Skessuhorn - 01.06.2016, Page 44
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 201644
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Breki Bjarnason rekur fyrirtækið
Sæfrost í Búðardal ásamt feðgunum
Baldri Þóri Gíslasyni og Gísla Bald-
urssyni. Breki er frá Auðshaugi á
Barðaströnd og er alinn upp við sjó-
inn en á þrettánda ári byrjaði hann
að róa með föður sínum þar sem
hann var á handfærum. Tuttugu og
tveggja ára gamall fór hann sjálfur
að stunda grásleppuveiðar á bátnum
sínum Stormi og á öðru ári var unn-
usta hans, Guðrún Andrea Einars-
dóttir, orðin háseti hjá honum.
Unnusta, móðir og tvær
systur hásetar
„Guðrún kemur úr Borgarfirð-
inum og hafði varla séð sjó,“ seg-
ir Breki lítið eitt glottandi og kitl-
ar þar með hláturtaugar fréttarit-
ara. „Ég hef aldrei haft karlkyns há-
seta um borð hjá mér, Guðrún hef-
ur oft sinnt því hlutverki og svo litla
systir mín Vera Sól,“ bætir Breki við.
„Foreldrar mínir gera út tvo báta frá
Brjánslæk og þar eru móðir mín og
hin systir mín, Rán, hásetar. Það eru
því fjórar konur á sama bænum sem
fara á grásleppu og sinna hlutverki
háseta á sjó,“ segir Breki ángæður
með sínar konur.
Vaxandi starfsemi
Breki gerir út frá Brjánslæk á
Barðaströnd líkt og foreldrar hans
en vinnslan kemur öll í Sæfrost í
Búðardal. Samstarfsélagarnir Bald-
ur og Gísli gera sameiginlega út frá
Skarðsstöð í Dölum og flyst þeirra
afli einnig til vinnslu í Búðardal.
„Þegar við fórum af stað með
fyrirtækið var alltaf markmiðið að
taka fleiri báta en okkar og vinnum
við fyrir aðra í verktöku. Við laus-
frystum makríl og seljum til út-
flutnings. Grásleppan var fyrst bara
frá okkar bátum en starfsemin hef-
ur bara fara vaxandi og við fáum í
auknum mæli grásleppu frá öðr-
um bátum. Við erum með ágæt-
is samstarfssamninga og fryst-
um t.d. lax frá Arnarlaxi á Bíldu-
dal og Fjarðarlaxi á Patreksfirði.“
Það er til marks um vaxandi starf-
semi að Sæfrost er nú farið að gefa
nokkur sumarstörf í Búðardal og
þykir það vinsælt meðal ungra
námsmanna að ráða sig í fiskvinnsl-
una í sumarfríinu. Einnig er eitt-
hvað um að bændur hafi nýtt sér
möguleika á aukavinnu í Sæfrosti.
Breki telur að starfsemin hjá Sæ-
frosti hafi haft áhrif á verðmyndun
í vor en í upphafi vertíðar var Sæ-
frost að bjóða um 15% hærra verð
en aðrir lögðu upp með en síð-
an hafi það verið jafnað að þeirra
verði. „Mér þykir eðlilega dálít-
ið sérstakt að stórir kaupendur geti
hækkað sig skyndilega í verðum ef
aðrir borga betur,“ segir Breki.
„Ég geri sjálfur út á tvo báta;
Storm BA og Ísöld BA, og var
með um 60 tonn í fyrra. Við í Sæ-
frosti höfum náð sölusamningi við
stóran kavíarframleiðanda í Svíð-
þjóð og erum því með öruggar söl-
ur sem er ekki sjálfgefið í dag. All-
ir sem hafa lagt upp grásleppu hjá
okkur hafa verið ánægðir enda höf-
um við getað staðið við það sem við
segjum og ekki þurft að lækka verð
eins og menn hafa verið að lenda í.
Eðlilega voru menn hikandi við að
leggja upp hjá okkur í fyrstu en eru
farnir að treysta okkur enda er þetta
fjórða starfsárið og sölur tryggar.“
Sláturhúsið bauð
upp á tækifæri
Þegar Breki flutti ásamt unnustu
sinni í Búðardal stóð sláturhúsið
tómt og sóttust Sæfrostsfélagar eft-
ir því að fá aðstöðu þar fyrir vinnsl-
una. Sláturhúsið þótti góður kostur
enda með góða aðstöðu fyrir fryst-
ingar.
„Áður en ég flutti í Búðardal var
ég við byggingarvinnu á Reykja-
víkursvæðinu. Eftir hrunið flúði ég
út á land og þar sem við Baldur fé-
lagi minn sáum tækifæri í Búðardal
settumst við Guðrún þar að og hún
kláraði sitt nám í fjarnámi.“
Guðrún er nú kennaramenntuð
og starfar í Auðarskóla í Búðardal
en Breka hefur tekist vel til með að
laða hana að sjónum en undanfarin
sumur hefur hún haldið beint vest-
ur að skóla loknum og í stöðu há-
seta hjá Breka. sm
Fiskvinnsla í sláturhúsinu í Búðardal
„Það er til marks um vaxandi starfsemi að Sæfrost er nú farið að gefa nokkur sumarstörf í Búðardal og þykir það vinsælt meðal ungra námsmanna að ráða sig í fiskvinnsluna í sumarfríinu.“
Brugðið á leik.
Guðrún Andrea háseti á Stormi BA. Ljósm. gae.
Breki Bjarnason rekur fyrirtækið Sæfrost í Búðardal.