Skessuhorn - 01.06.2016, Side 68
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 201668
Atvinnuhúsnæði til leigu á Akranesi
Til leigu er atvinnuhúsnæði við Smiðjuvelli.
Samanlagt er húsnæðið um 150 fm. Sameiginlegur
inngangur með bílasölunni. Fundarsalur, verslunarrými,
lagerpláss og kaffiaðstaða. Á efri hæð er ca. 35 fm
sem hægt er að nýta sem skrifstofuaðstöðu.
Getur t.d. hentað fyrir snyrti- eða hárgreiðslustofur.
Laust strax.
Upplýsingar á Bílás.
Sími: 431-2622, 863-2622
eða 893-2621
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Norðurálsvöllur
Allir á völlinn
ÍA - Þróttur
Sunnudaginn 5. júní kl. 19:15
Mætum öll gul og glöð
Aðalstyrktaraðili leiksins er
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
Af því tilefni býður Norðurál öllum frítt á völlinn. Oft var þörf en
nú er nauðsyn að styðja við bakið á strákunum!
Vinnueftirlitið óskar eftir að ráða
eftirlitsmann til starfa við véla- og tækjaeftirlit á
Vesturlandi með aðsetur á Akranesi
Helstu verkefni eru:
Vinnuvéla- og tækjaeftirlit, sbr. ákvæði laga nr. 46/1980 um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Fræðsla á námskeiðum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Tæknimenntun, t.d. vélfræði- eða iðnmenntun (vélvirkjun/bifvélavirkjun).
Þekking og reynsla sem nýtist í starfi sem þessu, s.s vinna við stjórn og/
eða viðgerðir vinnuvéla.
Skipulagshæfni, sjálfstæði, nákvæmni og frumkvæði í starfi.
Sveigjanleiki og mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
Góð íslenskukunnátta og þjálfun í framsetningu ritaðs máls.
Kunnátta í ensku og/eða Norðurlandamálum er æskileg.
Tölvufærni.
Reynsla af fræðslu- og kynningarstarfi kostur.
Um er að ræða 100 % starf með aðsetur að Stillholti 18, Akranesi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsþjálfun fer fram við
upphaf starfs.
Laun eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Konur jafnt sem karlar
eru hvött til að sækja um starfið.
Vinsamlegast sækið um á vef Vinnueftirlits ríkisins eða á Starfatorgi.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní nk.
Nánari upplýsingar um starfið fást hjá Guðjóni Einarssyni hjá vinnuvéla deild
(gauie@ver.is), s.550 4600.
Vinnueftirlitið er miðstöð vinnuverndarstarfs í landinu og byggir starf sitt á
samþættingu eftirlits, fræðslu og rannsókna. Vinnueftirlitið starfar samkvæmt
lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980. Sjá
nánari upplýsingar á heimasíðu www.vinnueftirlit.is.
Frumkvæði - Forvarnir - Fagmennska
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Körfuboltabræðurnir Þorgeir og Sig-
urður Aron Þorsteinssynir eru búsett-
ir í Borgarnesi. Bræðurnir eru efni-
legir spilarar og hafa báðir verið við-
loðandi yngri landslið Íslands undan-
farin ár. Þorgeir er fæddur árið 1999
og er því 17 ára gamall en Sigurður
er tveimur árum yngri. Báðir leika
þeir stöðu miðherja og hafa hæðina
með sér. Þorgeir er 205 sentímetrar
en Sigurður er 197 sentímetrar. Þeg-
ar blaðamaður ræddi við bræðurna
á dögunum kom á daginn að mið-
herjastaðan hefur verið áberandi í
fjölskyldunni. Fyrst ber að nefna afa
drengjanna, Sigurð Má Helgason.
„Afi var í landsliðinu og alltaf mikið í
kringum körfubolta. Hann var með-
al annars einn af stofnendum körfu-
knattleiksdeildar Vals,“ segir Þor-
geir. Næst nefna bræðurnir móður-
bróðurinn Flosa Sigurðsson, sem fór
til Seattle í Bandaríkjunum og lék á
háskólastyrk á áttunda ártugnum.
„Síðan er það auðvitað bróðir pabba,
Gunnar Þór Þorsteinsson, eða Gunni
bóndi, eins og hann var kallaður.
Hann spilaði lengi með Skallagrími
og er einn af þekktari leikmönnum
liðsins,“ segja bræðurnir.
Allir voru ættingjarnir miðherjar
og ef til vill átti það því fyrir bræðr-
unum að liggja að leggja körfubolt-
ann fyrir sig. „Ætli þetta sé ekki bara
í blóðinu. Við höfum alltaf verið í
kringum körfubolta,“ segja þeir. „Við
vorum aldrei mikið fyrir fótbolta en
prófuðum líka badminton og spiluð-
um það í mörg ár með körfunni. En
Borgarnes er mikill körfuboltabær og
körfuboltinn var alltaf skemmtileg-
astur,“ segir Þorgeir.
Afi, Dirk og Raggi Nat
Báðir voru bræðurnir ungir þeg-
ar þeir stigu sín fyrstu skref á körfu-
boltavellinum. Þorgeir hefur æft frá
sex ára aldri, með árs hléi þó. Sigurð-
ur byrjaði á sama aldri og hefur einn-
ig þurft að gera hlé á æfingum. „Ég
tók mér pásu í eitt og hálft ár vegna
meiðsla. Ég stækkaði mjög hratt, var
með mikla vaxtaverki og gat ekki æft,“
segir hann. Erfiðleikar geta alltaf gert
vart við sig hjá ungum íþróttamönn-
um. En bræðurnir höfðu það mikinn
áhuga á körfunni að þeir sneru aftur
til æfinga eftir hlé. Ætla þeir að halda
áfram að leggja stund á körfuboltann
meðan áhuginn er fyrir hendi.
Þegar bræðurnir eru spurðir um
fyrirmyndir sínar í boltanum stend-
ur ekki á svörum. „Það er afi, ekki
spurning,“ segja þeir en nefna að er-
lendis líti þeir mikið upp til Dirk No-
witzki, leikmanns Dallas Mavericks
í NBA deildinni. „Einnig höfum við
horft mikið til Ragga Nat [Ragnars
Nathanaelssonar]. Það er alltaf verið
að kenna honum nýja hluti og hjálpa
honum að bæta sig. Hann er dálítið
okkar maður,“ segja þeir.
Aðspurðir hvað sé skemmtilegast
við körfuna segir Þorgeir að það sé
líklega félagsskapurinn. „En það er
líka mjög gaman þegar maður nær að
gera eitthvað kúl. Skora fallega körfu
eða blokka einhvern út úr húsinu,“
bætir Sigurður við og brosir. En þó
tilþrif og taktar geti verið eftirminni-
legir fer minnstur tími íþróttaiðkunar
í þau augnablik. Mestum tíma er allt-
af varið í æfingar og bræðurnir leit-
ast stöðugt við að bæta sig. „Ég er
að vinna í því að bæta stökkkraftinn
hjá mér,“ segir Þorgeir „og ég þarf
að bæta pósthreyfingarnar mínar og
er að vinna í þeim núna,“ bætir Sig-
urður við.
Erfitt en gaman með
landsliðunum
Hér að ofan var fullyrt að bræðurn-
ir teldust efnilegir körfuknattleiks-
menn og nú skal það stutt með rök-
um. Þorgeir varð á liðinum vetri Ís-
landsmeistari með ÍR í drengjaflokki
og hafnaði í öðru sæti í bikarkeppn-
inni. „Við mættum Njarðvík í báðum
úrslitaleikjunum. Það var mjög súrt
að tapa fyrir þeim í bikarnum í vet-
ur en jafnframt mjög sætt að vinna þá
síðan í leiknum um Íslandsmeistara-
titilinn,“ segir hann. Liðinu var síð-
an í vor boðið á Scania Cup í Sví-
þjóð, ásamt öðrum bestu drengjalið-
um Norðurlandanna.
Sigurður lék með 9. flokki Skalla-
gríms í B deild Íslandsmótsins í ár en
segir að liðið hafi ekki unnið til verð-
launa í vetur. Hann var aftur á móti
valinn í U15 ára landsliðið fyrir Co-
penhagen Invitational og hélt til æf-
inga með hópnum um síðustu helgi.
„Það er góð tilfinning að vera valinn
í landsliðið, að vera í topp 12 í sín-
um aldursflokki á landsvísu. Gam-
an að geta sagt öðrum frá því líka,“
segir hann og hlær við. „Það er allt-
af mikið hrós að vera valinn í lands-
liðsverkefni,“ bætir Þorgeir við sem
þekkir þá tilfinningu. Hann fór sjálf-
ur með U15 ára landsliðinu til Kaup-
mannahafnar á síðasta ári og hafnaði
í öðru sæti. Árið eftir fór hann með
U16 ára landsliðinu á Norðurlanda-
mótið en komst ekki í hóp fyrir Evr-
ópumeistaramótið seinna um sumar-
ið. „Þannig að við höfum báðir verið
viðloðandi landsliðin og það er mjög
gaman. Erfitt, en mjög gaman,“ seg-
ir Þorgeir. kgk
„Höfum alltaf verið í
kringum körfubolta“
Bræðurnir Sigurður Aron og Þorgeir Þorsteinssynir.
Þorgeir varð á liðnum vetri Íslands-
meistari með ÍR í drengjaflokki.
Sigurður á æfingu með U15 ára landsliði Íslands.