust Agnes Eik Sigurjónsdótt- ir, Aldís Ásgeirsdóttir, Anna Kara Eiríksdóttir, Gréta Sigurðardótt- ir, Íris Dögg Skarphéðinsdóttir, Jó- hann Kristófer Sævarsson, Katrín Eva Hafsteinsdóttir, Kristófer Ja- cobson Reyes, Monika Eiðsdótt- ir, Silja Katrín Davíðsdóttir, Særós Freyja Guðnadóttir, Victoría Krist- ín Geirsdóttir og Viktoría Ellenar- dóttir. Af opinni braut brautskráðist Jón Þór Eyþórsson og með viðbót- arnám til stúdentsprófs útskrifaðist Hugrún Birgisdóttir. Af starfsbraut útskrifaðist Áslaug Elva Skarphéð- insdóttir. Athöfnin hófst á því að Stórsveit Snæfellsness flutti lagið Chicken eftir Alfred Ellis. Sveitin er skipuð nemendum FSN og er jafnan feng- in til þess að koma fram við hátíðleg tækifæri, enda er hún stolt skólans. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari brautskráði nemend- ur og flutti ávarp. Í því fjallaði hún m.a. um þann fjölda nemenda sem hafði stundað nám við skólann en á vorönn voru nemendur 204 tals- ins þar af voru 61 í dreifnámi, 98 í dagskóla og sjö á starfsbraut. Hún kom einnig inn á niðurstöður ytri úttektar á skólanum sem fór fram í haust og var unnin fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Skólinn og skólastarfið kom í heildina vel út í þessari úttekt og kom þar fram að almenn líðan nemenda í skólanum væri góð og jákvæð samskipti skila sér vel inn í kennslustundir þar sem nemendur upplifa samskipti á þeim vettvangi sem sanngjörn og lýðræð- isleg. Skólameistari gat þess einnig að útskriftin væri send í gegnum fjar- fundabúnað vestur á Patreksfjörð. Sólrún Guðjónsdóttir aðstoðar- skólameistari afhenti síðan nem- endum viðurkenningar fyrir góð- an námsárangur. Sveitarfélögin sem standa að skólanum gáfu við- urkenningarnar ásamt Arion banka, Landsbankanum, hugvísindadeild Háskóla Íslands, breska sendiráðinu og danska sendiráðinu. Viðurkenningar Hæstu einkunn á stúdentsprófi með 9,74 í meðaleinkunn og þar með hæstu meðaleinkunn í sögu skólans hlaut Viktoría Ellenardóttir, en hún lauk stúdentsprófi á þremur árum. Hún fékk veglega bókagjöf frá sveit- arfélögunum og gjöf frá Landsbank- anum. Viktoría hlaut einnig bóka- gjöf frá Arion banka sem viðurkenn- ingu fyrir góðan árangur í stærð- fræði. Bókagjöf frá deild erlendra tungumála, bókmennta og málvís- inda við Háskóla Íslands fyrir góðan árangur í tungumálanámi. Bókagjöf frá sveitarfélögunum fyrir góðan ár- angur í raungreinum, íslensku og spænsku. Einnig fékk hún bókagjöf frá breska sendiráðinu fyrir góðan árangur í ensku. Monika Eiðsdóttir fékk bókagjöf frá sveitarfélögunum fyrir góðan ár- angur í sálfræði og íslensku. Matthías Fred Eggertsson hlaut verðlaun frá breska sendiráðinu fyr- ir góðan árangur í ensku og frá deild erlendra tungumála í Háskóla Ís- lands fyrir góðan árangur í tungu- málanámi. Katrín Eva Hafsteinsdóttir hlaut verðlaun frá sveitarfélögunum fyrir góðan árangur í þýsku. Særós Freyja hlaut verðlaun frá danska sendiráðinu fyrir góðan ár- angur í dönsku. Berglind Muller hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í list- og verk- greinum en þau verðlaun er veitt af Kvenfélaginu Gleym mér ei í Grundarfirði. Kvenfélagið Gleym mér ei gaf einnig nýstúdentum leiðbeining- ar út í lífið. En þar má meðal ann- ars finna þvottaleiðbeiningar ásamt góðum ráðum við geymslu mat- væla. Jakob Bragi Hannesson flutti kveðjuræðu fyrir hönd kennara og starfsfólks og Berghildur Pálma- dóttir flutti ræðu fyrir hönd 10 ára stúdenta. Nýstúdentinn og fráfarandi for- seti nemendafélagsins Hilmar Orri Jóhannsson hélt stórskemmtilega kveðjuræðu fyrir hönd nýstúdenta þar sem hann kvaddi skólann og starfsfólk hans. Að lokum sleit Skólameistari skól- anum í tólfta sinn og bauð gestum að þiggja kaffi og kökur. arg/fsn/ Ljósm. Sumarliði Ás- geirsson. Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Viktoría Ellenardóttir hlaut fjölda viðurkenninga fyrir framúrskarandi árangur í námi auk þess sem hún var með hæstu meðaleinkunn á stúdents- prófi í sögu skólans, einkunnina 9,74.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.