Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 201628
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
„Ég fór fyrst fast á sjóinn með pabba
á Skipaskagann. Hann var skipstjóri
þar,“ segir Þráinn Þór Þórarinsson,
smábátasjómaður á Akranesi að-
spurður um upphafið af sjómennsk-
unni. Þráinn er Skagamaður í húð og
hár, fæddur og uppalinn á Akranesi.
Hann byrjaði að sækja sjóinn um tví-
tugt og var í sjö ár á Skipaskaganum.
„Ég stefndi alltaf í að verða sjómaður,
þetta voru flottustu karlarnir,“ seg-
ir hann og brosir. Þráinn hefur alla
tíð haft sjómennskuna sem aðalat-
vinnu og unnið við ýmislegt á sjón-
um. „Ég fór svo að vinna á trillu hjá
mági mínum og var þar í tíu ár, þar til
hann seldi útgerðina. Þá fór ég á tog-
ara í nokkur ár og var bæði á Höfða-
víkinni, Haraldi Böðvarssyni og Stur-
laugi.“
Verið að smíða
annan bát
Fyrir fimm árum tók Þráinn við Akra-
bergi SI-90. Akrabergið er þrettán
brúttótonn og hraðfiskibátur af teg-
undinni Siglufjarðarseigur. Þráinn
veiðir þar á línu og skaki og er ánægð-
ur með bátinn. „Þessi vinna á betur
við mig en togarasjómennskan. Mað-
ur er nær þessu öllu, meðvitaður um
umhverfið, strauma og stefnur. Svo er
útgerðin að fá nýjan bát núna, annan
seiglubát,“ segir Þráinn. Hann segir
þann nýja heldur stærri en Akraberg-
ið eða 28 tonn. „Hann verður yfir-
byggður með beitningarvél. Það voru
smá byrjunarörðugleikar í þessu og
þetta er búið að tefjast um eitt ár. Við
áttum upphaflega að fá hann síðasta
haust en svo var ákveðið að breyta og
setja í hann beitningarvélina. Þetta
verður í fyrsta sinn sem ég nota slíka
vél en ég held að helsti munurinn
verði sá að maður þarf ekki að flytja
balana með sér um allt.“
Forðast ýsuna
Alls eru tveir um borð á Akraberg-
inu en einnig starfa fjórir við beitn-
ingu hjá útgerðinni. Þráinn gerir út
frá Akranesi yfir veturinn en í maí-
mánuði færir hann sig yfirleitt norð-
ur í land. „Við erum núna á Skaga-
strönd þar sem við erum á þorski.
Maður færir sig eftir fiskinum. Menn
forðast ýsuna enda fæst ekki kvóti
fyrir hana.“ Hann segir útgerðina
vera með nóg af þorskkvóta. „En við
leigjum ýsuna. Það er svolítið vesen,
enda er ekki til skiptanna fyrir alla,“
segir hann. Fiskurinn er seldur að
stórum hluta á markað en stærri fisk-
urinn er í föstum viðskiptum á Ólafs-
firði. Þráinn segir veturinn hafa ver-
ið ágætan, sérstaklega í samanburði
við síðasta ár. „Þessi vetur var skárri,
það var allavega hægt að róa meira
hérna sunnan til. Aflabrögð voru al-
veg þokkaleg, en ekkert mikið meira
en það.“
grþ
V M - F é l a g v é l s t j ó r a o g m á l m t æ k n i m a n n a - S t ó r h ö f ð a 2 5 - 1 1 0 R e y k j a v í k - 5 7 5 9 8 0 0 Landsfélag í vél- og málmtækni
VM- Félag vélstjóra og málmtæknimanna óskar sjómönnum
og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn
Sjómannadagurinn
Færir sig eftir fiskinum
Þráinn Þór ásamt hundinum Ými.
Tekið um borð í Akrabergi. Nýi báturinn meðan hann var enn í smíðum.Á landleið.