Skessuhorn - 15.03.2017, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 20174
„Ég sagði við Regínu fyrir ekki svo
löngu síðan að hún væri í drauma-
starfinu mínu sem ég vildi gjarnan
takast á við einhvern tímann á lífs-
leiðinni. Þá grunaði mig ekki að
stutt væri í að draumurinn yrði að
veruleika,“ segir Sævar Freyr Þrá-
insson sem í gær var ráðinn bæj-
arstjóri Akraneskaupstaðar. Sævar,
sem er 45 ára, er uppalinn Skaga-
maður og býr á Akranesi ásamt eig-
inkonu sinni Hafdísi Hafsteinsdótt-
ur geislafræðingi og þremur börn-
um. Hann er viðskiptafræðingur
að mennt og sest í bæjarstjórastól-
inn eftir veru í heimi fjarskipta en
á undanförnum árum hefur hann
verið forstjóri Símans og nú síðast
365 miðla.
Tímaramminn passaði
Sævar segir ráðninguna hafa átt
sér nokkurn aðdraganda. „Það var
komið að máli við mig fyrir ekki
svo löngu síðan. Ég hef verið í
ákveðnu verkefni sem forstjóri 365
sem hefur falist í því að selja stór-
an hluta fyrirtækisins. Það hefur
verið á lokametrunum að undan-
förnu og lauk loks í morgun þeg-
ar tilkynnt var um samruna 365 við
Vodafone. Það má því segja að sá
tímarammi sem var markaður í for-
stjórastóli 365 hafi passað við það
að taka við sem bæjarstjóri,“ segir
Sævar sem leit á úrið sitt að þessum
orðum slepptum. „Ég hef störf eft-
ir 18 mínútur, þannig að þetta pass-
ar ágætlega. Þetta leggst mjög vel í
mig,“ bætir hann við þegar blaða-
maður Skessuhorns ræddi við hann
eftir hádegið í gær. Ráðning Sæv-
ars hjá Akraneskaupstað er út yf-
irstandandi kjörtímabil, til vorsins
2018.
Sævar kveðst taka með sér góða
reynslu úr atvinnulífinu og lítur
með eftirvæntingu til þess að vinna
með heimamönnum. „Ég tel mig
vera ágætan í mannlegum sam-
skiptum sem ég vona að nýtist vel
í að vinna með starfsfólki Akranes-
kaupstaðar og íbúum bæjarins. Því
er mikil tilhlökkun hjá mér fyrir
framtíðinni.“
Víðtæk reynsla
Sævar hefur komið víða við í sam-
félaginu á Akranesi á undanförnum
árum og tekið að sér ýmis trúnað-
arstörf. „Ég sat í atvinnumálanefnd
Akraneskaupstaðar um hríð þar sem
markmið okkar var að efla atvinnu-
lífið í bænum. Þá var ég í stjórn
Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar og
kom að skipulagsbreytingum hjá
sjóðnum sem fólust í því að rekstur
hans færðist til Lífeyrissjóðs sveit-
arfélaganna. Síðustu ár hef ég verið
varaformaður Knattspyrnufélags ÍA
og einnig gegnt sama embætti hjá
Vesturlandsvaktinni, Hollvinasam-
tökum Heilbrigðisstofnunar Vest-
urlands. Ég get nefnt sem dæmi
að hjá ÍA höfum við lagt áherslu á
að byggja upp kjarna heimamanna
hjá kvenna- og karlaliðum félagsins
sem hefur skilað góðum árangri.
Starf okkar hjá Vesturlandsvaktinni
hefur að sama skapi hjálpað til við
að treysta stöðu heilbrigðisstofn-
unarinnar með ýmsum gjöfum. Það
hefur verið mjög gefandi að taka
þátt í þessum störfum, kynnast nýju
fólki og efla samfélagið,“ segir Sæv-
ar sem er óflokksbundinn og kemur
til starfa með stuðningi allra kjör-
inna fulltrúa í bæjarstjórn. „Síðan
má ekki gleyma Club 71 sem ég hef
tekið virkan þátt í. Það hefur verið
mjög gaman að taka þátt í þeim fé-
lagsskap. Ég er þakklátur traustinu
sem bæjarfulltrúar sýna mér með
ráðningunni. Í gegnum tíðina hefur
fólk úr öllum flokkum leitað til mín
og treyst fyrir ýmsum verkefnum.
Mér finnst það ágæt meðmæli.“
Samfélag í sókn
Sævar hefur mikla trúa á Akra-
nesi sem hann telur búa yfir mikl-
um sóknartækifærum. „Akranes
er frábært samfélag sem einkenn-
ist af samstöðu og samheldni. Hér
blasa tækifærin við. Innviðir sam-
félagsins eru góðir og er grunnur-
inn traustur fyrir frekari uppbygg-
ingu. Grunnur atvinnulífsins er
líka sterkur og vil ég leggja mitt af
mörkum til að styðja við fyrirtækin
sem eru starfandi í bænum og laða
að fleiri fyrirtæki, til dæmis í þekk-
ingariðnaði, og búa þannig til fleiri
störf. Bærinn hefur verið að styrkja
sig á undanförnum árum og hefur
íbúum fjölgað. Það skiptir máli að
halda sókninni áfram,“ segir Sævar
að endingu.
hlh
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Heiðar Lind Hansson hlh@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Er offjölgun?
Íslandsbanki kynnti í síðustu viku gagnlega skýrslu um íslenska ferðaþjón-
ustu, stöðu og horfur. Gott innlegg í umræðu sem greinilega þarf að eiga
sér stað um atvinnugrein sem vaxið hefur hraðar en dæmi eru um. Nú er
svo komið að vaxtarverkirnir í ferðaþjónustu eru áberandi og jafnvel farn-
ir að skaða orðspor greinarinnar í huga hins venjulega Íslendingsins, sem
kannski hefur takmarkaðan áhuga á ferðaþjónustu. Kallar ástandið því á
aðgerðir stjórnmálamanna sem fram til þessa hafa látið viðvaranir um þró-
unina sem vind um eyru þjóta, í besta falli látið skrifa um hana skýrslu.
Spáð er að 2,3 milljónir ferðamanna sæki landið heim á þessu ári og verð-
ur það enn á ný fjölgun frá síðasta ári, að þessu sinni um 30% og enn eitt
metið. Því er jafnframt spáð að gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönn-
um verði um 560 milljarðar króna, eða sem nemur um 45% af gjaldeyris-
tekjum þjóðarbúsins. Það er því beinlínis fjarstæðukennt þegar reynt er að
halda því fram að ekki séu til peningar til að byggja upp nothæfar samgöng-
ur víðsvegar um landið. Hver ferðamaður skilaði á síðasta ári 202 þúsund
krónum í beinhörðum tekjur til þjóðarbúsins. Þessir ferðamenn eru ekki
hingað komnir til að berja augum útþvældar lundabúðir í miðbæ Reykja-
víkur, heldur koma til landsins til að fara út fyrir höfuðborgina og sjá fal-
legt landslag og upplifa sögu og menningu þessa lands. Í ljósi þess skil ég
vel ólund landsbyggðarfólks yfir því að þær smánarlega litlu fjárveitingar
sem fara áttu í uppbyggingu vega skuli skornar burt með einu pennastriki í
Stjórnarráðinu. Menn hljóta því að spyrja: „Í hvað fara þessar tekjur ríkis-
sjóðs?“
Gistiþjónusta nemur ríflega fimmtungi heildarútgjalda hvers ferða-
manns. Hlutfallslega fleiri þeirra velja nú að gista í íbúðarhúsi, orlofshúsi
eða í heimagistingu. Áætluð fjölgun hótelherbergja á þessu ári nemur ein-
ungis um þriðjungi af áætlaðri þörf. Það jákvæða er að það mun bæta nýt-
ingu hótelherbergja á landsbyggðinni, en ókosturinn sá að enn mun aukast
gistiframboð hins svokallaða deilihagkerfis. Ferðamenn munu því fleiri
velja að sofa í vegaköntum í bílum sem iðnaðarmenn hafa fram til þessa
notað til að flytja sagir og skrúfur á milli staða. Þá mun vilji fasteignaeig-
enda einnig aukast til að leigja frekar ferðafólki íbúðir sínar en almenningi.
Ef fram fer sem horfið verður íbúðarhúsnæði hér á landi setið af þremur
til fjórum kynslóðum, því unga fólkið hefur ekki efni á að flytja að heiman
og íbúðarhúsnæði fyrir það er hvort sem er ekki til. Í Reykjavík hefur ein-
hverra hluta vegna ekki verið minna byggt af íbúðum síðan á stríðsárum!
Þetta er vandi Íslendinga í hnotskurn og kallar auðvitað fram ergelsi í garð
ferðaþjónustunnar af því stjórnvöld og greinin sjálf hefur ekki undan að
byggja upp innviðina og skapa þann lagaramma sem þarf til að allir geti
lifað í sátt. Skýrsluhöfundar Íslandsbanka telja að um 2.000 íbúðir á höfuð-
borgarsvæðinu séu leigðar út í gegnum Airbnb og fjölgaði þeim um 116%
frá árinu á undan. Airbnb íbúðum á skrá fjölgaði um 509 á árinu en full-
gerðum nýjum íbúðum á markaði fjölgaði ekki nema um 399 á sama tíma.
Halló!
Á sama tíma og ég gleðst yfir því að Íslendingar hafi á svipstundu náð að
dreifa eggjum í fleiri körfur atvinnulífsins, óttast ég afleiðingar þess að of-
vöxtur ferðaþjónustunnar sé um of farinn að bitna á almenningi. Slíkt mun
hafa nákvæmlega sömu afleiðingar og ef veiðiheimildir í fiski eru langt um-
fram veiðiþol fiskistofna. Hættan er sú að við uppskerum neikvæðni í garð
ferðaþjónustu og slíkt munu ferðamennirnir einnig skynja. Þegar fleiri af-
leiðingar skorts á innviðauppbyggingu fara að koma í ljós vandast málið því
enn. Miðað við hættumerkin sem blasa við í núverandi ástandi tel ég tví-
benta gleði felast í spá um 30% fleiri ferðamenn á þessu ári. Við erum ein-
faldlega ekki undir slíka fjölgun búin, hvort sem litið er til samgöngukerfis-
ins, gistimöguleika, afþreyingar, verndundar náttúru eða annarra þátta.
Magnús Magnússon
Leiðari
Er kominn í draumastarfið
Sævar Freyr Þráinsson er nýr bæjarstjóri á Akranesi
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi.
Framleiðendur sjónvarpsþáttarað-
arinnar Biggest Loser hafa ákveðið
að næsta þáttaröð verði tekin upp í
Borgarfirði og verður heimili kepp-
enda á Bifröst. Þetta er í fjórða skipti
sem upptökur fara fram en hingað
til hafa þættirnir verið teknir upp á
Ásbrú í Reykjanesbæ.
Að sögn Jóns Hauks Jenssonar
leikstjóra hjá Saga Film, sem fram-
leiðir þættina, eru bundnar miklar
vonir við Borgarfjörðinn. „Við ætlum
að nýta umhverfið eins og við getum
og er stefnan sú að fara í þrautir á
svæðinu um kring. Það er sama hvert
maður snýr í Borgarfirði. Þar eru fal-
legir tökustaðir,“ segir Jón Haukur
en Biggest Loser er sýnt í Sjónvarpi
Símans og hefur á liðnum árum feng-
ið mikið áhorf.
Jón segir að þættirnir muni hafa
annað yfirbragð í ár því tökur hefjast
strax í vor. „Hingað til hafa upptök-
ur farið fram að hausti og svo hefur
þátturinn farið í sýningar í upphafi
árs. Stefnan nú er sú að hefja sýning-
ar strax í haust,“ segir Jón. Sem fyrr
verða þátttakendur tólf talsins en Jón
áætlar að um 30 manns muni starfa
við upptökurnar. „Við erum að velja
keppendur þessa dagana og vonumst
til að klára valið fljótlega. Stefnan er
sú að hefja upptökur í apríl.“ hlh
Biggest Loser í Borgarfjörðinn
Borgarfjörðurinn verður vettvangur
Biggest Loser í vor.