Skessuhorn - 01.06.2016, Blaðsíða 53
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2016 53
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Fiskurinn leitar ekki að þér
Sævar segir miklar breytingar hafa
orðið á þessum 37 árum sem hann
hefur verið til sjós. Vinnuaðstað-
an hafi batnað til muna, áður hafi til
að mynda allt verið blóðgað á dekki.
Þá hafi veiðarfærin batnað og neta-
vinnan snarminnkað. Handfærin
hafa einnig tekið byltingum og Sæv-
ar segir mikinn mun á því að fara úr
nánast handsnúnum rúllum yfir í að
þurfa bara að ýta á takka og hirða
fiskinn af línunni.
„Maður væri enda sjálfsagt ekk-
ert í þessu enn í dag ef maður væri
með sömu vinnuskilyrðin og voru
þegar maður byrjaði. Það er alveg á
hreinu.“
En eitthvað er þó eins, ekki satt?
Það þarf enn að finna fiskinn, eru
menn ekki misfisknir?
„Maður spekúlerar bara hvar á
að prófa, en þetta snýst nú aðallega
um að prófa. Maður á að fara eftir
því sem kemur upp í kollinn. Það er
yfirleitt eitthvað sem segir manni að
maður eigi að fara eftir sannfæringu
sinni, það hefur mér alltaf reynst
best. Þó enginn bátur sé búinn að
vera á svæðinu, þýðir það ekki að það
sé enginn fiskur þar. Svo er ég nátt-
úrulega fullkomlega meðvitaður um
að maður þarf að hafa fyrir þessu, af
því að maður þarf að leita að fiskin-
um. Það hvarflar ekki að fiskinum að
leita að þér.
Það þýðir ekki að fara út á mið á
skak og renna og láta bara reka í fjóra
tíma, nema það sé fiskur. Maður sá
stundum dálítið mikið af því, en það
eru þá aðallega menn sem voru ekki
með reynslu af sjó, eða kannski á öðr-
um forsendum í þessu, kannski bara
að gamni sínu.
Ég hafði hins vegar ekki þolinmæði
til að stoppa nema nokkrar mínút-
ur á hverjum stað, þá var ég farinn
að leita. Og fæ svo kannski mokfisk
á fimmtánda staðnum sem ég stoppa.
Þá eru kannski liðnir 4-5 tímar, en þá
fær maður bara skammtinn þar.
Ég var í fyrsta skipti í vetur skip-
stjóri á línu og gekk bara mjög vel.
Það var prýðisgangur alveg hreint.
Þeir segja að Strandamaðurinn sé al-
veg kolgöldróttur og það sé ekkert
að marka hann“
Sjómaður meðan ég get
Sævar er laghentur og smíðar mikið
heima fyrir, til dæmis mublur í garð-
inn. Þá eiga þau hjónin sumarbústað í
Húsafelli og þar dyttir hann að. Hann
segir gott að fara þangað og hvíla sig,
þá hugsi hann ekki um sjóinn á með-
an. Annars sé hann sífellt með hug-
ann við sjóinn. En er hann alltaf að
horfa út á sjó og spá í gæftir?
„Nei, nei, ég nú hættur því. En ég
hugsa samt mikið um þetta. Ég á fé-
laga sem er að róa núna á kvóta og
hringdi nú í hann í gær til að spyrja
út í fiskeríið. Og fyrir þremur dög-
um. Aðeins til að lifa í gegnum hann
á meðan ég má ekki róa sjálfur. Og
mér líður rosa vel að heyra að hann
fiski vel.
Ég samgleðst öðrum svo inni-
lega þegar gengur vel. Það er oft
smá keppni á milli manna, ekkert al-
varlegt. En það á ekkert að þurfa á
strandveiðum, það eru bara allir að
reyna að ná skammtinum og ég er
fyrst og fremst að keppa við sjálf-
an mig. Þetta er bara áskorun fyrir
mig, að ná þessu. Í fyrra fannst mér
ég vera svolítið linur, þá fór ég ekki
í fimm róðra út af brælu. Ég einsetti
mér það í vor að róa harðar í sum-
ar og ég er búinn að fara alla túrana
núna í maí. Það voru ekki margir
bátar hér í Breiðafirði sem fóru alla
róðrana.
Ég ætla bara að vera sjómaður
á meðan ég vinn. Á meðan ég get.
Ég minnka þá bara við mig og vinn
minna,“ segir Sævar að endingu.
kóp/ Ljósm. tfk.
Til hamingju
sjómenn!
Arion banki óskar sjómönnum, fjölskyldum
þeirra og okkur öllum, sem njótum góðs af
störfum þeirra, gleðilegs sjómannadags.
Hann var heldur betur myndarleg-
ur þessi þorskur sem Þorgeir Guð-
mundsson skipstjóri og útgerðar-
maður Þyts MB-10 lyftir þarna upp
fyrir myndatöku hjá Alfons Finns-
syni. „Ætli hann hafi ekki ver-
ið 25-30 kíló þessi,“ sagði Þorgeir
þegar hann var inntur eftir þyngd
fiskisins en talsvert af slíkum bolta-
þorskum hefur komið á land á Arn-
arstapa í vor.
Þorgeir segist hafa róið frá Arn-
arstapa á hverju vori síðan 1985
og alltaf á sama bátnum. „Ég er að
vísu búin að breyta honum talsvert
á þessum tíma en að uppistöðu er
þetta sami báturinn.“ Hann segir
veiðina hafa verið með besta móti
á Stapanum þetta vorið en Þorgeir
er með um 30 tonna þorskígildis-
tonna kvóta á bátnum. „Ég er svona
hálfnaður með kvótann og hef sum-
arið til að klára.“ Bátur Þorgeirs er
skráður með heimahöfn í Borgar-
nesi en þar bjó hann lengi og starf-
aði hjá Kaupfélagi Borgfirðinga,
m.a. við akstur mjólkurbíla.
hb
Stórþorskur á færin hjá
fyrrum mjólkurbílstjóra
Þessi mynd var tekin síðari hluta aprílmánðar í vor þegar Sævar var að leggja
lokahönd á að undirbúa strandveiðibát sinn Sif SH-132 fyrir strandveiðarnar.