Skessuhorn - 15.03.2017, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 7
Dagskrá Írskra vetrardaga á Akranesi
Fimmtudaginn 16. mars
14:00-18:00 Gamli Skaginn, ljósmyndasýning, Café Kaja Kirkjubraut 54
18:00-20:00 Ronja Ræningjadóttir, Bíóhöllin á Akranesi
Föstudaginn 17. mars (St. Patricks Day)
09:00-12:00 Írska tónlistarkonan Elaine Ní Cuana heimsækir leikskóla kaupstaðarins og kynnir írska tónlist og
hljóðfæri fyrir börnunum
13:00-18:00 Gamli Skaginn, ljósmyndasýning, Café Kaja Kirkjubraut 54
17:00-18:30 Keltnesk arfleið á Vesturlandi, opnun í Guðnýjarstofu í Safnaskála Byggðasafnsins í Görðum
18:00-20:00 Ronja Ræningjadóttir, Bíóhöllin á Akranesi
20:00-22:00 Útgáfutónleikar Slitinna strengja í Tónbergi
Laugardagurinn 18. mars
12:00-17:00 Keltnesk arfleið á Vesturlandi, Guðnýjarstofu í Safnaskála Byggðasafnsins í Görðum
14:00-16:00 Ronja Ræningjadóttir, Bíóhöllin á Akranesi
18:00-20:00 Ronja Ræningjadóttir, Bíóhöllin á Akranesi
20:00-22:00 Útgáfutónleikar Slitinna strengja í Tónbergi
23:59- SÁLIN á Skaganum, dansleikur á Gamla Kaupfélaginu
Auk þess verða írskar bókmenntir í
öndvegi á Bókasafni Akraness.
Skagamenn og aðrir landsmenn eru hvattir til að
gera sér dagamun og njóta spennandi viðburða.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Skipulagsauglýsingar
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt á 153. fundi þann 09. mar 2017, að auglýsa eftirfarandi
skipulög:
Into the Glacier - Lýsing á breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022
Fyrirhugað er að breyta Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 -2022. Tillagan er sett fram á uppdrætti og með
greinargerð dags. 17. febrúar 2017 og felur m. a. í sér að landnotkun verður breytt í verslunar-og þjónustusvæði á
um 13 hektara svæði sem skilgreint er í gildandi aðalskipulagi Borgarbyggðar sem frístundabyggð nr. F128 í landi
Húsafells II og III. Gert er ráð fyrir að á svæðinu verði þjónusta við ferðamenn sem fara í ísgöngin á Langjökli, ásamt
því að þjónusta frístundabyggðina á nærliggjandi svæðum í framtíðinni. Tillagan er auglýst í samræmi við 30. grein
Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skriflegum ábendingum vegna lýsingar á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022, ef einhverjar
eru, skal komið á framfæri í bréfi eða í tölvupósti við umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar, í Ráðhúsi Borgar-
byggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi, borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en miðvikudaginn 12. apríl 2017.
Lýsing liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar og er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar – www.borgarbyggd.is.
Umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar, borgarbyggd@borgarbyggd.is veitir fúslega nánari upplýsingar, sé þess
óskað.
LAVA-Hótel Varmaland - Breyting á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022
Sveitarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 - 2022 breyting á landnotkun á
svæði fyrir þjónustustofnanir Þ6, til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti dags. 2. mars 2017 og felur í sér að
á Varmalandi verði skilgreint svæði fyrir verslun og þjónustu S8 á 6.404 fermetra reit sem nær til lóðar gamla Hús-
mæðraskólans. Tillagan verði auglýst í samræmi við 1. málsgrein 31. greinar Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagstillaga liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá 17. mars 2017 til 28. apríl
2017 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is.
Hverjum þeim aðila sem hagsmuna á að gæta, er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögu. Athugasemdir og
ábendingar skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi 28. apríl 2017 í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14,
310 Borgarnesi eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is.
Nú hafa 187 bæjarfélög í 16 lönd-
um myndað samtök gamalla Hansa-
bæja. Sveitarfélög þessi eiga þann
sameiginlega menningarsögulega
bakgrunn að hafa verið Hansabæir
á miðöldum. Hansasambandið var
bandalag verslunarborga, aðallega
í Norður-Þýskalandi, sem tókst að
koma á einokun í verslun á Eystra-
salti og um alla Norður-Evrópu. Í
byrjun 15. aldar fóru þýskir Hansa
kaupmenn að versla við Ísland og á
16. öld voru þeir búnir að taka yfir
mest öll viðskipti við landið. Þetta
tímabil er þekkt sem Þýska öldin í
Íslandssögunni.
Stykkishólmsbær hefur verið
í samstarfi við þessi samtök sem
einn af hinum gömlu Hansa versl-
unarstöðum. Nú er verið að setja
upp nýtt Hansa bókasafn í Hansa-
bænum Tikhvin í Rússlandi, sem
er um 180 km austur frá St. Pét-
ursborg. Af því tilefni var óskað
eftir íslenskum bókum um Stykk-
ishólm frá bæjarstjóranum Sturlu
Böðvarssyni. Vel var tekið í þá
beiðni og bækurnar voru sendar
af stað. Nýverið barst svo þakk-
arbréf frá fulltrúum Tikhvin hér-
aðs. Þar kemur fram að vel hefur
verið tekið í hugmyndina að koma
upp Hansa bókasafni í Tikhvin og
söfnunin heldur áfram. Fleiri bæir
eru farnir að tengjast verkefninu
og senda gögn til Tikhvin. Bóka-
safnið kemur til með að segja frá
fjölþjóðlegri sögu og menningu
þessara bæja.
mm
Stykkishólmur í sam-
tökum gamalla Hansabæja
Á myndinni má sjá starfsmenn bókasafnsins Taffy í Tikhvin með bókagjöfina frá
Stykkishólmi.