Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 51
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 51
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Allt fyrir
Öryggið!
Öryggisblakkir frá Sala
Sala blakkir hafa reynst vel um borð í
íslenskum skipum í áratugi.
Í dag er gírbúnaðurinn aðskilinn frá ryðfríum vírnum.
Þannig endast blakkirnar margfalt lengur.
Starfsmenn Dynjanda eru sérþjálfaðir hjá framleiðanda
og sjá um allt viðhald hér á landi.
Matvagninn Finsens fish & chips
nýtur mikilla vinsælda í Hólminum.
Vagninn stendur við höfnina í Stykk-
ishólmi yfir sumartímann og var opn-
aður seinni part maímánaðar. „Síðasta
sumar gekk framar öllum vonum. Þá
opnuðum við tveimur mánuðum eftir
að við ætluðum að opna. Nú erum við
bara mánuði á eftir áætlun þannig að
mögulega opnum við á réttum tíma
á næsta ári,“ segir Bjarki Hjörleifsson
eigandi vagnsins í gamansömum tón.
Aðspurður hvort heimamenn sæki
vagninn mikið segist Bjarki bæði fá
mikið af heimamönnum og aðkomu-
fólki. „Ég fæ líka mikið af sjómönn-
um, menn eru oft að koma hérna út-
ataðir í slori af strandveiðum.“
Fiskurinn á Finsens kemur meðal
annars beint úr Breiðafirðinum.
„Ég er að fá hann úr Grundarfirði,
frá G.Run. Þetta er ljómandi flottur
fiskur,“ segir Bjarki sem horfir björ-
tum augum á sumarvertíðina á höfn-
inni. jse
Fiskur og
franskar við
höfnina
Bjarki stendur vaktina á Finsens.
anfarin ár. Sem hafnsögumaður er
hann meira í því að taka á móti skip-
um. „Við erum bara á móti hafn-
sögumönnum í Reykjavík. Erum á
bryggjunni að taka á móti skipunum
eða þá að við förum um borð þeg-
ar það er mikil traffík. Þar erum við
að lóðsa og veita leiðsögn. Þetta eru
oftast nær skip með útlendum skip-
stjórum og það þarf að segja þeim
hvert á að fara, hvar þeir eiga að
liggja og upplýsa um aðstæður, veð-
ur og skilyrði.“ Hann segir það und-
arlegt að hann hafi aldrei orðið sjó-
veikur fyrr en hann byrjaði að vinna
á höfninni. „Ég hef fundið fyrir
sjóveiki á lóðsbátunum en aldrei á
meðan ég stundaði sjóinn.“
Mikið fjör að veiða
Í dag á Valentínus lítla trillu sem
hann notar til að veiða í soðið.
Barnabörnin eru dugleg að sigla
með honum út og reiknar hann
með því að fara nokkra góða róðra
í sumar. Annars er sumarið tími
áhugamálanna hjá þeim hjón-
um enda spila þau bæði golf og
eru í stangveiði. Valentínus er því
þakklátur að þau eigi sameigin-
leg áhugamál. „Það er mikill mun-
ur ef hjón geta varið tíma saman.
Við hjónin förum mikið saman í
golf. Hún spilar samt aðallega er-
lendis,“ segir hann og hlær. „Við
veiðum líka mikið saman en hún
er hörku veiðimaður. Við erum þá
mest í laxveiðinni, erum til dæmis
í hjónaholli sem opnar alltaf Vatns-
dalsánna,“ bætir hann við. Hann
segir þau bæði hafa alist upp við
að fara í stangveiði og byrjaði hann
sjálfur að veiða sem strákur. „Ég fór
líka með mína fjölskyldu í veiði-
ferðir. Elsta barnið okkar var ekki
nema fjögurra mánaða þegar hann
fór í fyrstu veiðiferðina. Í mörg ár
fórum við svo alltaf í Flekkudalsá
í Dölum, það var árlegt hjá fjöl-
skyldunni.“ Valentínus veiðir aðal-
lega á flugu nú til dags. Hann ljóm-
ar þegar hann talar um fluguveið-
ina. „Þetta er svo mikið fjör,“ seg-
ir hann hress að endingu og sýn-
ir blaðamanni mynd þar sem hann
stendur með nýveiddan stórlax.
grþ
Höfrungur AK 91.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
www.fulltingi.is / fulltingi@fulltingi.is / sími 533 2050 / Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Slys geta gerbreytt aðstæðum í lífi okkar.
Hvort sem þú ert í rétti eða órétti, getur þú átt rétt á bótum!
Réttur í órétti?
Hafðu samband – það kostar ekkert!