Skessuhorn - 15.03.2017, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 20172
Írskir vetrardagar eru á dagskrá á
Akranesi næstu daga. Fjölbreyttir
menningarviðburðir eru á dagskrá
og ættu flestir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi.
Á morgun gengur í norðan 5 til
13 m/s með snjókomu norðan-
og austanlands, hvassast verður á
annesjum. Þurrt að kalla á sunn-
anverðu landinu og éljagangur
nyrðra um kvöldið. Frost 0 til 5 stig,
en frostlaust allra syðst. Á föstudag
verður minnkandi norðanátt. Svo-
lítil él við norður- og austurströnd-
ina, en víða léttskýjað annars staðar.
Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveit-
um fyrir norðan. Vaxandi austanátt
um kvöldið og fer að snjóa sunn-
anlands. Á laugardag spáir norð-
austlægri eða breytilegri átt, vægu
frosti og snjókomu í flestum lands-
hlutum en slyddu og hita í kringum
frostmark suðvestan til.
Á sunnudag er útlit fyrir stífa
norðanátt með snjókomu eða élj-
um en þurrt verður á sunnanverðu
landinu. frost um allt land. Á mánu-
dag er útlit fyrir hæga norðlæga og
síðar vestlæga átt með éljum um
mest allt land. Kalt verður í veðri.
Í síðustu viku voru lesendur vefs
Skessuhorns spurðir að því hversu
oft þeir týna sjónvarpsfjarstýring-
unni. Flestir sögðust aldrei týna
henni, eða 44% þeirra sem svöruðu.
28% svarenda sögðust týna henni
sjaldan en 11% týna fjarstýring-
unni oft. 6% svarenda týna fjarstýr-
ingunni nokkrum sinnum í viku en
3% sögðust týna henni oft á dag.
Einnig voru það 3% svarenda sem
sögðust týna sjónvarpsfjarstýring-
unni daglega. Einungis 2% sögðu
að fjarstýringin væri týnd og önn-
ur 2% svarenda sögðust ekki eiga
sjónvarpsfjarstýringu.
Í þessari viku er spurt:
„Hver er eftirlætis samfélags-
miðillinn þinn?“
Matthías Leó Sigurðsson, keiluspil-
ari hjá ÍA, setti fjögur Íslandsmet í
forkeppni á Íslandsmóti einstak-
linga í keilu með forgjöf sem fram
fór um liðna helgi. Íslandsmetin eru
sett í 5. flokki sem er fyrir leikmenn
10 ára og yngri. Matthías Leó er
Vestlendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Þrír frá ÍA í U21
landsliðið
AKRANES: Skagamennirnir
Aron Ingi Kristinsson, Steinar
Þorsteinsson og Tryggvi Hrafn
Haraldsson hafa verið valdir í
hóp U21 landsliðs karla í knatt-
spyrnu sem heldur til Georgíu
20. mars næstkomandi. Mun
liðið leika tvo æfingaleiki við
heimamenn, dagana 22. og 25.
mars. Að því loknu verður hald-
ið til Ítalíu þar sem liðið mæt-
ir Sádi-Aröbum 28. mars. „Við
óskum strákunum til hamingju
með tækifærið og treystum því
að þeir verði sjálfum sér og fé-
laginu til mikils sóma,“ segir í
tilkynningu á heimasíðu knatt-
spyrnufélags ÍA. -kgk
Gjaldeyrishöftin
afnumin
LANDIÐ: Ríkisstjórnin, í sam-
ráði við Seðlabanka Íslands,
kynnti á sunnudag þá ákvörðun
að nú verða fjármagnshöft af-
numin á einstaklinga, fyrirtæki
og lífeyrissjóði. Tók breytingin
gildi í gær, þriðjudag. Slíkt var
talið nauðsynlegt, ekki síst fyr-
ir lífeyrissjóðina sem hafa í ljósi
gríðarlegra tekna sinna, tak-
markaða möguleika til fjárfest-
inga hér á landi. Samhliða af-
léttingu hafta er gert samkomu-
lag við aflandskrónueigendur
og skipuð nefnd sem fara á með
endurskoðun peningastefnunn-
ar. -mm
Áætlun um mat á
gróðurauðlindum
LANDIÐ: Atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytið, Bændasam-
tök Íslands, Landgræðsla ríkisins
og Landssamtök sauðfjárbænda,
hafa gert með sér samkomulag
til tíu ára um mat á gróðurauð-
lindum. Markmið verkefnisins
er tvíþætt. Annars vegar að skila
með reglubundnum hætti heild-
armati á ástandi gróður- og jarð-
vegsauðlinda landsins og gera
grein fyrir breytingum þar á.
Hins vegar að þróa sjálfbærniv-
ísa fyrir nýtingu gróður- og jarð-
vegsauðlinda landsins. „Til að
tryggja sjálfbæra nýtingu gróð-
urauðlinda landsins er nauðsyn-
legt að koma á heildstæðu ferli
um vöktun gróðurs og jarðvegs
á Íslandi. Áþekkt fyrirkomulag
hefur verið gert við sjávarauð-
lindir með góðum árangri,“ seg-
ir í tilkynningu frá atvinnuvegar-
áðuneytinu. -mm
Ræktunarsýning
2017
VESTURLAND: Hrossarækt-
arsamband Vesturlands stend-
ur fyrir sýningu í reiðhöllinni
Faxaborg í Borgarnesi, laugar-
daginn 25. mars klukkan 20. Á
sýningunni verður m.a. kynn-
ing á ræktunarbúum, afkvæma-
sýningar ásamt úrvali af stóð-
hestum og hryssum af svæðinu.
Jafnframt koma fram nokkrir
þeirra stóðhesta sem Hrossa-
ræktarsamband Vesturlands
mun hafa til afnota næsta sum-
ar. Allt áhugafólk um ræktun
og hestamennsku er hvatt til að
taka daginn frá. -fréttatilk.
Philippe O‘Quin, sendiherra Frakk-
lands á Íslandi, heimsótti Grundar-
fjörð síðastliðinn mánudag. Grund-
arfjörður hefur mikil tengsl við
Frakkland og er Paimpol vinabær
þeirra Grundfirðinga. Sendiherr-
ann byrjaði á að heimsækja fisk-
vinnslufyrirtækið G.Run hf. þar
sem Rósa Guðmundsdóttir sýndi
honum vinnsluna og fræddi hann
um ferlið frá því að fiskurinn kem-
ur í land og þar til hann er fluttur
út. Því næst var farið út á Grund-
arkamb þar sem gömlu verstöðvar
Frakka voru skoðaðar og svo minn-
ismerki franskra sjómanna á kamb-
inum. Að endingu var svo fyrir-
lestur í Sögumiðstöðinni þar sem
að Björg Ágústsdóttir fjallaði um
sögu franskra sjómanna við Grund-
arfjörð. Sendiherrann hélt svo aft-
ur í franska sendiráðið eftir góða
og fræðandi heimsókn til Grundar-
fjarðar. tfk
Franski sendiherrann heimsótti Grundarfjörð
Philippe O‘Quin hlustar af athygli á Rósu Guðmundsdóttur verkstjóra hjá G.Run
hf.
Hérna er hópurinn við minnismerki franskra sjómanna á Grundarkambi. Frá
vinstri eru Sigurlaug R. Sævarsdóttir, Sigríður Hjálmarsdóttir, Benjamín Björns-
son, Philippe O‘Quin, Eyþór Garðarsson og Þorsteinn Steinsson.
Heilsuvika hefur staðið yfir í Snæ-
fellsbæ frá því síðastliðinn fimmtu-
dag. Fjölmargar uppákomur hafa
verið í boði; allt frá bosnískri pítu-
gerð, Zumba, Joga, samfloti í sund-
lauginni og Fomeflex til fyrirlestra
um kvíða. Um helgina var hægt
að láta teyma undir sér á hestbaki
í nýrri og glæsilegri reiðskemmu
Hesteigendafélagsins Hrings, prófa
klifurvegg hjá Björgunarsveitinni
Lífsbjörgu og ýmislegt fleira. Einn-
ig hafa fyrirtæki í Snæfellsbæ boð-
ið upp á ýmis heilsutilboð. Mik-
ið af því sem er í boði er á vegum
heimafólks. Er Sigrún Ólafsdóttir,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæ-
fellsbæjar, mjög ánægð með hvað
fólk er duglegt að mæta á viðburði
og er áhugasamt. Þetta er í þriðja
skipti sem staðið er fyrir Heilsuviku
í Snæfellsbæ og hefur hún vaxið ár
frá ári og notið vinsælda hjá íbúum.
þa
Heilsuvika í Snæfellsbæ festir sig í sessi
Sterkt gengi íslensku krónunnar og
viðskiptahindranir með vöruútflutn-
ing til Japans eru helstu ástæður þess
að veiðar á langreyði verða ekki stund-
aðar frá Hvalfirði sumarið 2017. Eng-
ar veiðar voru heldur í fyrrasumar, en
sumarið 2015 bárust á land 155 lang-
reyðar. Allt að 150 manns höfðu þá
atvinnu af veiðum og vinnslu hvalaaf-
urða og er því um þungt högg að ræða
fyrir atvinnulífið á svæðinu að veið-
arnar leggjast enn og aftur af. Í Morg-
unblaðinu í dag er haft eftir Kristjáni
Loftssyni forstjóra Hvals hf. að við-
skiptahindranir Japana felist í að þeir
noti m.a. yfir 40 ára gamlar rannsókn-
araðferðir við efnagreiningar, aðferðir
sem séu hvergi notaðar annars staðar
í heiminum. Þessi framkoma Japana
sé í andstöðu við alþjóðasamninga og
hafi kostað Hval hf. fjárhagslegt tjón
og tafið afhendingu afurða. Kristján
segir að frá árinu 2009 hafi Hvalur hf.
flutt út ýmsar hvalaafurðir af um 680
langreyðum. Af þessum afurðum hafi
verið tekin, á Íslandi og í Japan, um
20 þúsund sýni til rannsókna með til-
heyrandi kostnaði og töfum.
mm
Hvalveiðar ekki stundaðar næsta sumar
Hvalskurður í gangi í Hvalstöðinni í Hvalfirði sumarið 2014.